Ægir - 01.07.2011, Síða 12
12
V O P N A F J Ö R Ð U R
leik er allur farmurinn kom-
inn í pakkningar og næsta
löndun tekur við.
Segja má að vinnslan á
makrílnum sé tvíþætt hjá HB
Granda á Vopnafirði. Annars
vegar er hann hausaður og
slógdreginn og frystur þannig
í öskjum. Fyrsta stig vinnsl-
unnar er flokkun þar sem
síld er flokkuð frá og sömu-
leiðis er stærri makríllinn, allt
upp undir kíló að þyngd,
flokkaður frá og heilfrystur í
blokkum í áðurnefndum
blástursfrysti. Þann búnað
setti Kælismiðjan Frost upp í
húsinu en vinnslusalurinn er
sá sami og alla jafna er not-
aður í hrognavinnslu á
loðnuvertíðinni. Blástursfryst-
ing á heilum makríl er vel
þekkt hjá reynslumeiri þjóð-
um í makríl, samanber ná-
grönnum okkar í Noregi og
Færeyjum en þetta er afurð
sem mjög gott verð fæst fyrir
og er eftirsótt. Japanir sækjast
til að mynda mjög eftir blást-
ursfrysta makrílnum enda var
fulltrúi japanskra kaupenda
að fylgjast með vinnslunni
þegar Ægir heimsótti upp-
sjávarfrystihúsið á Vopnafirði
á dögunum.
„Við höfum náð góðum
árangri með blástursfrysta
makrílinn en verðmætasta af-
urðin er nú undir lok vertíð-
arinnar þegar við erum lausir
við átuna úr fiskinum og fi-
tuprósentan er orðin hærri.
Blokkirnar eru 18 tíma í
blástursfrystinum en með
þeim búnaði sem við höfum
núna getum við framleitt um
rúm 30 tonn á sólarhring af
blástursfrystum makríl,“ segir
Magnús en þessi hluti vinnsl-
unnar er nokkuð mannfrekur
samanborið við aðra hluta
uppsjávarfrystihússins á
Vopnafirði. Hér er á ferðinni
eitt af fullkomnstu frystihús-
um landsins, sjálfvirkni er
mikil hvert sem litið er og
vandað til hráefnismeðhöndl-
unar á öllum stigum vinnsl-
unnar. Magnús segir með-
höndlunina á makrílnum,
þ.e. kælingu aflans strax úti á
sjó, leggja grunninn að því
að unnt sé að frysta svo hátt
hlutfall sem raun ber vitni.
Kælingin ræður úrslitum
„Stærsta hlutann úr sumrinu
hafa uppsjávarskipin Lundey
og Ingunn séð húsinu fyrir
hráefni og nú á síðari hluta
vertíðarinnar hefur Faxi bæst
við. Skipin eru búin RSW sjó-
kælikerfum sem keyra aflann
strax niður í um -1 gráðu.
Með því að taka lítil hol og
koma með litla farma í land
tekst okkur að halda hitastig-
inu niðri alla leið og þetta
hámarkar gæðin á aflanum til
vinnslu. Þetta er mjög snúið
þegar mikil áta er í makríln-
um framan af sumri en með
réttum vinnubrögðum strax
við veiðarnar er þetta ger-
legt,” segir Magnús.
Eins og áður segir hafa
um og yfir 120 manns unnið
í húsi HB Granda í sumar.
Vinnslan er allan sólarhring-
inn og stærstur hluti starfs-
mannahópsins vinnur á 12
tíma vöktum. Magnús segir
það hafa verið mikið lán
hversu vel hafi tekist að
manna húsið í sumar en auk
heimamanna hafa margir
unglingar brottfluttra Vopn-
firðinga unnið í húsinu.
„Með tilkomu makrílsins
erum við að fá enn betri nýt-
ingu á húsið en reiknað var
með á sínum tíma. Enda sáu
menn ekki fyrir að makríll
yrði í svo miklu veiðanlegu
magni hér í lögsögunni eins
og verið hefur. Nú þegar
makrílvinnslunni lýkur um
mánaðamótin ágúst - sept.
tekur við síldarvinnsla. Eftir
áramót verður síðan loðnu-
frysting og hrognavinnsla
undir vorið áður en makríll-
inn byrjar á nýjan leik. Í sum-
ar hefur uppsjávarhúsið á
Vopnafirði fryst hátt í 11000
tonn af síld og makríl og
munar um minna í fram-
leiðslu ársins.
Markaðir víða um heim
Kaupendur á frystum makríl
Mjög hátt hlutfall makrílafla HB-Granda í sumar hefur farið í frystingu. Í vinnslusal fyrir blástursfrystar afurðir. Í blástursfrystingu fer stærsti makríllinn.
Þorgrímur Kjartansson, gæðastjóri hjá HB Granda á Vopnafirði, við kælikerið í upphafi vinnsluferilsins. Héðan fer makríllinn
inn á flokkara.