Ægir - 01.07.2011, Blaðsíða 15
15
V O P N A F J Ö R Ð U R
Litladýpi og Hvalbakshallið.
Arnþór segir að svo virðist
sem þarna safnist makríllinn
saman og auðveldast sé að
ná hreinum afla á þessu
svæði.
„Hvers vegna þetta er
svona er ekki gott að átta sig
á. Ef við förum út fyrir þetta
svæði sjáum við miklu meiri
blöndun og mun minna af
makríl. Og stundum er lítið á
svæðinu en svo allt í einu eru
þéttar torfur. Í fyrra sáum við
talsvert aðra hegðun á mak-
rílnum. Hann var veiðanlegur
á miklu stærra svæði úti fyrir
Austurlandi og það sem helst
getur skýrt það er sjávarhit-
inn. Hann er mun lægri nú í
sumar og við sjáum líka að á
veiðisvæðinu kemur makríll-
inn upp í hitaskilin í sjónum.
Samkvæmt því sem við heyr-
um af makríl fyrir vestan
landið þá virðist hann birtast
þar sem hitastig er hærra
þannig að hiti sjávarins ræður
greinilega miklu um hvernig
þessi fiskur hegðar sér,“ segir
Arnþór en sjávarhiti á veiði-
svæði makrílsins eystra hefur
verið 8-10 gráður nú síðsum-
ars. Strax og komið er norður
með Austfjörðum hefur sjáv-
arhitinn farið niður fyrir 6
gráður. Sem telst mjög kaldur
sjór á þessum árstíma.
„Á veiðisvæðinu eru sterk-
ir straumar og það kann líka
að skýra hvers vegna við
sjáum makrílinn safnast
svona mikið saman þarna.
Manni dettur helst í hug að
þetta safnist svona saman af
grunnunum en það er ekki
gott að ráða í ferlið.“
Kælt niður í -2 gráður
Eins og Arnþór nefndi fyrr er
lykilatriði að kæla aflann
hratt og vel niður. Lundey er
búin RSW sjókælikerfi og
með því er kældur sjór í lest-
um á leiðinni á miðin niður
fyrir núll gráður. Aflinn fer
þannig beint niður í vel kald-
an sjó og er makríll og sjór
nokkurn veginn til helminga í
lestinni. Kerfið er keyrt áfram
eftir að aflinn er kominn í
lestina og þegar -1,5 gráðum
er náð er bætt salti í lestarnar
og kerfið keyrt áfram niður í
-2 gráður. Til að þessi ferill
gangi hratt fyrir sig skiptir
miklu að taka ekki stóra
skammta í hverju holi.
„Við reiknum með að
klára kvótann í makrílnum
núna í september og þá tekur
síldin við fram eftir hausti.
Miðað við það sem við heyr-
um frá bátum sem hafa verið
að fiska síld að undanförnu
þá er hana að finna hér úti
fyrir Austfjörðunum þannig
að ég reikna ekki með öðru
en sú veiði verði eins og ætl-
að er. En makríllinn hefur
komið vel út á vertíðinni, líkt
og í fyrra og góð útkoma á
þessum veiðiskap,“ segir Arn-
þór.
Löndun tekur um sólarhring en aflanum er dælt jafn óðum inn í húsið. Með öðrum orðum er farmurinn kominn í frost og pakkningar þegar skipið heldur á veiðar á ný.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
www.isfell.is
Allar gerðir bindivéla
Stál- og plastbönd
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n