Ægir

Volume

Ægir - 01.07.2011, Page 9

Ægir - 01.07.2011, Page 9
9 að „tryggt væri nauðsynlegt samræmi og jafnræði hvað varðar skilyrði um eignarhald eða skráningarstað og skrán- ingartíma báta/skipa sem til greina komu við úthlutun byggðakvóta“. Sérstakar reglur um úthlutun byggðakvóta í einstökum byggðarlögum Þrátt fyrir hin almennu skil- yrði sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur á hverju fiskveiðiári getur hann heimilað á grundvelli rök- studdra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á mál- efnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni byggðarlaga, sbr. 4. málsl. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006. Þar sem tilgangur með byggðakvótafyrirkomulaginu er að koma til móts við að- stæður í viðkomandi byggð- arlögum má líta svo á að ákvæðið byggi á þeirri hugs- un að það sé eðlilegt að gefa sveitarstjórnum kost á að koma að setningu sérstakra skilyrða sem eiga að gilda um úthlutun byggðakvóta. Þá í formi tillögugerðar, þar sem þær þekkja aðstæður vel í byggðarlögunum og í flestum tilvikum til þess fallnar að meta hvaða sérstöku skilyrði séu nauðsynleg til að unnt sé að úthluta byggðakvótanum þannig að hagsmunum byggðarlagsins sé gætt. Eftir að tillögur um sérstök skilyrði hafa borist frá sveitar- stjórnum ber samkvæmt 5. málsl. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 að birta þær með aðgengilegum hætti, svo sem á vefsíðu ráðuneytisins, eigi síðar en sjö dögum áður en tekin verður afstaða til þeirra. Í nefndaráliti sjávarútvegs- nefndar Alþingis er fylgdi frumvarpi því er varð að lög- um nr. 21/2007 um breytingu á lögum nr. 116/2006 kemur fram að þetta sé gert til að gefa þeim sem kunna að hafa ábendingar um efni tillagn- anna kost á að kynna sér þær og gera athugasemdir við þær.3) Í lokamálsl. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 er kveðið á um að fallist ráðherra á tillög- ur sveitarstjórna um sérstök skilyrði staðfesti ráðuneytið tillögurnar og auglýsi þær í B-deild Stjórnartíðinda. Sam- kvæmt þessu kemur það í hlut ráðherra að taka afstöðu til þess hvort fallast eigi á til- lögur sveitarstjórnar um sér- stök skilyrði. Ef ráðherrann fellst ekki á tillögurnar, gilda hin almennu skilyrði um út- hlutun byggðakvóta. Af þessu er ljóst að ráðherra hefur endanlegt ákvörðunarvald um hvort sett verði sérstök skilyrði um úthlutunina, enda ber hann stjórnarfarslega ábyrgð á henni, eins og leiðir af öðrum ákvæðum 10. gr. laga nr. 116/2006. Það er því hann sem leggur að lokum mat á hvort „málefnalegar“ og „staðbundnar“ ástæður teljist vera til staðar í einstöku byggðarlagi til að unnt sé að B Y G G Ð A K V Ó T I Hér birtist síðasta grein af þremur um byggðakvóta en höfundur þeirra er Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. Greinarnar eru byggðar á yfirlitsgrein um þetta efni sem Ottó Björgvin skrifaði í tímarit lögfræðinga sem út kom í nóvember 2010.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.