Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 24

Ægir - 01.09.2009, Blaðsíða 24
24 „Við erum að bjóða í fyrsta skipti upp á lausnir í viðgerð- um á skipum neðansjávar sem hér hafa ekki verið þekktar áður. Þetta þýðir að útgerðir geta sparað sér bæði tíma og verulegan kostnað vegna slipptöku á skipum og í mörg- um tilfellum er um að ræða skip sem eru það stór að upp- tökumannvirki eru ekki til fyrir þau hér á landi eða þá að tímaramminn er of þröngur til að hagkvæmt sé að taka skip- ið upp. Við getum skilgreint okkur sem neðansjávarvél- smiðju, enda erum við mennt- aðir vélstjórar og járnsmiðir, auk þess að vera kafarar. Við vinnum jafnframt mikið innan skipsins vegna skrokk- eða lagnaviðgerða,“ segir Kjartan Hauksson hjá köfunarþjónust- unni Djúptækni ehf. Kjartan hefur starfað við köfunarþjón- ustu frá árinu 1976 og jafn- framt starfað sem járnsmiður og vélstjóri til fjölda ára og var verkstjóri í einni stærstu vélsmiðju landsins í nokkur ár. Hann segir að með þessari þjónustu, sem er í samstarfi við belgíska fyrirtækið Hydrex, sé köfunarþjónusta í raun færð upp á nýtt plan. Margt sé nú gerlegt neðansjávar sem þótti ógerlegt áður. „Þetta belgíska fyrirtæki er það fremsta í heiminum í dag í neðansjávarviðgerðartækni en þeir hafa þróað aðferðir síðustu 30 ár til að lágmarka upptöku skipa vegna við- gerða. Þannig erum við með svokallaðar þurrkvíar sem við festum utan á skipin, t.d. vegna skrokkviðgerða eða lagna innan skips ásamt því að skipta um öxulþétti á skrúfuásum. Þessar kvíar sjó- tæmum við síðan og vinnum þannig við eins góðar að- stæður og unnt er, miðað við að vera neðansjávar,“ segir Kjartan en viðgerðarþjónusta Djúptækni/Hydrex er viður- kennd af öllum helstu skipa- flokkunarfélögum heims. Stórar viðgerðir framkvæmdar neðansjávar Aðspurður segir Kjartan að þessi þjónusta hafi oft sparað útgerðum kostnaðarsamar taf- Kjartan Hauksson í fullum skrúða. Þ J Ó N U S T A Djúptækni býður nýjungar í viðgerðum skipa: Viðgerðarverkstæði ofan sem neðan sjávar!

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.