Ægir - 01.09.2009, Síða 28
28
„Almennt mæltust strandveið-
ar vel fyrir. Þær gáfu aukna
vinnu til lands og sjávar. Þjón-
ustufyrirtæki höfðu skyndilega
nóg að gera. Menn vantaði á
handfæri frá Skagaströnd.
Siglingastofnun og skoðunar-
stofur voru að drukkna í útgáfu
atvinnuskírteina og skoðunum
bátanna. Fiskistofa gaf út leyf-
in og hélt utan um veiðarnar.
Alls greiddu strandveiðimenn
10 milljónir í ríkissjóð fyrir
leyfin. Frá landsbyggðinni bár-
ust þær fréttir að líf hefði aftur
færst yfir hafnirnar: „Það var
eftir ýmsu að slægjast að fá
sér göngutúr eða koma þar
við,“ eins og Sauðkrækingur-
inn orðaði það. Síðast en ekki
síst varð vart við jákvæðara
viðhorf almennings til sjávarút-
vegsins. Það var hægt að kom-
ast á sjó og hafa smá tekjur af
án þess að það kostaði tugi
milljóna í kvótakaupum.“
Þannig fórust Erni Pálssyni,
framkvæmdastjóra Landssam-
bands smábátaeigenda orð á
aðalfundi samtakanna nú í
október. Þar fjallaði hann um
nýafstaðnar strandveiðar, sem
voru nýmæli síðastliðið sum-
ar. Sem kunnugt er byggðu
strandveiðarnar á reglugerð
sem Jón Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, undirritaði
þann 25. júní. Þremur dögum
síðar hófust veiðarnar. Veið-
arnar höfðu nokkrar takmark-
anir, þ.e.:
• Hámarksfjöldi handfæra-
rúlla 4
• Dagsróður mátti ekki
vera lengri en 14
klukkustundir
• Afli í hverju róðri að há-
marki 800 kg af óslægð-
um þorski
• Óheimilt að róa á föstu-
dögum og laugardögum
• Miðunum skipt upp í 4
veiðisvæði
• Heildarafli á hverju
veiðisvæði takmarkaður
Örn bendir á að veður hafi
auk þessa reynst mjög tak-
markandi þáttur. Alls var út-
hlutað 595 strandveiðileyfum,
554 bátar stunduðu veiðarnar.
Umhverfið sem þeir spretta
úr segir Örn tvíþætt, þriðjung-
ur komi nýr á veiðar, þ.e.
hafði ekki veiðileyfi í atvinnu-
skyni, hinn hlutinn hefur
veiðileyfi í atvinnuskyni og
kemur úr króka- eða afla-
marki.
Heildarafli strandveiðibáta
varð 4.107 tonn, þar af 3.450
tonn þorskur. Nánast allur afli
strandveiðibáta var seldur á
fiskmörkuðum. Heildarafla-
verðmæti varð 875 milljónir
og útflutningsverðmæti 1,8
milljarðar. Meðalverð á þorski
233 kr/kg. Aflahæstur strand-
veiðibáta varð Sædís ÞH 305,
frá Húsavík með 28 tonn þar
af 26,7 tonn af þorski. Tveir
voru í áhöfn Sædísar, skip-
stjóri var Árni Guðmundsson.
Aðalfundur LS samþykkti
ályktun um stuðning við
áframhald strandveiða en Örn
segir að forsenda þess sé að
Alþingi samþykki lög þar um.
Strandveiðarnar gáfu 1,8 millj-
arða í útflutningsverðmæti
- þriðji hver bátur nýr á veiðum
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda.
Í töflunni má sjá að mjög misjafnlega aflaðist á hvern bát
eftir svæðum. Aflinn var nærfellt fjórfaldur á bát á svæði A á
við svæði D.
Skipting leyfanna sýnir að 200 bátar höfðu ekki leyfi áður til
atvinnuveiða.
Hér má sjá skiptingu þorskaflans eftir
svæðum og fjölda leyfa eftir svæðum.
Bókstafirnir standa fyrir eftirtalin
svæði: A. Eyja- og Miklaholtshreppur –
Skagabyggð, B. Sveitarfélagið Skaga-
fjörður – Grýtubakkahreppur, C. Þing-
eyjarsveit – Djúpavogshreppur, D.
Sveitarfélagið Hornafjörður – Borgar-
byggð.
Ú T G E R Ð A R T Æ K N I