Fréttablaðið - 16.04.2015, Page 10

Fréttablaðið - 16.04.2015, Page 10
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 FISKELDI „Þetta voru tugir þúsunda fiska og tjón upp á par hundrað milljónir,“ segir Einar Örn Ólafs- son, forstjóri Fjarðalax, um tjón á stórri sjókví við Hlaðseyri í Patreksfirði í janúar 2014. Greint er frá atvikinu í ársskýrslu dýralækn- is fisksjúkdóma hjá Mat- vælastofnun þar sem því er lýst að eftir viðvarandi norðan storma í fleiri vikur hafi í einu áhlaupinu laskast rafmagnskassi á sjókvínni „sem að öllum líkindum hefur leitt til útleiðslu rafmagns í nánasta umhverfi og valdið mikilli streitu hjá fiskinum. Laxinn hópaðist niður á botn kvíarinnar og varð hluti hans fyrir nuddskaða sem leiddi til sáramyndunar og affalla. Brugðist var við með neyðarslátr- un og þannig létt á kvínni.“ Gísli Jónsson, dýralækn- ir fisksjúkdóma, segir að nokkuð hafi sést á kviði fisksins og trjónu hans eftir nudd við nótina í kvínni, og bætir við að þegar nokkr- ir dagar líða frá atviki sem þessu þá sæki umhverfis- bakteríur í skrámur fisks- ins og opin sár myndist. Til að forða því að svo færi var gripið til þess að slátra fisknum strax. „Sá lax sem ekki var hæfur til manneldis var tekinn til hliðar og honum fargað. Í raun var létt á kvínni má segja, til að afstýra frek- ara tjóni – slátrun var hraðað enda fiskurinn kominn í slátur stærð,“ segir Gísli sem telur að úr kvínni hafi verið slátrað 40 til 50.000 löxum sem var um þriðjungur af því sem í kvínni var. Gísli útskýrir að þegar sjávar- hiti er mjög lágur þá leiti fiskurinn niður í kvína. Til að forða fiskn- um frá frekari núningi við nótina í kvínni var ákveðið að fækka í henni svo færi betur um fiskinn við þau skilyrði sem þá voru, en kolvitlaust veður var á þeim tíma og sjávarhiti rúmlega ein gráða. Spurður um þetta áfall og hvort tryggingar Fjarðalax hafi náð yfir tjón sem þetta segir Einar Örn í skriflegu svari: „Að einhverju leyti jú, en frekar takmörkuðu.“ Í kvíarnar á Hlaðseyri voru flutt seiði í júní 2012 og hófst slátr- un úr kvíunum í lok sumars 2013 sem lauk svo sumarið 2014 og hafa sjókvíarnar staðið tómar síðan. Næsta kynslóð seiða hjá Fjarðalaxi mun fara í kvíarnar í Patreksfirði í júní í sumar. svavar@frettabladid.is Slátruðu tugþúsund- um laxa eftir óveður Fjarðalax greip til þess ráðs að slátra tugþúsundum laxa úr sjókví í Patreksfirði á Vestfjörðum í janúar 2014. Eftir bilun í sjókví særðist fiskurinn svo honum var slátrað og fargað. Tjónið metur forstjóri Fjarðalax á um 100 milljónir króna. SJÓELDISKVÍ Kví sem þessi getur verið 30 til 35 metrar á dýpt. Laxinn leit- ar niður í kulda og í þessu tilviki þegar rafmagn leiddi í sjóinn. Vegna plássleysis rekst laxinn í nót kvíarinnar og sár koma undan. MYND/AQUALINE AS GÍSLI JÓNSSON BMW X5 xDrive 30d Nýskr. 01/12, ekinn 81 þús. km. Dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 9.900 þús. Rnr. 120533. NISSAN QASHQAI SE Nýskr. 06/13, ekinn 32 þús. km. dísil, beinskiptur. VERÐ kr. 3.990 þús. Rnr. 131315. Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TOYOTA LAND CRUISER 150 GX Nýskr. 01/15, ekinn 1 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr. 142816. SUBARU FORESTER VISION Nýskr. 