Ægir - 01.02.2011, Síða 20
20
„Einfaldasta svarið við þeirri
spurningu hverju sé að þakka
þennan aldur fyrirtækisins er
að veldur hver á heldur. Ég
þakka þetta dugnaði frum-
kvöðlanna sem stóðu að þeim
fyrirtækjum sem lögðu grunn-
inn að því sem er Hraðfrysti-
húsið Gunnvör í dag,“ segir
Einar Valur Kristjánsson,
framkvæmadastjóri Hrað-
frystihússins Gunnvarar í
Hnífsdal, en þetta stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki Vest-
fjarða fagnaði á dögunum 70
ára afmæli. Eins og sjá má á
meðfylgjandi yfirliti um starf-
semi fyrirtækisins er starf-
semin fjölbreytt og ekki órök-
rétt að orða það svo að blóð
fyrirtækisins kvíslist um æðar
alls Vestfjarðakjálkans því
launagreiðslur HG dreifast í
flest byggðarlög Vestfjarða.
Einar Valur leggur áherslu á
að hann líti á Vestfirði sem
eitt atvinnusvæði.
Togaravæðingin skilaði
stöðugleika
Þegar saga Hraðfrystihússins
Gunnvarar er skoðuð sést að
fyrirtækið er dæmigert fyrir
þá breytingu sem togaravæð
ingin hafði í för með sér á
sínum tíma. Með tilkomu tog
ara komst á stöðugleiki í hrá
efnisöfluninni og í stað þess
að hráefni vantaði til vinnslu
varð vandinn fremur sá að
fólk vantaði til að vinna hrá
efnið. Strax um 1960 fór fólk
að flytjast víðar af Vestfjörð
um í þéttbýlisstaðina við
Djúp til að vinna í fiski og
síðar komu tímabil erlenda
vinnuaflsins. Um skeið kom
talsvert af Áströlum í fisk
vinnsluna og á síðari árum
hafa margir Pólverjar sest að
eða unnið tímabundið í fisk
vinnslu HG.
„Sagan sýnir okkur líka
miklar breytingar vegna
tækniframfara í fiskvinnsl
unni. Nú þarf mun færra fólk
til að vinna sama magn af
fiski því afkastagetan er mun
meiri en áður. Verkunarað
ferðirnar hafa líka breyst mik
ið frá því sem var,“ segir Ein
ar Valur en með sameining
um, kaupum á skipum og
aflaheimildum segir hann að
háð hafi verið varnarbarátta
fyrir því að ekki hallaði enn
frekar á í sjávarútveginum á
Vestfjörðum.
„En fyrir vikið stöndum
við uppi með talsverðar
skuldir en við erum þó með
viðamikinn rekstur. Með öðr
um orðum þá væri enginn
rekstur hér í dag ef við hefð
um haldið áfram að vera með
einn togara og frystihús. Þá
væri þessi starfsemi aflögð.
Aflaheimildirnar hafa verið
skornar það mikið niður að
við urðum að bregaðist mjög
ákveðið við til verja starfsem
ina. En það verður líka að
Æ g I S V I Ð T A L
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG, flytur ávarp á 70 ára afmælishátíð fyrirtækisins fyrr í vetur.