Fréttablaðið - 16.04.2015, Side 42
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
Upp frá því fórum
við Tina að vinna saman
og túra og tveimur árum
seinna urðum við par.
Það var sem sagt ekki
auðvelt að koma okkur
saman og það verður
heldur ekki auðvelt að
ná okkur sundur aftur!
➜ .Á laugardaginn verður
lesið upp úr verkum Tryggva
við Blesugróf í Reykjavík.
Bókmenntamerkingar á vegum bók-
menntaborgarinnar Reykjavíkur
setja í vaxandi mæli skemmtilegan
svip á bæinn. Með þeim gefst fólki
skemmtilegt tækifæri til þess að
kynnast bókmennta- og menningar-
legri sögu síns nærumhverfis, fræð-
ast um líf, menningu, bókmenntir og
sögu liðinna daga.
Næstkomandi laugardag kl. 14
verður afhjúpuð ný bókmennta-
merking við Blesugrófina við göngu-
stíginn fyrir neðan Stjörnugróf í
Fossvogi. Merkingin er til heiðurs
Tryggva Emilssyni rithöfundi og
verkamanni sem var á meðal fyrstu
íbúa hverfisins.
Æviminningar Tryggva sem komu
út á árunum 1976 til 1979 vöktu á
sínum tíma mikla athygli, enda er
þar að finna einstaka lýsingu á breyt-
ingum frá gamla bændasamfélaginu
til nútímans. Tryggvi var jafnframt
einn af frumbyggjum í Blesugróf-
inni á sínum tíma og sá eini sem
lýsti uppbyggingu og mannlífi þess
hverfis með einstökum hætti og hafa
verk Tryggva mikið sögulegt og bók-
menntalegt gildi.
Forlagið hefur staðið fyrir endur-
útgáfu á verkum Tryggva. Áður hafa
komið út Fátækt fólk og Baráttan um
brauðið sem voru á sínum tíma til-
nefndar til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Fyrir sunnan er
síðasta bókin sem nú er endurútgefin
og verður lesið upp úr henni og litið
til fortíðar með ættingjum Tryggva
við afhjúpun merkingarinnar.
- mg
Bókmenntir og fræðsla við hvert fótmál
Á laugardaginn verður afh júpuð ný bókmenntamerking við Blesugróf til heiðurs Tryggva Emilssyni.
BLESUGRÓF
Ljósmynd Sveinn
Þórðarson, frá
Blesugróf 1972.
Síðastliðinn föstudag var annað
kvöld Reykavík Shorts & Docs
Festival haldið í Bíó Paradís. Á
bland í poka sýningu var boðið var
upp á íslenskt efni. Fjórar stuttar
frásagnar myndir, heimildarmynd
og sjónræna sinfóníu norðurljósa.
Just Like You
Riðið var á vaðið með kvikmynd
Lovísu Láru og Margrétar Buhl
sem kallast Just Like You (12 mín.).
Efnis meðferðin var góð. Áhorfanda
er dembt inni í frásögnina sem segir
af úrræðaleysi táningsstúlku á
fermingaraldri. Fremur en að dæla
fram upplýsingum um persónur og
aðstæður er treyst á að myndræn-
ar upplýsingar og andrúmsloft segi
sögu. Sunneva Björk Helgadóttir,
sem leikur aðalhlutverkið, stóð sig
með stakri prýði í krefjandi hlut-
verki. Það sést að aðstandendur
myndarinnar eru enn að slíta skón-
um hvað kvikmyndagerð varðar en
þetta lofar góðu og vonandi að þau
haldi áfram á sömu braut.
Minnismiðar
Næst var sýnd mínútulöng kvik-
mynd sem Eyþór Jóvinsson leik-
stýrir um mann (Sigurður Skúla-
son) sem þjáist af minnisleysi. Þetta
er áreiðanlega besta mínútulanga
kvikmynd sem ég hef séð. Eyþór
tikkar í öll réttu boxin og segir heil-
steypta sögu með upphafi, miðju
og endi. Minnismiðar er fyndin og
óhugnanleg í senn og mætti jafnvel
túlka sem stúdíu um hvaða afleið-
ingar það getur haft þegar sam-
bandið milli táknmyndar og tákn-
miðs rofnar og tungumálið bregst
okkur. Geri aðrir betur á innan við
mínútu.
