Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 10

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 10
10 A Ð A L F U N d U R L Í Ú „Íslenskur sjávarútvegur mun skipta sköpum í efnahagslegri viðreisn þjóðarinnar. Því er nauðsynlegt að hverfa án taf- ar frá upptökuleiðinni. Raun- sæi og heilbrigð skynsemi verða að ráða för,“ sagði Ad- olf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra út- vegsmanna, í setningarræðu sinni á aðalfundi LÍÚ á dögun- um. Að venju komu útgerðar- menn af landinu öllu til fund- arins, þar sem fjölmörg mál bar á góma. Formaðurinn gerði fyrningarleið kvótakerf- isins, skuldamál sjávarútveg- ins og aðild ESB sérstaklega að umfjöllunarefni. Upptaka veiðiheimilda, eins og kveðið er á um í stefnu- skrá ríkisstjórnarflokkanna, án þess að afleiðingar þess séu kannaðar segir Adolf vera óá- byrg vinnubrögð. Hann telur raunar að ef hugmyndirnar nái fram að ganga muni þær valda fjöldagjaldþrotum í sjáv- arútvegi og þar með koll- steypu í efnahagslífinu. Ekki hafi verið hlustað á rök við- skiptabankanna sem hafi bent að á upptökuleiðin muni ekki aðeins setja sjávarútvegsfyrir- tækin í þrot, heldur mjög lík- lega leiða til gjaldþrots bank- anna sjálfra. Tapið vék fyrir arðsemi „Eftir að kvótakerfinu var komið á og sérstaklega með tilkomu frjálsa framsalsins 1991 tók við mikið umbylt- ingarskeið í íslenskum sjávar- útvegi. Viðvarandi taprekstur vék fyrir hagræðingu og arð- semi. Það er á grundvelli þessarar umbyltingar að stærstur hluti íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja mun standa af sér þær hamfarir sem á þeim hafa dunið á undan- förnu,“ segir Adolf. Í lok árs 2007 voru skuldir íslensk sjávarútvegs 324 millj- arðar króna og nú eftir geng- ishrun krónunnar eru þær um 550 milljarðar króna. Adolf segir vissulega óumdeilt að skuldirnar séu miklar en þær fái þó á sig annan blæ þegar þær séu settar í samhengi við 15.685 milljarða heildarskuldir íslenskra fyrirtækja í lok árs- ins 2007. Valdið yrði framselt Um aðildarumsókn ríkisstjórn- arinnar að ESB ítrekaði Adolf Sjávarútvegurinn skiptir sköpum í viðreisn þjóðarinnar - segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ Heilbrigð skynsemi ráði för, segir Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ. Útgerðarmenn bera saman bækur sínar. Eiríkur Tómasson í Grindavík (t.v.) og Hjálmar Kristjánsson á Rifi.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.