Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 29

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 29
29 H A F N A M Á L Talsverðar framkvæmdir hafa staðið yfir eða standa yfir í höfnum á Norðausturlandi nú í haust, samkvæmt upplýsing- um Siglingastofnunar. Einna stærstu verkefnin eru á Dalvík og í Grímsey. Í Ólafsfirði var unnið við að þrengja innsiglingaropið í vesturhöfnina. Rifnar voru gamlar ónýtar staurakistur og byggðir grjótgarðar í staðinn. Tilgangurinn var að draga úr hreyfingu við stálþil og í smá- bátahöfn. Verktaki var Árni Helgason ehf. Ólafsfirði. Um 13.200 m³ af grjóti og kjarna fóru í verkið og telja heima- menn það vera vel heppnað. Að auki var unnið við tjóna- viðgerð á vestur brimvarnar- garðinum og fóru um 1.600m³ í þá viðgerð. Á Dalvík var í október 2008 boðin út aðstaða fyrir Grímseyjarferjuna Sæfara. Um var að ræða 75 m stálþils- bakka með skutaðstöðu fyrir skipið. Smábátagarðurinn var breikkaður um 25m og var fyllingarefnið fengið úr dýpkuninni við þilið og úr Hálseyrarnámum alls um 6.200m³. Einnig var byggt ljósamasturs og vatnshús. Verktaki er Ísar ehf. í Hafnar- firði en tilboð þeirra hljóðaði upp á 74% af kostnaðaráætl- un. Verkið hefur gengið vel. Gert er ráð fyrir að bjóða út þekju, lagnir og yfirborðsfrá- gang vorið 2010 en í vetur er ráðgert er einnig að endur- byggja hluta af Suðurgarðin- um. Á Árskógssandi hefur verið unnið að sjóvörnum neðan Ægisgötu, norðan hafnarinnar og við Brimnes. Alls fóru í verkið 6.900m³ og var verk- taki Dalverk ehf. á Dalvík. Í Hrísey hefur verið unnið að sjóvörnum norðan hafnar- innar og við Varir sunnan til á eyjunni. Í verkið fóru um 5.000 m³ af grjóti og sá Dal- verk ehf. um verkið. Á Akureyri var unnið við að steypa kant á nýrekið þil við Oddeyrarbryggju en hún var lengd um 65 m árið 2008. Verkið vann Sigurður Björg- vin Björnsson verktaki Akur- eyri skv. útboði. Nú er verið að vinna við lokafrágang á Tangabryggju á Akureyri. Steypt var þekja á nýja þilið alls 2.600 m³ og verið er að ganga frá vatns og rafmagnslögnum. Verkið var unnið af Kötlu ehf. á Árskógs- strönd en Rafeyri ehf. á Akur- eyri sér um rafmagnið. Tanga- bryggja er nú orðin um 180 m löng og við hana geta stærstu skemmtiferðaskip leg- ið. Norðurgarðurinn í Grímseyjar- höfn færður Í Grímsey er nýlokið við færslu og lengingu á grjót- görðum. Norðurgarðurinn var tekinn upp og færður um 40 m til að mynda aukið bryggjupláss en bátafloti Grímseyinga hefur verið end- urnýjaður verulega með stærri bátum. Dýpka þurfti með sprengingum við nýja við- legusvæðið og voru um 2.400 m³ losaðir. Suðurgarðurinn var lengdur og á endann var sett tunna úr harðviði sem fyllt var með grjóti. Verkinu seinkaði töluvert því engin tilboð bárust í það í opnu út- boði en var loks unnið af heimamönnum og tókst vel. Verktaki var Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnasonar ehf. í Grímsey. Nú er einnig hafin vinna við lengingu harðviðar- bryggju og byggingu skutað- stöðu fyrir ferjuna en þar var lægstbjóðandi Guðmundur Guðlaugsson verktaki á Dal- vík. Í Langanesbyggð á Þórs- höfn var boðin út bygging um 180 m stálþilsbakka og var þilið rekið utan um gömlu hafskipabryggjuna sem var nánast ónýt. Áður hafði verið unnið við dýpkun með sprengingum og var áætlað dýpi um 8,5 m. Sprengja þurfti að auki skurð fyrir þilið og fjarlægja fremsta hlutann af gömlu bryggjunni. Verktaki við dýpkun, bryggjurif og skurðsprengingu var Hagtak ehf. Verktaki við þilbygging- una er Íslenska gámafélagið ehf. og hefur verkið gengið þokkalega en rekstur í sprengdan skurð er oft taf- samur. Nú er búið að reka allt þilið, steypa á það kant- bita og verið er að fylla í það, en ólokið er byggingu mast- urshúss og lagning ídráttar- lagna. Á Húsavík hefur verið boðin út vinna við sjóvarnir og samið við Norðurtak ehf. Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir að endurbyggja um 300 m af vörninni undir Bökkum og að í það fari um 5500 m³ af grjóti. Vinna við verkið er að hefjast þessa dagana. Talsverðar framkvæmdir á Norðausturlandi Nýi ferjugarðurinn í Dalvíkurhöfn. Mynd: Vefur Siglingastofnunar Framkvæmdir í Grímseyjarhöfn. Mynd: Vefur Siglingastofnunar

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.