Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.2011, Side 10

Ægir - 01.07.2011, Side 10
10 heimila setningu sérreglna sem víkja frá almennum skil- yrðum fyrir úthlutun byggða- kvóta. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 6. maí 2010 í máli nr. 5197/2007 er fjallað nánar um þetta mat. Úthlutun byggðakvóta Samkvæmt 1. málsl. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 ann- ast Fiskistofa úthlutun afla- heimilda, sem koma í hlut einstakra byggðarlaga, til fiskiskipa. Fyrir gildistöku laga nr. 21/2007 um breyt- ingu á lögum nr. 116/2006 sáu sveitarfélög um að út- hluta byggðakvóta til fiski- skipa. Í 2. málsl. 8. mgr. 10. gr. laganna kemur fram að ákvarðanir Fiskistofu um út- hlutun aflaheimilda sam- kvæmt greininni sé heimilt að kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Samkvæmt þessu ákvæði er unnt að kæra ákvörðun Fiski- stofu um úthlutun byggða- kvóta til fiskiskipa til ráðu- neytisins sem er æðra stjórn- vald gagnvart stofnuninni. Hér er um sérstaka kæru- heimild að ræða þar sem hin almenna kæruheimild er að finna í 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 3. málsl. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 er mælt fyr- ir um að „kærufrestur sé tvær vikur“ frá tilkynningu Fiski- stofu um úthlutun eða höfn- un umsóknar um úthlutun og skuli úthlutun ekki fara fram fyrr en að þeim fresti liðnum. Þetta er stuttur kærufrestur miðað við þann almenna kærufrest sem mælt er fyrir um í 27. gr. stjórnsýslulaga nr 37/1993 en þar kemur fram að kæra skuli borin fram inn- an þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun nema lög mæli á annan veg. Í 4. málsl. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 er kveðið á um að ráðuneytið skuli leggja úrskurð á kærur innan tveggja mánaða. Hér er um lögbundinn afgreiðslufrest að ræða.4) Matskenndi afgreiðslu- fresturinn í 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á því ekki við en þar kemur fram að ákvarðanir í málum skuli teknar svo fljótt sem unnt er. Þessi tveggja mánaða afgreiðslufrestur er fortaks- laus og er ekki heimild í lög- um nr. 116/2006 til að víkja frá honum. Framkvæmd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á úthlutun byggðakvóta hefur á síðustu árum ekki verið í samræmi við ofangreindan afgreiðslufrest. Í tilefni af at- hugunum umboðsmanns Al- þingis á árinu 2009 á nokkr- um málum sem lutu að út- hlutun byggðakvóta var upp- lýst í skýringum ráðuneytisins til umboðsmanns að því hefðu borist yfir 60 stjórn- sýslukærur vegna úthlutunar- innar fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 sem vörðuðu um- sóknir um úthlutun byggða- kvóta til á níunda tugar skipa. Þótt það hafi verið raunin að ráðuneytið hafi vegna mikilla anna sem staf- aði af fjölda stjórnsýslukæra ekki afgreitt einstök kærumál í samræmi við afgreiðslufrest- inn þá breytir það ekki því að löggjafinn hefur ákveðið að afgreiðslufresturinn sé tveir mánuðir. Þennan vilja löggjafans verður ráðuneytið að virða í störfum sínum, sbr. álit umboðsmanns Alþingis frá 6. maí 2010 í máli nr. 5197/2007. Ofangreindur afgreiðslu- frestur er ekki langur. Í kjöl- far þess að ráðuneytinu berst stjórnsýslukæra þarf það að jafnaði að afla umsagnar frá Fiskistofu og eftir atvikum frá öðrum stofnunum og/eða að- ilum. Síðan þarf ráðuneytið almennt að veita kæranda kost á að tjá sig um efni um- sagnarinnar. Þetta ferli getur tekið nokkrar vikur. Með þetta í huga má velta fyrir sér hvort tveggja mánaða af- greiðslufrestur sé of stuttur tími til að kveða upp úr- skurði í kærumálum. Á það ekki hvað síst við þegar horft er til þeirrar framkvæmdar sem hefur verið hjá ráðuneyt- inu og vikið er að hér að framan varðandi úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiár- ið 2006/2007. Sjónarmið um réttaröryggi borgaranna og lögaðila kunna að mæla gegn því að lengja afgreiðslufrest- inn, t.d úr tveimur í þrjá eða fjóra mánuði. Hins vegar verður að hafa í huga að það er grundvallaratriði í réttarríki að það sé samræmi milli stjórnsýsluframkvæmdar og efni lagareglu. Tilvísanir: 1. Miðað við 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 440/2007, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga, sem gilti fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 og 1. mgr. 1. gr. reglugerða nr. 637/2008, 551/2009 og 83/2010 um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárunum 2007/2008, 2008/2009 og 2009/2010. 2. Alþt. 2006-2007, B-deild, dálk. 4479- 4480. Í kafla IV.3 í áliti umboðsmanns Al- þingis frá 7. desember 2009 í máli nr. 5146/2007 var horft til þessara sjónar- miða úr flutningsræðu sjávarútvegsráð- herra við túlkun á inntaki hugtakanna „byggðarlag“ og „sveitarfélag“. 3. Alþt. 2006-2007, A-deild, bls. 6303. 4. Páll Hreinsson: Stjórnsýslulögin-skýringar- rit. Reykjavík 1994, bls. 97, og Páll Hreinsson: „Málshraðaregla stjórnsýslu- laga“. Úlfljótur, tímarit laganema. 59. árg. 3. tbl. 2006, bls. 431. B Y G G Ð A K V Ó T I SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Gufudælur Afkastamiklir vinnuþjarkar HDS 13/24 PE Cage � Þrýstingur: 60-240 bör � Vatnsmagn: 680-1250 ltr/klstHDS 79 8 C Eco � Þrýstingur: 30-180 bör � Vatnsmagn: 350-750 ltr/klst HDS 895 S � Þrýstingur: 30-180 bör � Vatnsmagn: 470-1000 ltr/klst

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.