Fréttablaðið - 16.04.2015, Qupperneq 56
16. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
HANDBOLTI Undanúrslitin í Olís-
deild karla í handbolta fara af stað
í kvöld. Deildarmeistarar Vals taka
á móti frændliði sínu Haukum sem
höfnuðu í fimmta sæti deildarinnar
og þá mætast nýliðar Aftureldingar
og ÍR í Mosfellsbæ, en þau lið end-
uðu í öðru og þriðja sæti Olís-deild-
arinnar.
Vinna þarf þrjá leiki til að komast
í lokaúrslitin, en ríkjandi Íslands-
meistarar ÍBV eru úr leik eftir
2-0 tap fyrir Aftureldingu í átta
liða úrslitum. Mosfellingar eiga þó
möguleika á að gera eins og ÍBV í
fyrra og vinna Íslandsmeistaratitil-
inn sem nýliði.
Valur er fyrir fram talið sterk-
asta liðið enda deildarmeistarar,
en Haukarnir hafa verið að sækja í
sig veðrið á seinni hluta mótsins og
voru sannfærandi í rimmunni gegn
erkifjendum sínum í FH.
Guðlaugur Arnarsson, þjálfari
Fram, spáir í undanúrslitaleikina
fyrir Fréttablaðið.
Haukar hafa styrkinn
„Þetta verður hörkurimma,“ segir
Guðlaugur um viðureign frænd-
SPORT
Pressan er á
Aft ureldingu
Undanúrslitin í Olís-deild karla í handbolta hefj ast
í kvöld. Valur og Haukar mætast í fyrsta leik að
Hlíðarenda og nýliðar Aft ureldingar fá ÍR í heimsókn.
Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Fram, spáir í spilin.
liðanna Vals og Hauka. „Valsmenn
hafa verið sterkastir í deildinni en
Haukarnir komið sterkir inn eftir
áramót og eru með góða breidd og
reynslu. Hjá þeim eru menn sem
hafa unnið titla og vita um hvað
þetta snýst.“
Haukar hafa mannskap sem getur
stöðvað líkamlega sterka Valsmenn-
ina, að sögn Guðlaugs.
„Þeir eru með lið sem er á pari
við lið Vals þegar kemur að líkam-
legum styrk. Þarna eru stórir og
þungir strákar sem geta stöðvað
þetta líkamlega sterka Valslið.“
Ætli Haukarnir að vinna Val
þrisvar verða þeir að klára færin
sín vel og ekki hleypa Hlíðarenda-
piltum í mikið af hraðaupphlaupum.
„Valsmenn búa yfir gríðarlega
sterkum varnarleik og eru með
besta markvarðaparið í deildinni.
Ef þeir ná upp vörn og hraðaupp-
hlaupum er erfitt að eiga við þá.
Haukarnir verða að klára færin sín
þannig að Valur hlaupi ekki í bakið
á þeim,“ segir Guðlaugur.
Árni Steinn Steinþórsson, stór-
skytta Hauka, vaknaði heldur
betur til lífsins í átta liða úrslit-
unum. Eftir að hafa skorað aðeins
2,3 mörk að meðaltali í leik á tíma-
bilinu skoraði hann 17 mörk í leikj-
unum tveimur gegn FH. Haukarnir
eru til alls líklegir sé hann kominn
úr dvala.
Hafa saknað Árna Steins
„Maður hefur saknað þess að sjá
gæðin í Árna, en þetta hefur nú
ekki verið besta tímabilið hans.
Ætli hann hins vegar að spila á móti
Val eins og hann gerði á móti FH er
breiddin orðin mikil í Haukalið-
inu og hægri vængurinn virkilega
sterkur,“ segir Guðlaugur, en hvern-
ig spáir hann að einvígið fari?
„Þetta fer í oddaleik sem Valur
vinnur á sínum heimavelli. Ég held
að heimavöllurinn verði sterkur í
þessu einvígi,“ segir Guðlaugur, en
fyrsti leikurinn fer fram í Vodafone-
höllinni í kvöld kl. 19.15.
