Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2011, Síða 14

Ægir - 01.02.2011, Síða 14
14 Matvælasvið Frumherja veitir matvælaframleiðendum víðtæka þjónustu: Auknar gæðakröfur með nýrri matvælalöggjöf „Gæða- og heilbrigðiskröfur stjórnvalda, kaupenda og neytenda hafa aukist verulega á undanförnum árum sem kallar á sérhæfða ráðgjöf fyrir matvælaframleiðendur. Þeirri þörf getum við mætt og einnig boðið matvælafyrirtækjum að taka að okkur umsjón með smærri sem stærri þáttum í daglegu gæðastarfi þeirra. Sá valkostur getur reynst mörg- um fyrirtækjum hagkvæmur valkostur,“ segir Róbert Hlöð- versson, sviðsstjóri matvæla- sviðs Frumherja hf. Matvælasvið Frumherja hefur starfað frá árinu 1993 og eitt af stærstu verkefnum þess á undanförnum árum hefur verið faggilt eftirlit með framleiðslu sjávarafurða. Mat­ vælastofnun tók þá ákvörðun í lok síðasta árs að frá 1. mars síðastliðinn yrði það verkefni flutt frá faggildum skoðunar­ stofum til stofnunarinnar sjálfrar. „Þessi breyting er gerð þrátt fyrir andstöðu allra hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Að mínu mati á hún eftir að verða mun kostnaðarsamari fyrir sjávarútveginn auk þess sem ótvíræðum kostum fag­ giltrar skoðunarstarfsemi er kastað fyrir róða,“ segir Ró­ bert. Ný matvælalöggjöf – hertar kröfur Með tilfærslu á framkvæmd eftirlitsins til Matvælastofnun­ ar skapast svigrúm til aukinn­ ar sóknar matvælasviðs Frum­ herja í nýrri þjónustu við mat­ vælaframleiðendur. „Matvæla­ löggjöf Evrópusambandsins hefur nú verið tekin upp á öllum sviðum matvælaiðnað­ ar, sem kallar á aukna þörf fyrir ráðgjöf á þessu sviði. Innan fiskvinnslunar voru þessar kröfur að mestu tekn­ ar upp þegar á árinu 1993. Við sem höfum unnið að þessum málum innan sjávar­ útvegsins síðan þá höfum því aflað okkur mikillar reynslu sem nú má nýta á öðrum sviðum matvælaiðnaðarins. Þar getur verið um að ræða allt frá því að taka að okkur hlutverk gæðastjóra yfir í námskeiðahald í gæðamálum. Markmiðið er fyrst og fremst að matvælaframleiðendur hafi aðgang að víðtækri faglegri þjónustu á þessu sviði hjá okkur og að þeirra starfsemi uppfylli allar kröfur matvæla­ löggjafarinnar,“ segir Róbert. Útvistun gæðastjóra Í þeim tilfellum sem matvæla­ framleiðendur gera samning við matvælasvið Frumherja um hlutverk gæðastjóra tekur sviðið að sér umsjón með uppfærslum og viðhaldi gæðakerfisins, annast innri úttektir á gæðakerfi, fram­ kvæmd viðhaldsáætlana, fræðslu um gæðamál, prófan­ ir, sýnatökur og samskipti við eftirlitaðila, svo eitthvað sé nefnt. „Slík útvistun hefur í för með sér mikið hagræði fyrir Mikil þekking og reynsla er hjá matvælasviði Frumherja á gæðastarfi matvælafyrirtækja og þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar. Þ J Ó N U S T A

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.