Fréttablaðið - 04.05.2015, Síða 15

Fréttablaðið - 04.05.2015, Síða 15
MÁNUDAGUR 4. maí 2015 | SKOÐUN | 15 Landsvirkjun var stofnuð 1. júlí 1965. Nýr iðnaður varð til í landinu með aukinni verk þekkingu og fjölbreyttara atvinnulífi. Við byggjum á traustum grunni og höfum einstök tækifæri til að skapa þjóðinni verðmæti til framtíðar. Dagskrá: - Hörður Arnarson forstjóri og Ragna Árna- dóttir aðstoðarforstjóri bjóða gesti velkomna - Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur ávarp - Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flytur ávarp - Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður Árangur og áskoranir í 50 ár - Hörður Arnarson forstjóri Verðmæti til framtíðar - í orku og náttúru Íslands - Frumsýning á nýrri mynd um upphaf Landsvirkjunar og byggingu Búrfellsvirkjunar Skráning og bein útsending á landsvirkjun.is. Verðmæti til framtíðar Þessar mánudagsgreinar hafa verið hér í Fréttablaðinu síðan í mars árið 2003, með hléum að vísu. Ég varð svolítið hvumsa síðastliðinn mánudag þegar greinin mín var ekki á sínum stað í Fréttablaðinu en í staðinn komin grein eftir Jón Ásgeir Jóhannesson, eiginmann eig- anda blaðsins og fyrrverandi eiganda. Mér hefur verið sagt að þar hafi verið um mistök að ræða og ég tek til greina skýr- ingar ritstjórnar. Óþarfi að gera meira veður út af því. Einhvern daginn kemur að því að manni þyki nóg komið af þessum skrifum – eða blaðinu – en það er óneitanlega skemmti- legra að enda svo langa og ánægjulega samfylgd með öðrum hætti en þessum. Ég held að það sé líka óhætt að fullvissa lesendur Fréttablaðsins um að þeir munu tæpast eiga von á því að Jón Ásgeir spreyti sig á teikn- ingu í stað Halldórs eða bjóði upp á sögulegan fróðleik í plássi Illuga. Og það er kannski rétt að nota tækifærið og taka fram svona í eitt skipti fyrir öll, að ég þekki ekki Jón Ásgeir eða Ingibjörgu Pálmadóttur, hef aldrei hitt þau, aldrei talað við þau, skrifast á við þau eða fólk á þeirra vegum eða haft nokkuð af þeim að segja – eða þau af mér. Samskipti mín við ritstjóra blaðsins hafa frá fyrstu tíð verið ágæt, ég hef ævinlega haft algjörlega frjáls- ar hendur með þennan dálk og það hefur aldrei verið reynt að hafa áhrif á skrif mín af hálfu eigenda eða ritstjórnar með nokkrum hætti. Allsherjarsaga Maður sem vill verja hendur sínar og sæmd skrifar grein þar sem hann gerir grein fyrir sínum málstað. Það er eðlilegt og sjálfsagt. Hins vegar má lesa grein Jóns Ásgeirs í samhengi við ýmsar aðrar greinar, fréttir og frásagnir sem saman mynda nokkurs konar „Allsherjar- sögu“ sem haldið er að okkur um þessar mundir á ýmsum vettvangi. Sagan er eitthvað á þá leið að sérstakur saksóknari standi fyrir ofsóknum á hend- ur fyrrverandi bankamönnum og athafnamönnum og Hæsti- réttur Íslands taki þátt í þeim, til að friða blóðþyrstan almenn- ing – og náttúrlega Evu Joly, það voðalega kvendi sem stundum er nefnd til sögunnar sem helsti skúrkur Hrunmálanna. Geir- finnsmálið hefur þráfaldlega verið nefnt til samanburðar af talsmönnum sakborninga, nú síðast Eggerti Skúlasyni. Út- rásar víkingarnir eru samkvæmt þessari sögu látnir taka á sig allar syndir íslensks samfélags á árunum fyrir Hrun svo að þjóð- in þurfi ekki að horfast í augu við eigin afglöp. Þetta er sagan. Og um þessar mundir er úr nægum fjölmiðl- um að velja fyrir þá sem vilja halda henni á lofti, með ein- stökum dæmum með tilheyrandi aðkeyptri vandlætingu valinna lögmanna. En