Pressan á Aftureldingu
Aðspurður um rimmu Aftureld-
ingar og ÍR er Guðlaugur fljótur
til svars: „Ég set pressuna á Aftur-
eldingu í þessu einvígi. Það á að
klára þetta. Það er með breiddina
og heimavöllinn á meðan ÍR er með
góða einstaklinga og treysta mikið á
að Björgvin Hólmgeirsson spili frá-
bærlega.“
Guðlaugur segir ekkert ósann-
gjarnt að hlaða pressu á Mosfellinga
þó þeir séu tæknilega séð nýliðar í
deildinni.
„Auðvitað eru þeir nýliðar. Það
er alveg rétt, en pressan er á þeim.
Liðið er með meiri breidd og það er
einmitt sem þarf í svona einvígi þar
sem þarf að vinna þrjá leiki.“
Jóhann dregur vagninn
Ef Afturelding er svona mun sigur-
stranglegra, hvað þarf ÍR að gera til
að vinna strákana í kjúklingabæn-
um þrisvar?
„ÍR þarf að spila ofboðslega
sterkan varnarleik og markverð-
irnir þurfa að stíga upp. ÍR verður
að hægja á leiknum, stjórna hraðan-
um og koma sínum bestu hraðaupp-
hlaupsmönnum inn í leikinn. Það er
lykillinn og svo auðvitað að Björg-
vin verði áfram funheitur. ÍR verður
að skora mikið af einföldum mörk-
um,“ segir Guðlaugur, en hjá Aftur-
eldingu segir hann Jóhann Gunnar
Einarsson vera aðalmanninn.
„Afturelding hefur breidd og
gæði til að klára ÍR en hjá þeim
er Jóhann Gunnar mikilvægast-
ur. Úrslitakeppnin héðan í frá hjá
Aftureldingu ræðst af því hvernig
hann spilar,“ segir Guðlaugur og
bætir við:
„Einar Andri er búinn að gera
flotta hluti þarna og liðið fylgir hans
góðu hugmyndafræði um vörn og
seinni bylgju. En þegar Aftureld-
ing hefur verið í vandræðum er það
Jóhann Gunnar sem dregur vagn-
inn. Hann er maðurinn,“ segir Guð-
laugur. Hann spáir, UMFA áfram,
3-1.
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
AÐALMAÐURINN J óhann Gunnar Einarsson þarf að draga vagninn fyrir Aftureldingu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jóhann Gunnar Einarsson
Íslandsmeistari „tvö“ ár í röð?
Komast nýliðar í úrslitin
annað árið í röð?
Eyjamenn urðu í fyrra fyrstu nýliðarnir sem verða Ís-
landsmeistarar í karlahandboltanum en þeir enduðu
þá í 2. sæti í deildinni alveg eins og nýliðar Aftur-
eldingar í vor. Það gæti því farið svo að nýliðar spili
til úrslita um titilinn annað árið í röð.
Í stóru hlutverki
í liði nýliða
Aftureldingar
Hann tók skóna
af hillunni síðasta
haust eftir að
hafa tekið sér frí
tímabilið 2013-14.
Íslandsmeistari
með Fram
vorið 2013
Þá spilaði hann
síðast í úrslitakeppn-
inni. Hann á því
möguleika að vinna
titilinn „tvö“ ár í röð.
Skoraði 5,5 mörk
að meðaltali í úr-
slitakeppninni 2013
Hann hefur skorað
samtals 15 mörk
í tveimur fyrstu
leikjum Mosfellinga í
úrslitakeppninni í ár.
VALUR – HAUKAR
LEIKUR EITT Í UNDANÚRSLITUM
Í Vodafonehöllinni
í kvöld kl. 19.30
Áfram Valur!
ÚRSLIT
DOMINO’S-DEILD KARLA
UNDANÚRSLIT, 4. LEIKUR
NJARÐVÍK - KR 97-81 (41-36)
Njarðvík: Stefan Bonneau 20/10 fráköst/8 stoð-
sendingar, Logi Gunnarsson 20/5 stoðsendingar,
Ólafur Helgi Jónsson 12/5 stoðsendingar, Mirko
Stefán Virijevic 12/4 fráköst, Maciej Stanislav
Baginski 12/8 fráköst/6 stolnir, Ágúst Orrason 8,
Hjörtur Hrafn Einarsson 5, Snorri Hrafnkelsson 4,
Ragnar Helgi Friðriksson 2, Jón Arnór Sverrisson
2.