Potturinn
Að mínum dómi var Potturinn (15
mín.), kvikmynd Georgs Erlings-
sonar Merritt, það besta sem boðið
var upp á þetta kvöld. Arnar Jóns-
son leikur einhleypan karlfausk á
efri árum sem virðist lítið annað
gera en malla í heita pottinum,
horfa á fréttir og fara snemma
að sofa. Hann er uppáþrengjandi,
kreddufastur og skilur ekki af
hverju allir hafa alltaf rangt fyrir
sér. Svipmót verksins var það fag-
mannlegasta af frásagnarmyndun-
um og Arnar Jónsson fer með eitt
skemmtilegasta hlutverk sem ég
hef séð hann í.
Synda
Síðasta stuttmyndin í frásagnar-
flokki þetta kvöld var Synda (8 mín.)
eftir Hilke Rönnfeldt. Hún segir af
ungri stúlku (Saga Garðarsdóttir)
sem er þolandi ofbeldis og reynir að
láta það ekki trufla daglegan gang
lífsins. Færa má rök fyrir að gerð
sé tilraun til að skapa myndlíkingu
milli sunds og lífsins og miðla sög-
unni í gegnum líkingar í stað full-
yrðinga. Nógu erfitt er að segja
hispurslausa sögu á svona stuttum
tíma en það kann að aukast til muna
ef sagan á að vera tvíræð. Að auki
bætti ekki úr skák að hljóðrásin var
á flakki meðan á sýningunni stóð.
The Artic Fox
The Artic Fox (33 mín.) eftir Guð-
berg Davíðsson, er heimildarmynd
um íslenska refinn sem virðist vera
framleidd fyrir erlendan markað.
Hún er í þessum dæmigerða sjón-
varpsheimildarmyndastíl þar sem
fylgst er með dýraríkinu á meðan
ljúfmannleg þularrödd lýsir því
sem fyrir augu ber. Kvikmyndin
ber þess keim að vera framleidd
fyrir erlendan markað og nokkuð
er um það sem kallast landslags-
porn á vondri íslensku. Ofurkrútt-
legar myndir af refum og yrðling-
um fengu salinn til þess að stynja af
vellíðan ásamt ægifögrum myndum
af íslenskri náttúru. Fræðsluefnið
sjálft var fremur þunnt en það kom
ekki að sök þar sem þetta er fyrsta
flokks framleiðsla sem keyrir á
myndrænni fegurð.
Iceland Aurora
Síðasta mynd kvöldsins var Ice-
land Aurora (27 mín.) sem Arnór
Tryggvason, Snorri Þór Tryggvason
og Pétur K. Guðmundsson standa
að. Hér eru auðsýnilega fagmenn á
ferð sem kunna öll tæknileg atriði út
í fingurgóma en að því slepptu vand-
ast málin. Myndin samanstendur af
norðurljósamyndum sem búið er að
ofkeyra í stafrænni eftirvinnslu og
undir hljómar syntapopp í anda 9.
áratugarins. Þetta er fagurfræði
sem ég næ ekki tengingu við. Neon-
græn ljósasýning sem sómir sér
kannski vel í tjaldi á Burning Man
eða er hægt að nota sem skjáhvílu.
Þetta virkar hugsanlega vel fyrir
ferðaþjónustuna því þar eru alltaf
fullar rútur af fólki í leit að græna
gullinu, en þetta kemur náttúru ekk-
ert við. Kjartan Már Ómarsson
Bland í poka í bíó
Um íslenskar stutt- og heimildarmyndir og sitthvað
fl eira athyglisvert á Shorts & Docs í Bíó Paradís.
POTTURINN Arnar Jónsson leikari fer á kostum í stuttmyndinni Potturinn eftir
Georg Erlingsson Merritt.
„Það er gaman að koma fram á
Seltjarnarnesi. Gamli tónlistar-
kennarinn minn, hann Kári Ein-
arsson skólastjóri Tónlistarskól-
ans, sér um þessa tónleikaröð og
bað okkur að koma fram. Maður
segir ekki nei við hann!“ segir
Helgi Hrafn Jónsson tónlistar-
maður um létta tónleika sem hann
og kona hans, Tina Dickow, halda
í Bókasafni Seltjarnarness í dag
og hefjast klukkan 17.30.
