Ægir - 01.07.2011, Qupperneq 16
16
B Ú S V Æ Ð A R A N N S Ó K N I R
Starfsmenn hjá Hafrann-
sóknastofnuninni hafa undan-
farin ár rannsakað botngerðir,
búsvæði og botndýr á hafs-
botni. Neðansjávarmyndavélar
voru notaðar við rannsóknirn-
ar í sumar en markmiðið var
að kortleggja stærstu botn-
dýrategundir og botngerðir á
svæðum sem þegar hafa verið
mæld með fjölgeislabúnaði.
Þar sem myndavélar eru not-
aðar við rannsóknirnar er eng-
in hætta á að viðkvæmar teg-
undir eða búsvæði skemmist
auk þess sem hægt er að
fylgjast með atferli sjávardýra.
„Við höfum annars vegar
verið að reyna að finna og
kortleggja tegundir sem eru
viðkvæmar, þarfnast vernd-
unar eða eru sjaldgæfar og
þar höfum við undanfarin ár
meðal annars lagt áherslu á
kaldsjávarkóral,“ segir Stein-
unn Hilma Ólafsdóttir sem
var leiðangursstjóri í síðustu
ferð. „Við höfum auk þess
verið að kortleggja almennt
lífríki á hafsbotninum og
samspil þess við setlagið eða
botnlagið. Í leiðangrinum í
sumar reyndum við að velja
rannóknasvæði sem voru
áhugaverð m.a. út frá ýmsum
jarðfræðilegum þáttum sem
hafa komið fram við fjöl-
geislamælingar.“
Kaldsjávarkóralsvæði
Lögð hefur verið sérstök
áhersla á kaldsjávarkóral-
svæði í þremur undanförnum
leiðöngrum - þau hafa verið
kortlögð, umfang þeirra met-
ið og út frá því hafa nokkur
svæði verið friðuð. Þessi
svæði eru öll við land-
grunnskantinn úti fyrir Suður-
og Suðausturlandi.
Í sumar var hins vegar far-
ið vestur af landinu - í Kollu-
ál, Látragrunn, Víkurál og á
„Hrygginn“ úti fyrir Látra-
grunni. „Skoðaðar voru botn-
gerðir og búsvæði á mismun-
andi svæðum sem höfðu áð-
ur verið kortlögð með fjöl-
geislamælingum. Við vildum
skoða með myndavélunum
hvernig lífríkið er á þessum
slóðum og við völdum
ákveðin svæði út frá botnlag-
inu sem við vildum skoða.
Við mynduðum neðansjávar-
hryggi í Kolluál og nokkra
staði í Víkurál sem er mikil
veiðislóð; sagt hefur verið að
þar var áður mikill kórall en
við sáum engin ummerki um
slíkt. Einnig mynduðum við
úti á „Hryggnum“ svokallaða
en hann er talinn vera jökul-
garður eftir ísaldarjökul.
Hryggurinn liggur innan frið-
aðs svæðis fyrir smákarfa og
því áhugavert að skoða hann,
bæði vegna þess að þar er
búsvæði smákarfa og einnig
þar sem svæðið hefur verið
friðað alllengi.“
Mismunandi eftir botngerðum
Enn er verið að vinna úr
Hafrannsóknastofnunin hefur í sumar rannsakað botngerðir
og búsvæði á hafsbotninum við landið:
Fjölbreytileiki lífríkis er mismun-
andi eftir botngerðum
Steinunn Hilma Ólafsdóttir, leiðangursstjóri og Páll Arnar Þorsteinsson, tæknimaður, fylgjast með myndefninu á skjá. Páll og Hjalti Karlsson stjórnuðu myndavélagrind-
inni.