KR: Helgi Már Magnússon 19, Michael Craion
15/14 fráköst/3 varin skot, Björn Kristjánsson
12/5 fráköst/5 stoðsendingar, Brynjar Þór Björns-
son 9/7 stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon 7/5
fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 7/8 fráköst,
Darri Hilmarsson 7/5 fráköst, Þorgeir Kristinn
Blöndal 3, Pavel Ermolinskij 2/7 fráköst.
Staðan í einvíginu er 2-2. Oddaleikur liðanna
verður í DHL-höllinni á föstudagskvöld
HAUKAR - TINDASTÓLL 62-69 (32-37)
Haukar: Alex Francis 20/12 fráköst, Emil Barja
11/8 fráköst/6 stoðsendingar/4 varin skot, Hjálmar
Stefánsson 8, Kári Jónsson 8/5 stoðsendingar,
Kristinn Marinósson 6/4 fráköst, Haukur Óskars-
son 5, Kristinn Jónasson 2, Helgi Björn Einarsson
2/7 fráköst.
Tindastóll: Darrel Keith Lewis 20/11 fráköst,
Myron Dempsey 17/14 fráköst/4 varin skot, Pétur
Rúnar Birgisson 9/7 fráköst/5 stoðsendingar,
Darrell Flake 9/7 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson
6, Helgi Rafn Viggósson 4/5 fráköst, Svavar Atli
Birgisson 3, Viðar Ágústsson 1.
Tindastóll vann einvígið, 3-1.
MEISTARADEILD EVRÓPU
8-LIÐA ÚRSLIT, FYRRI LEIKIR
PORTO - BAYERN 3-1
1-0 Ricardo Quaresma, víti (3.), 2-0 Ricardo
Quaresma (10.), 2-1 Thiago Alvantara (28.), 3-1
Jackson Martinez (65.).
PSG - BARCELONA 1-3
0-1 Neymar (18.), 0-2 Luis Suarez (67.), 0-3 Luis
Suarez (79.), 1-3 Jeremy Mathieu, sjálfsmark (82.).
NÆSTU LEIKIR
Barcelona - PSG þri. kl. 18.45
Bayern - Porto þri. kl. 18.45
Real Madrid - Atletico M. mið. kl. 18.45
Staðan í einvíginu er 0-0.
Monaco - Juventus mið. kl. 18.45
Juventus vann fyrri leikinn, 1-0.
HANDBOLTI Hrafnhildur Skúladóttir skrifaði í gær undir tveggja ára samning
við ÍBV og mun hún stýra kvennaliði félagsins í Olísdeild kvenna. Hún tekur
við starfinu af Jóni Gunnlaugi Viggóssyni sem stýrir
ÍBV út tímabilið.
ÍBV er komið í undanúrslit úrslitakeppni Olís-
deildarinnar og mætir þar deildarmeisturum
Gróttu. Fyrsti leikurinn í undanúrslitunum fer
fram á fimmtudaginn í næstu viku.
Hrafnhildur lagði skóna á hilluna fyrir
ári eftir gæfuríkan feril. Hún var lands-
liðsfyrirliði um árabil og fór fyrir sterku
liði Vals sem vann fjölda titla á sínum
tíma. Hún skrifaði undir samninginn
á Kaffivagninum á Granda í gær
ásamt Karli Haraldssyni, formanni
meistaraflokksráðs ÍBV. - esá
Hrafnhildur heldur til Eyja
KÖRFUBOLTI Tindastóll leikur til
úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta í fyrsta sinn síðan 2001
en þetta varð ljóst eftir sigur liðsins á
Haukum í gær, 69-62. Stólarnir unnu
þar með rimmu liðanna í undanúr-
slitum, 3-1, og fara í úrslitin með sex
sigra í sjö leikjum í úrslitakeppninni.
Tindastóll hefur aldrei orðið Ís-
landsmeistari og mætir annaðhvort
KR eða Njarðvík í lokaúrslitunum
sem hefjast á mánudagskvöldið.
Njarðvík tryggði sér oddaleik í
rimmunni gegn deildarmeisturum KR
með yfirburðasigri á heimavelli í gær,
97-81. - esá
Njarðvík knúði fram oddaleik en Tindastóll komst áfram
SIGUR Israel Martin, þjálfari Tindastóls, fagnar sigrinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
F
-4
1
B
C
1
6
3
F
-4
0
8
0
1
6
3
F
-3
F
4
4
1
6
3
F
-3
E
0
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K