Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2011, Blaðsíða 21

Ægir - 01.07.2011, Blaðsíða 21
21 K V Ó T I N N 2 0 1 1 - 2 0 1 2 Teg: K 2.21 110 bör max 360 ltr/klst Teg: K 5.700 140 bör max 460 ltr/klst Teg: K 6.300 150 bör max 550 ltr/klst Teg: K 3.500 120 bör max 460 ltr/klst Háþrýstidælur Þegar gerðar eru hámarkskröfur Teg: K 7.400 160 bör max 600 ltr/klst Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð 50 stærstu með 84% 50 stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 84% af því aflamarki sem úthlutað er, en alls fá 502 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú. Sé litið til þeirra 10 sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,4% af heildinni. Næst kemur Samherji með 6,22% og þá Þorbjörn hf. með 5,58%. Helsta breytingin frá því í fyrra er sú að Brim hf. sem fékk næstmestu úthlutað þá, er nú í sjöunda sæti með 3,88% af heildinni, samanborið við 6,87% í fyrra. Út- gerðarfélag Akureyringa sem ekki var á lista í fyrra fær níunda mest úthlutað núna eða 2,92% af heildinni. Kalbakur á toppnum Talið í þorskígildistonnum er Akureyrartogarinn Kaldbakur EA nú sá togari flotans sem hefur að baki sér mestu aflaheimildirn- ar. Úthlutað á Kaldabak eru 8200 tonn en næstur honum kem- ur Guðmundur í Nesi RE með 6300 þorskígildistonn og þá Júl- íus Geirmundsson ÍS með 5300 þíg. Listinn yfir togarana 10 er þannig: Þ.íg Kaldbakur EA Akureyri 8.204.182 Guðmundur í Nesi RE Reykjavík 6.319.406 Júlíus Geirmundsson ÍS Ísafjörður 5.308.262 Björgúlfur EA Dalvík 5.215.366 Björgvin EA Dalvík 4.764.528 Kleifaberg ÓF Ólafsfjörður 4.579.446 Ottó N. Þorláksson RE Reykjavík 4.401.118 Arnar HU Skagaströnd 4.343.470 Þerney RE Reykjavík 4.302.964 Höfrungur III AK Akranes 4.293.360 Norðantogarar með mesta þorskinn Þegar togararlistinn er skoðaður með tilliti til úthlutaðra veiði- heimilda í þorski eru Dalvíkurtogararnir Björgvin og Björgúlfur sem fyrr í efstu tveimur sætum topplistans. Togarar á Norður- landi eru raunar áberandi á listanum, samtals sjö af þessum tíu. Þar af þrír skráðir í Ólafsfirði, tveir á Dalvík, einn á Akureyri og einn á Sauðárkróki. Listinn yfir 10 hæstu togarana í þorski er þannig: Tonn Björgvin EA Dalvík 3.880.115 Björgúlfur EA Dalvík 3.627.707 Kleifaberg ÓF Ólafsfjörður 3.227.776 Júlíus Geirmundsson ÍS Ísafjörður 2.163.509 Mánaberg ÓF Ólafsfjörður 2.097.929 Guðmundur í Nesi RE Reykjavík 2.075.919 Páll Pálsson ÍS Hnífsdalur 2.073.624 Kaldbakur EA Akureyri 1.756.785 Sigurbjörg ÓF Ólafsfjörður 1.619.076 Örvar SK Sauðárkrókur 1.504.020 Minna á Skagaströnd - meira á Sauðárkróki og Akureyri Þrjár heimahafnir skera sig úr með að skip sem þeim tilheyra fá töluvert mikið meira úthlutað í þorskígildum talið en þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 11,35% af heildinni samanborið við 14,3% í fyrra. Breytingin felst í minna magni sem úthlutað er til skut- togara þaðan. Næstmest fer til Vestmannaeyja eða 10,6% og þá til skipa með heimahöfn í Grindavík, eða 9,5% af heildinni. Er það í báðum tilvikum svipað hlutfall og í fyrra. Hlutfall sem fer til skipa hjá hverri höfn fyrir sig breytist í flestum tilvikum eitthvað og má rekja það til breytinga á þorskígildisstuðlum sem og tilfærslu aflahlutdeilda á milli skipa með ólíka heimahöfn. Ekki verða allar þær breytingar raktar hér þó svo að þær kunni að hafa mikil áhrif, en benda má á mikla breytingu hjá skipum með heimahöfn á Skagaströnd: Á fyrra fiskveiðiári var 3,19% af heildinni úthlutað þangað saman- borið við 1,64% ár og er breytingin í magni til skuttogara á staðnum. Á móti kemur að 1,9% aukning er á magni til skut- togara á Sauðarárkróki. Um 2,6% aukning er í þorskígildis- tonnum til skipa á Akureyri og er það mest til skuttogara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.