Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 12

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 12
12 A Ð A L F U N d U R L Í Ú Árni Bergmann Pétursson, hugvitsmaður og forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, fékk á aðal- fundi LÍÚ umhverfisverðlaun samtakanna fyrir svonefnda rafbjögunarsíu. Notkun síunn- ar um borð í fiskiskipum hefur ekki aðeins kveðið niður trufl- anir í rafkerfum þeirra heldur einnig leitt til allt að 10% olíusparnaðar með tilheyrandi minnkun útblásturs. Það stað- festa mælingar í skipum Þor- bjarnar hf. í Grindavík, þar sem þessi búnaður hefur verið settur upp. Iðnlánasjóður lagði Árna og fyrirtæki hans lið í upphafi og veitti víkjandi lán til þessa þróunarverkefnis. Nýsköpun- arsjóður tók síðar við hlut- verki Iðnlánasjóðs og varð til þess að ýta rannsóknarverk- efninu endanlega úr vör. Sjálft verkefnið tók hins vegar mun lengri tíma en reiknað var með enda „margslungin stærðfræðiþraut,“ eins og hugvitsmaðurinn sjálfur kemst að orði. Afhending Umhverfisverð- launa LÍÚ er orðinn fastur þáttur í störfum aðalfundar samtakanna. Jón Bjarnason afhenti Árna Bergmann verð- launin sem nú voru afhent í ellefta sinn. Umhverfisverðlaun LÍÚ afhent í ellefta sinn: Margslungin stærðfræðiþraut - segir Árni Bergmann Pétursson, forstjóri Rafs, um rafbjögunarsíuna Árni Bergmann tekur við umhverfisverðlaununum úr hendi sjávarútvegsráðherra.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.