Fréttablaðið - 16.04.2015, Side 22
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Sif Sigmarsdóttir fjallaði í
grein sinni fyrir stuttu um
óhefðbundnar lækningar og
líkir þeim sem þær stunda
við níðinga. Óhefðbundn-
ar lækningar ná yfir vítt
svið og alls kyns kukl eins
og ætluðum breytingum
á erfðaefni og kosmískri
orkutilfærslu yfir í nátt-
úrulækningar. Sjálfsagt sjá
einhverjir gróðavon í fár-
veiku fólki sem grípur hvert
hálmstrá sem býðst en von-
andi eru flestir vel meinandi sem
raunverulega trúa á lækningamátt
náttúrunnar.
Með grein sinni vegur Sif að æru
Ævars Jóhannessonar sem er fyrir
löngu orðinn landsþekktur fyrir lúp-
ínuseyði sitt sem hann bruggaði til
fjölda ára.
Ég var svo lánsöm að fá að fylgjast
með Ævari í starfi þegar ég vann um
tíma hjá Raunvísindastofnun Háskól-
ans. Þar var Ævar í jarðfræðihúsinu
með aðsetur. Hann var einstakur.
Hann var ráðagóður og skemmti-
legur, góðmenni og mannvinur.
Hann gat lagað allt, ef tækið var
ekki til þá smíðaði hann það – gömul
og úrelt tæki lifðu áfram vegna þess
að Ævar gat á einhvern óskiljanleg-
an máta blásið í þau lífi í hvert sinn
sem eitthvað bilaði. Og samhliða öllu
þessu fylgdi hann hugsjón sinni og
sauð lúpínuseyði alla daga til að anna
mikilli eftirspurn. Þá man ég einmitt
eftir því að margir töldu lúpínuseyð-
ið draga úr aukaverkunum vegna
krabbameinsmeðferða og mögulega
reynast gagnlegt í baráttunni við
krabbamein. Og þó ekki væri nema
vonin ein og trúin á lækn-
ingarmátt lúpínuseyðisins
færði Ævar fjölda Íslend-
inga seyðið sitt og tók ekki
krónu fyrir. Engan veit ég
hafa fylgt köllun sinni af
þvílíkri sannfæringu og
Ævar. Og hvers vegna ætti lúpínu-
seyði ekki að hafa jákvæð áhrif á
meðferð krabbameinssjúkra? Eitt
algengasta lyfið við meðferð brjósta-
krabbameina er unnið úr trjáberki
og uppgötvaðist einmitt vegna þess
að innfæddir í Suður-Ameríku
brugguðu úr berkinum seyði.
Við hátíðlega athöfn árið 2010
heiðraði Kópavogsbær Ævar
Jóhannesson fyrir ævistarf sitt.
Undirrituð var þá formaður bæjar-
ráðs og féll það í minn hlut að sýna
Ævari þá virðingu og þann sóma
sem í viðurkenningunni fólst. Í
umsögn með viðurkenningu Kópa-
vogsbæjar sagði meðal annars:
„Með óeigingjörnu starfi sínu hefur
Ævar auðgað samfélagið og gefið
fjölmörgum einstaklingum styrk
og kraft. Hann hefur nýtt náttúru
Íslands á sjálfbæran hátt. Hann er
frumkvöðull, mikill hugvitsmaður
og mannvinur. Störf hans eru aðdá-
unarverð og hann er fyrirmynd í
íslensku samfélagi.“ Að einhverjum
skuli detta það í hug að kalla þennan
öðling níðing er mér með öllu óskilj-
anlegt og algjörlega óafsakanlegt.
Um Ævar
Jóhannesson
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Guðríður
Arnardóttir
fv. bæjarfulltrúi
í Kópavogi
Opið 19:00 - 21:00
Í kvöld, fimmtudaginn 16. apríl
í Intersport Bíldshöfða
HLAUPA-
KVÖLD
ASICS KAYANO 20
Léttir hlaupaskór með innanfótarstyrkingu.
Dömu- og herrastærðir.
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
30-50%
afsláttur af eldri týpum af
ASICS
HLAUPASKÓM
16.000
Fullt verð: 31.990
KLÚBB-
TILBOÐ
20%
AFSLÁTTUR
af hlaupafatnaði,
hlaupaskóm og
fylgihlutum
– FYRIRLESTUR
– KYNNINGAR
– HAPPDRÆTTI
Fríða Rún næringarfræðingur
verður með stuttan fyrirlestur
um næringu hlauparans:
Næring – æfingar – árangur!
og áritar nýútgefna bók sína
á staðnum.
CW-X, CamelBak og SpiderTech
Hlauparar sem glíma við eymsli
geta fengið fría teipingu frá
SpiderTech.
CW-X compression
Frábær hlaupafatnaður sem m.a.
styður við helstu vöðva og liðamót
sem liggja undir álagi við æfingar
og keppni.
CamelBak, hollustuskammtur
af vatni og vellíðan! Úrval af BPA
fríum vantsbrúsum, drykkjar-
beltum og bakpokum.
Allir sem versla geta tekið þátt í
happdrætti. Vinningar eru Under
Armour hlaupaskór, hlaupajakki
og hlaupabuxur!
ALLT FYRIR
SPORTIÐ!
