Fréttablaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 32
FÓLK| TÍSKA
Það er fátt klassískara en gallabuxur og hvítur bolur en þó eru ýmis tilbrigði
til og að undanförnu hefur yfir-
bragðið verið frjálslegra en oft
áður. Bolirnir hafa víkkað og
buxurnar eru sjúskaðri. Þó að
stíllinn eigi að virka áreynslu-
laus þýðir það ekki að hann sé
ekki úthugsaður. Sé fötunum
raðað saman hugsunar-
laust getur það auðveld-
lega orðið klúðurslegt og
hreinlega lummó. Eins og
meðfylgjandi myndir sýna
er efri parturinn yfir-
leitt hvítur eða grár og er
lykilatriði að girða hann
til hálfs ofan í buxurnar.
Þó hann sé víður þarf
samt að vera á honum
kvenlegt snið. Buxurnar
eiga helst að vera rifnar
við hné en sumar eru
þó rifnar alveg upp
á mið læri. Við þetta
ganga bæði strigaskór
og hælar.
Til gamans má geta
þess að samkvæmt
könnun sem tíma-
ritið Glamour gerði
fyrir nokkrum árum
þykir karlmönnum
konur taka sig best
út í gallabuxum
og einföldum
bol. Það þarf
því ekki allt-
af að leita
langt yfir
skammt.
ÁREYNSLULAUST
EN ÚTPÆLT
KLASSÍK Til að tolla örugglega í tískunni er ráð að verða
sér úti um rifnar gallabuxur, víðan stuttermabol eða
skyrtu og stóra handtösku.
AMANDA SEYFRIED
HILARY DUFF
Það verður konunglegt brúð-
kaup í Svíþjóð í sumar þegar Karl
Filippus prins og Sofia Hellqvist
ganga í það heilaga. Brúðkaupið
fer fram 13. júní í Slottskyrkan í
Stokkhólmi. Þar sem ekki er um
krónprinsbrúðkaup að ræða er
gestalistinn smærri í sniðum.
Boðskortin hafa þegar verið send
út. Sofia og Karl Filippus opin-
beruðu trúlofun sína í fyrrasum-
ar. Sofia er ekki af konunglegum
ættum, heldur komin af verka-
fólki aftur í ættir. Hún er uppalin í
Älvdalen í Dölunum í Svíþjóð.
Verðandi prinsessan fæddist
6. desember 1984. Hún er þekkt
í Svíþjóð sem fyrirsæta og að
hafa komið fram í raunveruleika-
þáttum í sjónvarpi. Parið hefur
verið í sambandi frá árinu 2010.
Prinsinn er fæddur 13. maí 1979
og er eini sonur sænsku konungs-
hjónanna. Það er hins vegar eldri
systir hans, Viktoría, sem erfir
krúnuna. Lögum þess efnis var
breytt stuttu eftir að Karl Filippus
fæddist en áður höfðu aðeins
drengir rétt til krúnunnar.
KONUNGLEGT
BRÚÐKAUP
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-16
Fylgist með okkur á
Skipholti 29b • S. 551 0770
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-B
B
A
C
1
6
3
D
-B
A
7
0
1
6
3
D
-B
9
3
4
1
6
3
D
-B
7
F
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K