Fréttablaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 16.04.2015, Blaðsíða 48
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 40 HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER #BYLGJANBYLGJAN989 RÚNAR RÓBERTS ER Í LOFTINU ALLA VIRKA DAGA MILLI KL. 13:00 - 16:00 „Ég fékk hugmyndina að kvik- myndinni í janúar síðastliðnum og fór af stað,“ segir Jón Atli Jón- asson, handritshöfundur og leik- stjóri kvikmyndarinnar Austur. Myndin fjallar um ungan mann sem á einnar nætur gaman með fyrrverandi unnustu og barns- móður ofbeldisfulls glæpamanns, sem bregst illa við þegar hann fréttir af kynnum unga mannsins og barnsmóður sinnar. Glæpa- maðurinn fær vini sína með sér í að nema unga manninn á brott til þess að kúga út úr honum fé. Glæpamennirnir fara með unga manninn í kjallara og fer þá allt úr böndunum. „Mig langaði að gera mynd sem endurspeglaði íslenskan raun- veruleika,“ útskýrir Jón Atli, en atburðarásin minnir óneitanlega á mál sem hafa verið í fjölmiðlum hér á landi undanfarið ár. „Okkur fannst þessi mál áhugaverð og ákváðum að þetta væri eitthvað sem við vildum gera.“ Ferlið, að gera kvikmynd úr hugmynd sem kviknaði í kolli handritshöfundarins, var ekki langt. „Ég skrifaði ekki ítarlegt handrit að myndinni, því ég var sjálfur að leikstýra,“ útskýrir Jón Atli og bætir við: „Ég skrif- aði enga díalóga. Ég gaf leikur- um mjög frítt spil. Þannig hef ég unnið með leikurum í leikhúsi. Ég lít á þetta sem samvinnu og vil frekar nýta leikarana í skapandi vinnu en túlkandi.“ Frumraun sem leikstjóri Austur er fyrsta myndin sem Jón Atli leikstýrir en hann er reynslu- mikill handritshöfundur, hann skrifaði handritið að Djúpinu, ásamt Baltasar Kormáki, Fölsk- um fugli og Strákunum okkar ásamt Róberti I. Douglas. „Ég fékk danskan vin minn til þess að stýra kvikmyndatöku og það gefur myndinni annað yfirbragð.“ Helstu leikarar myndarinnar eru Arnar Dan, Vigfús Þormar Gunnarsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Björn Stefánsson og Ólafur Darri Ólafsson. „Ég var búinn að vinna með þeim öllum í leikhúsi, fyrir utan Björn. Hann var því kannski stærsti „sénsinn“ sem ég tók, en hann kom sterk- ur inn og stóð sig með prýði,“ útskýrir leikstjórinn og segir ferlið að skrifa og leikstýra kvik- mynd hafa verið skemmtilegt. „Þetta var skapandi upplifun og ég vona að áhorfendur verði sátt- ir og sjái mynd sem er öðruvísi en aðrar íslenskar kvikmyndir sem þeir hafa séð áður.“ BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS Martin Lawrence Þekktastur fyrir: Bad Boys FRUMSÝNINGAR 7,0/10 3,9/10 7,4/10 73% Child 44 fyrst á Íslandi Kvikmyndin Child 44 verður heimsfrum- sýnd hér á landi um helgina. Myndin fjallar um lögreglumann sem reynir að klófesta fjöldamorðingja sem gekk laus á Rússlandi seint á síðustu öld og er hún byggð á sannsögulegum atburðum. Myndin hefur fengið góða dóma hjá The New York Times og Sunday Telegraph. Ástríkur á Goðabakka Teiknimynd Paul Blart: Mall Cop 2 Gamanmynd Aðalhlutverk: Kevin James, Raini Rodriguez, Eduardo Verástegui, Daniella Alonso, Neal McDonough, David Henrie, D.B. Woodside, Nicholas Turturro, Shelly Desai The Water Diviner Drama Aðalhlutverk: Jai Courtney , Olga Kurylenko, Russell Crowe, Megan Gale, Deniz Akdeniz, Isabel Lucas, Yilmaz Erdogan, Damon Herriman, Jacqueline McKenzie ÍSLENSKIR GLÆPIR INNBLÁSTURINN Leikstjórinn og handritshöfundurinn Jón Atli Jónasson gaf leiku- rum lausan tauminn í kvikmyndinni Austur, sem frumsýnd er um helgina. Hann vill endurspegla íslenskan raunveruleika. Gengi nemur ungan mann á brott, eft ir að hann svaf hjá barnsmóður glæpamanns. Austur frumraun Jóns Atla sem leikstjóri. Ég skrifaði enga díalóga. Ég gaf leik- urum mjög frítt spil. Þannig hef ég unnið með leik- urum í leikhúsi. Ég lít á þetta sem sam- vinnu og vil frekar nýta leikarana í skapandi vinnu en túlkandi. Kjartan Atli Kjartansson kjartanatli@365.is FRUMRAUN Í LEIKSTJÓRASTÓL Austur er fyrsta kvikmyndin sem Jón Atli Jónasson leikstýrir, en hann er reyndur handritshöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Félagarnir Ástríkur og Steinríkur snúa aftur í glænýrri og bráðskemmtilegri teiknimynd. Nú afhjúpar Júlíus Sesar nýjustu tilraun sína til þess að losa sig við íbúa Gaulverjabæjar. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 D -B B A C 1 6 3 D -B A 7 0 1 6 3 D -B 9 3 4 1 6 3 D -B 7 F 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.