Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2009, Síða 13

Ægir - 01.09.2009, Síða 13
13 A Ð A L F U N d U R L Í Ú „Mín sýn er að vel rekin fyrir- tæki í sjávarútvegi af öllum stærðum og gerðum sem taka á sama tíma mið af hag- kvæmni, virðingu fyrir um- hverfinu, fjölbreytni, samvinnu og samfélagslegri ábyrgð, séu það sem koma skal,“ sagði Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í ávarpi sínu á aðalfundi LÍÚ. Jón sagði að sér hafi kom- ið á óvart frá því hann tók við ráðherraembætti hve miklir flokkadrættir og tor- tryggni væru meðal og milli helstu hagsmunasamtaka í sjávarútvegi og samvinna þeirra sumra lítil. Slíkt þyki sér miður og því hvatti hann menn til að taka sig á í þeim efnum, enda um sömu þjóð- arhagsmunina að tefla. Þungbær aðildarumsókn að ESB „Ég get sagt ykkur hér alveg heiðarlega og beint frá hjart- anu að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur verið mér þungbær, svo ekki sé meira sagt,“ sagði ráðherr- ann í ávarpi sínu. Hann telur mörg rök mæla með því að fulltrúar hagsmunaaðila eigi að fá aðild að samninga- nefndunum Íslands um aðild- ina að ESB. Kosti og galla þess þurfi að minnsta kosti að skoða vel. „Útilokað er að samþykkja að þessar nefndir verði settar af stað umboðslausar og þeirra eina verkefni verði að ná bara samningi. Ástæða þessa er auðvitað sú að komi til þess að brotni á málefnum, líkt og fullum og óskoruðum yfirráðum Íslendinga yfir sín- um eigin fiskimiðum, þá verði því málefni ekki ýtt til hliðar þar til síðast. Þess í stað verði fengin niðurstaða strax um svo mikilvæg málefni þannig að ríkisstjórn, Alþingi, hags- munaaðilum og þjóðinni allri gefist færi á að taka afstöðu til hversu langt eigi að ganga,“ sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra. Flokkadrættir í sjávarútvegi eru miklir - segir Jón Bjarnason sjávaútvegsráðherra

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.