Ægir - 01.07.2011, Blaðsíða 14
14
V O P N A F J Ö R Ð U R
„Skammturinn sem við tökum
er 400-450 tonn í túr og við
tökum þetta í litlum holum,
ekki stærri en 150 tonn.
Þannig náum við að kæla
aflann nógu hratt niður, sem
er höfuðatriði til að þessi fisk-
ur verði vinnsluhæfur í fryst-
ingu og manneldi. Þetta er því
nokkuð sérstakur veiðiskapur
og frábrugðinn því sem við
eigum að venjast á svona
skipi,“ segir Arnþór Hjörleifs-
son, skipstjóri á HB Granda-
skipinu Lundey. Arnþór og
áhöfn hans hafa verið að í allt
sumar og lengstum vertíðar
sáu Lundey og Ingunn vinnsl-
unni á Vopnafirði alfarið fyrir
hráefni en á síðari hluta ver-
tíðarinnar bættist síðan Faxi
við. Arnþór segist kunna þess-
um veiðiskap ágætlega en
margt sé á huldu um háttalag
makrílsins.
„Framan af vertíðinni var
þetta þannig að það var veiði
á hvaða tíma sólarhringsins
sem er. Nú á síðari hluta ver-
tíðarinnar gefur makríllinn sig
eingöngu á nóttunni og hann
er alveg uppi í yfirborðinu
þannig að við drögum flot-
trollið alltaf með höfuðlínuna
uppúr. Þetta eru stutt hol og
við höfum farið allt niður í
klukkutíma í senn,“ segir
Arnþór og bætir við að á
sama tíma og svona hagar til
á miðunum fyrir austan land-
ið þá veiði Færeyingar mak-
rílinn norður af eyjunum og
geti togað jafnt að nóttu sem
degi.
„Keppikefli okkar er að ná
hreinum makríl, þ.e. ekki síld
eða kolmunna sem meðafla.
Það hefur gengið ágætlega
eftir því sem liðið hefur á
vertíðina. Bæði skiptir þetta
miklu máli fyrir vinnsluhrað-
ann en líka hitt að ef síld er í
bland þá verða gæðin á afl-
anum í heild lakari. Þess
vegna er á allan hátt best að
ná hreinum afla.“
Sjávarhitinn ræður hegðuninni
Veiðisvæðið sem skipin hafa
verið á í nær allt sumar er
Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey:
Keppikefli að taka lítil hol!
Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri (t.v.) og Magnús Róbertsson, vinnslustjóri HB Granda á Vopnafirði, með Lundey í baksýn. Aflanum er dælt úr lestunum beint inn að flokk-
urunum í vinnslunni.
Makríll er eftirsótt og þekkt neysluvara víða um heim.