Ægir - 01.08.2010, Síða 31
31
V E I Ð A R F Æ R I O G V E I Ð I T Æ K N I
úti á sjó að vinna með okkar
búnað,“ segir Bjarni Þór.
Rafdrifið vírastýri
Önnur fullþróuð nýjung frá
Naust Marine er rafknúið
vírastýri. Eins og nafnið
bendir til er tilgangurinn sá
að stjórna röðun vírs inn á
vindur en hingað til hefur
þetta verið gert með tann-
hjólabúnaði.
„Rafknúið vírastýri við
vindubúnað er algjör nýjung í
heiminum sem við teljum
geta stórbætt meðferð og þar
með endingu togvíra. Vírar
eru sjaldnast framleiddir af
svo mikilli nákvæmni að
auðvelt sé að stilla vírastýri
rétt með tannhjólabúnaði.
Einnig grennist vírinn með
tímanum og þá verður röðun-
in verri. Með rafstýringu er
hægt að slá inn upplýsingum
um vírinn og hann raðast því
hárnákvæmt inn á vinduna.
Síðan er auðvelt að breyta
forsendunum eftir því sem
vírinn eldist og grennist. Við
teljum að þessi nýjung geti
skilað útgerðunum mun betri
endingu á togvírnum,“ segir
Bjarni Þór.
Kostir umfram glussann
Þegar kemur að spilbúnaði
horfa æ fleiri til þess að
skipta úr glussadrifnum vind-
um yfir í rafmagnsvindur.
„Við lítum á vindubúnað-
inn sem einn af grundvallar-
þáttum veiðarfæranna um
borð. Rafmagnsvindunum
fylgja miklir kostir, svo sem
sparnaður í olíu, minna við-
hald, hljóðlátari vindubúnað-
ur og minni mengunarhætta.
Ég finn að íslenskir útgerðar-
menn eru áhugasamir um alla
þessa þætti og bind vonir við
að vöxtur okkar geti haldið
áfram á komandi árum með
aukinni framleiðslu á vindu-
kerfum fyrir íslensk fiskiskip,“
segir Bjarni Þór Gunnlaugs-
son.
Við tökum á
móti netum
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar!
Sími 520 2220
www.efnamottakan.is
Efnamóttakan tekur við
veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e:
• netaafskurði
• hlutum úr f lottrolli
• nótaefni
Fáðu hjá okkur sérsniðna poka
undir netaafskurðinn.
Skjámyndakerfi fyrir ATW búnaðinn miðar að því að gera alla stjórnun einfalda og
aðgengilega.
Nýtt rafknúið vírastýri frá Naust Marine.