Þau hjón túra reglulega um Evr-
ópu og Bandaríkin og fylla hvern
tónleikasalinn á fætur öðrum en
þetta er eina tækifærið til að sjá
þau koma fram á Íslandi á þessu
ári, að sögn Helga Hrafns. „Bóka-
safnið á Seltjarnarnesi er í uppá-
haldi, við förum þangað oft með
börnin okkar, lesum blöðin og
fáum okkur kaffi og þó það sé
kannski ekki mest töff tónleika-
staðurinn í veröldinni þá er hann
huggulegur,“ segir hann.
Helgi Hrafn var útnefndur
bæjar listamaður Seltjarnarness
2015 og þess má geta að verð-
launaféð, eina milljón króna, lét
hann renna óskipt til tónlistar-
skólans á Nesinu þar sem hann
nam ungur að árum. Eftir tólf ára
fjarveru er hann aftur á heima-
slóð, nú með þekkta danska söng-
konu sér við hlið, sem meðal ann-
ars hefur gefið út tíu diska. Hvar
krækti hann í hana?
„Ég var að túra í Ameríku
árið 2008 með færeyskum tón-
listarmanni sem heitir Teitur,
við bjuggum í nokkra mánuði í
gömlu túrrútunni hans Willie Nel-
son. Tina var að spila með okkur
í nokkra daga því þau Teitur eru
gamlir vinir. Upp frá því fórum
við Tina að vinna saman og túra
og tveimur árum seinna urðum
við par. Það var sem sagt ekki
auðvelt að koma okkur saman og
það verður heldur ekki auðvelt að
ná okkur sundur aftur!“
Helgi Hrafn spilar á ýmis-
legt. „Mitt gamla hljóðfæri sem
ég lærði á er básúna. Svo tók ég
upp á að syngja og spila á gítar
og píanó og allt mögulegt. En er
líka að semja tónlist, bæði sönglög
og hljóðfæratónlist og svo útsetja
fyrir okkur Tinu. Hún semur sjálf
tónlist og texta og nú í seinni tíð
semjum við saman.“
Helgi segir þau hjónin mikið
bókuð erlendis á tónleikum. „Við
erum svona rúmlega hálft árið í
atganginum erlendis. Erum með
börnin með okkur og flökkum
um eins og sígaunar. Sumarið er
skipulagt og næsti vetur líka.“
gun@frettabladid.is
Segir ekki nei við
gamla kennarann
Tina Dickow, ein fremsta dægurlagasöngkona Dana, og Helgi H. Jónsson, bæjar-
listamaður Seltjarnarness 2015, halda tónleika í dag í Bókasafni Seltjarnarness.
TÓNLISTARPARIÐ Þau Tina og Helgi Hrafn ætla að flytja létta tónlist, bæði frumsamda og eftir aðra, á tónleikunum í dag.
MYND/JÓNATAN GRÉTARSSON
Helgi Hrafn hefur gefið út sex plötur með eigin verkum og komið fram á
um það bil 300 tónleikum í Evrópu og Norður-Ameríku. Nú í febrúar var
frumsýnt nýtt verk við borgarleikhúsið í Frankfurt sem hann samdi tónlist
við í samstarfi við Valgeir Sigurðsson. Árið 2012 samdi hann tónlist við
verkið For the Disconnected Child, sem pantað var af Þjóðaróperunni í
Berlín, og er jafnframt söngvari og hljóðfæraleikari í sýningunni sem er á
fjórða starfsári og hefur hlotið verðlaun sem besta leiksýningin í Berlín.
Þau Tina Dickow hafa saman unnið að sjö hljómplötum og samið tónlist
fyrir dönsku myndirnar Old Boys og Someone You Love sem færði þeim í
tvígang dönsku kvikmyndaverðlaunin fyrir tónlist.
Meðal annarra sem Helgi Hrafn hefur starfað með má nefna Rökkur-
ró, Kammerhljómsveit danska ríkisútvarpsins, Damien Rice, Dzihan &
Kamien, Boy, Philipp Steinke, Glen Hansard, Ane Brun, Teit, Nico Muhly,
Funkstörung, Philipp Poisel, Sam Amidon, Ben Frost, Wild Birds and
Peacedrums og Valgeir Sigurðsson.
Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2015
MENNING
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
F
-5
5
7
C
1
6
3
F
-5
4
4
0
1
6
3
F
-5
3
0
4
1
6
3
F
-5
1
C
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K