Ægir - 01.02.2011, Síða 33
33
F I S K V I N N S L A
Þarna erum við að sérvinna
dýrasta hluta fiskflaksins á
nákvæmlega þann hátt sem
viðskiptavinurinn sækist eftir
og hann fær vöruna inn til
sín eins ferska og mögulegt
er. Kílóaverð í ferskum fiski
er það hæsta sem fæst fyrir
fiskafurðir í dag en þetta er
líka vinnsla sem krefst stöð
ugleika í afhendingu, gæðum
og öðrum þáttum,” segir
Ágúst Torfi en stærstur hluti
aflans sem unninn er í
vinnsluhúsinu á Akureyri
kemur af skipum Brims. Þetta
segir hann skipta miklu máli,
bæði til að tryggja stöðug
leika í vinnslunni en einnig til
að tryggja að samfella sé í
gæðum og meðferð afla allt
frá veiðislóð til enda virðis
keðjunnar, þ.e. að viðtakanda
erlendis. Hráefni er að hluta
einnig keypt af mörkuðum til
landvinnslunnar hjá Brimi en
Ágúst Torfi segir staðreynd
að of mikið sé um fisk á
mörkuðum sem ekki hafi
hlotið þá meðferð og kæl
ingu sem nauðsynleg er á
hráefni til jafn kröfuharðrar
vinnslu og ferskfiskvinnslan
er.
„Við flytjum ferka vöru
bæði með flugi og skipum og
þar ræður mestu hvar í Evr
ópu viðskiptavinurinn er og
hvernig hann vill fá vöruna til
sín. En við erum að fást við
mjög skamman líftíma á
ferskri vöru og því er lykilat
riði að meðhöndlunin sé
fyrsta flokks strax í byrjun og
alla leið. Ferksleikinn er það
atriði sem við erum að glíma
við alla daga í okkar starfi og
það er eilífðarverkefni að
reyna að gera sífellt betur í
þeim þætti,” segir Ágúst Torfi.
Að gera betur fyrir Ísland
Stöðug umræða er um fisk
veiðistjórnunina en Ágúst
Torfi segir hana hluta af
heildarleikreglum sem grein
inni eru settar hverju sinni.
Hvort sem um sé að ræða
reglur um veiðar eða vinnslu
á sjávarfangi þá sé mikilvæg
ast að þær miði alltaf að því
að auka verðmæti þess.
„Gróflega sagt var sjávarút
vegur að skapa um 210 millj
arða króna í tekjur árið 2009
og að mínu mati verða bæði
stjórnvöld og fyrirtækin í
greininni að vinna stöðugt að
því að hækka þessa tölu. Ég
held að augljóslega þurfi ekki
að hvetja fyrirtækin til þessar
ar hugsunar því þeirra hagur
er að auka verðmætin. Hins
vegar sjáum við dæmi um
breytingar á reglugerðum hjá
stjórnvöldum sem virðast
ekki hafa þetta markmið og
geta hreinlega orðið til að
draga úr verðmætasköpun
inni. Það er ekki gott fyrir Ís
land og má ekki gerast. Að
mínu mati hefur þróun í
landvinnslu, t.d. vinnsla í
verðmætar ferskar afurðir,
sýnt fram á að starfsfólki í
sjávarútvegi er umhugað um
að gera sem mest úr því sem
veiðist úr sameiginlegri auð
lind okkar í sjónum. Það er
landinu til hagsbóta, fólkinu
sem fær tekjur af vinnslunni
og fyrirtækjunum sem starfa í
greininni,” segir Ágúst Torfi
Hauksson, framkvæmdastjóri
landvinnslu Brims á Akureyri.
Grunnur að góðu hráefni er lagður með meðhöndlun úti á sjó. Ágúst Torfi segir
bersýnilega auðveldara að ná árangri á þessu sviði þegar veiðar og vinnsla séu á
sömu hendi.
Bitavinnsla er þungamiðjan í vinnslunni og bitarnir fara til viðskiptavina ýmist
frosnir eða ferskir.