02/13, ekinn 38 þús km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.090 þús. Rnr. 142807. TOYOTA LAND CRUISER 150 GX Nýskr. 07/12, ekinn 101 þús km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 7.490 þús. Rnr. 102455. HYUNDAI ix35 COMFORT 4x4 Nýskr. 09/13, ekinn 13 þús. km. dísil, beinskiptur. VERÐ kr. 5.090 þús. Rnr. 120622 MERCEDES BENZ GLK Nýskr. 10/12, ekinn 27 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 7.390 þús. Rnr. 281928. Frábært verð! 10.490 þús. GOTT ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA Skoðaðu úrvalið á bilaland.is ALLT AÐ 90% FJÁRMÖGNUN TÖKUM NOTAÐAN UPPÍ NOTAÐAN! GERÐU FRÁBÆR KAUP! STJÓRNSÝSLA Þrír ráðherrar, þau Illugi Gunnarsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, undirrituðu í gær, ásamt Hildi Sólveigu Sigurðardótt- ur, forseta bæjarstjórnar, viljayfir- lýsingu um stofnun háskóladeildar í Vestmannaeyjum sem gæti hafið kennslu haustið 2016. Undirritunin fór fram á hátíð- arfundi bæjarráðs Vestmanna- eyja, sem hélt sinn 3.000. fund. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vest- mannaeyjabæjar, var afar ánægð- ur með fundinn. „Nú þegar störf- um í sjávar útvegi er að fækka og afleiddum störfum vegna sjávarút- vegs er að fjölga er afar mikilvægt að efla sjávarbyggðirnar með þess- um hætti.“ Í bókun fundarins kemur fram að einn vandi sjávarbyggða er að afleidd störf á borð við rannsókn- ir og fræðslu, þróun, greiningu og sölumennsku, verða að mjög litlu leyti til í nábýli við greinina. Það skaði sjávarbyggðir, sjávarútvegs- fyrirtæki og þar með landið allt. - srs Þrír ráðherrar voru viðstaddir 3.000. bæjarráðsfund Vestmannaeyjabæjar: Opna háskóladeild í Eyjum 2016 RÁÐHERRAR OG FORSETI Fjölgun afleiddra starfa kallar á meiri menntun. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON LANDBÚNAÐUR Arnarlax stefnir á að auka framleiðslu á laxi í sjókví- um í Arnarfirði um 7.000 tonn á ári. Fyrirtækið hefur skilað Skipu- lagsstofnun frummatsskýrslu á umhverfisáhrifum vegna þessa. Við aukninguna ríflega þrefald- ar Arnarlax framleiðslu sína, en fyrirtækið hefur nú heimild til 3.000 tonna framleiðslu á ári, en myndi eftir aukningu framleiða 10.000 tonn á ári. Áhrif á rekstrartíma sjókvía- eldisins eru sögð staðbundin og talsvert neikvæð fyrir botndýra- líf í næsta nágrenni við kvíar, en óveruleg til nokkuð neikvæð á ástand sjávar og á villta stofna lax- fiska vegna eldislax og fóðrunar. Þá eru áhrif talin nokkuð neikvæð á ásýnd, fiskveiðar, fiskeldi og sigl- ingar. „Áhrif eru metin óveruleg til nokkuð jákvæð á fugla í næsta nágrenni við kvíar og samgöngur og talsvert jákvæð á greinda þætti samfélags utan samgangna en óveruleg á alla aðra þætti,“ segir í útdrætti matsskýrslunnar. - óká Arnarlax skilar frummatsskýrslu á umverfisáhrifum framleiðsluaukningar: Fara úr þrjú þúsund tonnum í tíu ARNARFJÖRÐUR Skila má til Skipulags- stofnunar athugasemdum við fyrirætlanir Arnarlax fyrir 26. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 F -2 D F C 1 6 3 F -2 C C 0 1 6 3 F -2 B 8 4 1 6 3 F -2 A 4 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.