Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2009, Page 32

Ægir - 01.09.2009, Page 32
32 F I S K V I N N S L A N „Þrátt fyrir efnahagskreppu víða um heim þá er almennt verðlag á sjávarafurðum í hærri kantinum. Það hjálpar okkur að sjálfsögðu en víst kemur þar á móti að skuldirnar hafa vaxið gríðarlega hjá mörgum. Ég býst við að hjá mörgum sé framund- an mikil vinna við að ráða fram úr skuldavandanum og endur- skipuleggja þann hluta rekstr- arins. Í mörgum tilfellum hafa mál ekki komist á endalínu vegna tafa við að endurreisa bankana en ég vonast til að sjáist æ betur til sólar í því efni. Fiskvinnlunni, líkt og öllu atvinnulífinu, er lífsspursmál að fá bankakerfið í eðlilegan gang,“ segir Arnar Sigurmunds- son, formaður Samtaka fisk- vinnslustöðva um stöðu vinnsl- unnar við upphaf vetrarins. Samtök fiskvinnslustöðva héldu aðalfund sinn fyrr í haust og þar var farið yfir stöðuna í greininni. Arnar segir ljóst að í vinnslunni, líkt og víðar, séu fyrirtæki misjafnlega stödd hvað rekstrarhorfur varðar. Skuldastaða sé sumum þeirra mjög illviðráðanleg. „Vandinn er ekki að öllu leyti kominn upp á yfirborðið vegna þess hve hægt hefur gengið með bankakerfið en mér segir svo hugur að ýmis- legt eigi eftir að ganga á áður en yfir lýkur og fyrirtækin komast á lygnari sjó. Ég vona auðvitað að sem flest sjávarút- vegsfyrirtæki komist í gegnum þetta en til að vera raunsær þá geta einhver þeirra farið í þrot,“ segir Arnar. Stefnumál ríkisstjórnarinnar stóru verkefnin Framundan er vetur þar sem aðalatriðið er að halda sjó, að mati Arnars. „Þess utan eru Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva: Stærsta hagsmunamálið að fá botn í umræðuna um fyrningarleiðina Arnar Sigurmundsson, formaður SF.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.