Enn gerist það að fatlað
fólk þarf frá að hverfa
vegna þess að mannvirki
hafa ekki verið byggð með
þarfir þess í huga. Það
felur í sér að hluti þjóðar-
innar getur ekki sótt þjón-
ustu hjá hinu opinbera eða
tekið þátt í menningarlífi
til jafns við aðra. Húsnæði
Umboðsmanns Alþingis er
til að mynda óaðgengilegt
hreyfihömluðu fólki og dæmi eru
um að foreldar hafi ekki getað
fylgt börnum sínum í félagsstarfi
vegna hindrana.
Nútíma samfélag ætti að gera
ráð fyrir öllum. Í samningi Sam-
einuðu þjóðanna um réttindi fatl-
aðs fólks segir að aðildarríkin eigi
að sjá til þess að fötluðu fólki sé
gert kleift að lifa sjálfstæðu lífi
og í því felst að útrýma hindrun-
um sem hefta aðgengi. Það á við
um byggingar og önnur mann-
virki, samgöngur, upplýsingar,
fræðslu og þjónustu.
Aðgengileg mannvirki
Áður fyrr var lítill gaumur gef-
inn að sérþörfum fólks. Oft er
talað um að erfitt sé að gera end-
urbætur á eldri byggingum sem
auðvelda aðgengi fatlaðs fólks en
í fjölmörgum tilfellum má nýta
hugvitið og koma fyrir tækjum,
brautum eða öðru efni sem auð-
veldar aðgengi. Nú hefur endur-
bætt byggingarreglugerð tekið
gildi sem kveður á um algilda
hönnun með aðgengi fyrir alla. Í
henni felst meðal annars sú krafa
að aðgengi fatlaðra einstaklinga
sé tryggt að mannvirkjum
sem ætluð eru almenn-
ingi. Í því felst til dæmis
að rými þarf að vera
nægjanlegt, merkingar
greinilegar, góð litaskil og
notkun á byggingarefnum
sem ekki valda viðbrögð-
um hjá astma- eða ofnæm-
isjúklingum. Þetta hent-
ar ekki síður ömmunni
sem á erfitt með gang og
getur nú notað göngugrind heima
hjá sér eða hjólastól því rýmið er
nægilegt til athafna með slíkum
hjálpartækjum. Amman getur
notið þess að vera heima hjá sér
eins lengi og hún hefur heilsu til
með heimaþjónustu.
Hindrunarlaust samfélag
hentar öllum
Milli 10 og 15% Íslendinga er fatl-
að fólk og öll eigum við aðstand-
endur sem þurfa sérstök úrræði
vegna tálma í umhverfinu. Algild
hönnun felur ekki aðeins í sér
að frændinn sem notar hjólastól
geti komist inn í bygginguna eða
að amman sem á erfitt með gang
geti ferðast með lyftu á milli
hæða. Ef amman er orðin veru-
lega sjónskert þá er mikilvægt
að hnapparnir í lyftunni séu með
upphleyptu letri svo að hún viti á
hvaða hnapp hún eigi að styðja.
Skýr litaskil, auðlesin skilti og
leiðbeiningar gagnast ömmunni
sem og svo mörgum öðrum.
Réttindi geta verið hagkvæm
Sumir sjá ofsjónum yfir þeim
kröfum sem nú eru gerðar til
mannvirkja en þann 12. mars sl.
í viðtali við Ölmu Ómarsdóttur á
RÚV lét framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins hafa eftir sér
að allur lúxusinn sem er í bygg-
ingarreglugerðinni standi í vegi
fyrir byggingu smærri og ódýrari
íbúða. Lúxusinn svokallaði er að
veita líka þeim hópum sem upp-
lifa hindranir greiðari aðgang
að mannvirkjum. Það er enginn
lúxus. Það verður að leita annarra
lausna til að lækka kostnað en að
skerða sjálfsögð réttindi fólks. Þá
má ekki gleyma því að ef amman
býr í aðgengilegu húsnæði þá
getur hún búið lengur heima en
ella. Amman keypti aðgengilegu
íbúðina fyrir sína peninga sem
hlýtur að vera hagkvæmara fyrir
samfélagið heldur en að hið opin-
bera hafi þurft að byggja undir
hana rými á hjúkrunarheimili.
Öll þurfum við þak yfir höfuðið en
það má ekki byggja á grunni mis-
mununar. Við viljum byggja upp
samfélag fyrir alla. Það á aldrei
að gefa afslátt af mannréttindum,
aldrei!
Sama aðgengi, sameiginleg
réttindi, líka fyrir ömmur
SAMFÉLAG
Ellen Calmon
formaður ÖBÍ
➜ Öll þurfum við þak yfi r
höfuðið en það má ekki
byggja á grunni mismun-
unar. Við viljum byggja
upp samfélag fyrir alla. Það
á aldrei að gefa afslátt af
mannréttindum, aldrei!
➜ Og hvers vegna
ætti lúpínuseyði ekki
að hafa jákvæð áhrif
á meðferð krabba-
meinssjúkra?
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
F
-1
A
3
C
1
6
3
F
-1
9
0
0
1
6
3
F
-1
7
C
4
1
6
3
F
-1
6
8
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K