á málum tengdum Hruninu og Geirfinnsmálinu er veiga- mikill munur. Eitt er að sak- borningar eru afar ólíkt fólk í ólíkri stöðu; í Geirfinnsmálinu voru dæmdir smælingjar sem fáa áttu að, og þó að útrásar- víkingar og bankamenn hafi vissulega mátt þola óvinsældir á undan förnum árum hafa þeir engu að síður haft bolmagn til að ráða til sín slyngustu – og dýrustu – lögmenn landsins sem hafa verið óþreytandi við að draga fram alla hugsanlega – og óhugsanlega – meinbugi á mála- tilbúnaði ákæruvaldsins, eins og lög gera ráð fyrir, tafið mál og þæft eftir föngum; heilu lög- mannsstofurnar hafa verið að störfum fyrir þessa sakborninga og ýmsir fjölmiðlar verið opnir fyrir því að vera vettvangur ein- stakra kafla í „Allsherjarsög- unni“ – og heilu bækurnar hafa verið skrifaðar með tilheyrandi uppslætti á völdum síðum. „Hér varð Hrun“ Í Geirfinnsmálinu fannst ekki glæpurinn – en hér er um að ræða aðdraganda þess að bank- arnir féllu og Ísland varð í raun gjaldþrota ríki. „Hér varð Hrun“. Í Geirfinnsmálinu voru þvingaðar fram játningar með miklu harðræði í máli þar sem ekki var lík, ekki morðvopn, ekki tengsl meintra banamanna og meints fórnarlambs og ekki sjáanlegur hagur nokkurs manns af meintu manndrápi. Þau mál sem sérstakur sak- sóknari hefur haft til umfjöll- unar hafa á hinn bóginn snúist um meinta stórfellda markaðs- misnotkun og sýndarviðskipti og ógurlegar lánveitingar banka í eigu sakborninga til félaga sem ekki stóðu í sjáanlegum rekstri. Um er að ræða meint auðgunar- brot upp á stjarnfræðilegar upp- hæðir. Aurum-málið sem Jón Ásgeir skrifaði um á dögunum snýst ekki um það hvað sérstakur saksóknari vissi og vissi ekki um tengsl Sverris Ólafssonar og Ólafs Ólafssonar; það snýst ekki um hug Sverris Ólafssonar til eins eða neins; það snýst um að komist sé til botns í því hvort lánveitingar til tiltekins félags standist lög. Þetta er hin laga- lega hlið málsins. Nátengd henni er svo siðferðisleg hlið sem við þurfum að fást við sem sam félag á öðrum vettvangi en hinum lagalega; Hrunmálin eru ekki einskær lagaleg álitamál heldur snúast þau líka um dyggðir og lesti og lærdóma sem einstak- lingar og samfélag þurfa að draga af því sem hér gekk á upp úr aldamótum þegar innleiddur var hömlulaus óða-kapítalismi. Og þegar við búum til óða-kapít- alisma fáum við óða kapítalista. Maður skilur það að menn verji hendur sínar, heiður sinn og sæmd. En óneitanlega hvarfl- ar stundum að manni að útrásar- víkingarnir hefðu frekar átt að hringja í heimspekinga en lögmenn þegar málin tóku að hrannast upp. Það hefði verið ódýrara og það hefði hjálpað þeim að efna til samræðu við þjóðina, í einlægni og trúnaði, um afglöp bóluáranna í stað þess að berjast um á hæl og hnakka með ærnum tilkostnaði og leið- indum, neita öllu, þræta fyrir allt og verjast með lagaþvargi eins og höfðingjar á Íslandi hafa gert um aldir. Þeir hefðu kannski komist að raun um að Íslendingar eru alveg til í að hlusta og fyrirgefa, skynji þeir að verið sé að segja þeim satt. „Hér varð Hrun“ Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Sagan er eitthvað á þá leið að sér- stakur saksóknari standi fyrir ofsóknum á hendur fyrrverandi bankamönnum og athafnamönnum og Hæstiréttur Íslands taki þátt í þeim, til að friða blóðþyrstan almenning – og náttúrlega Evu Joly, það voðalega kvendi sem stundum er nefnd til sögunnar sem helsti skúrkur Hrunmálanna. Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 8 -3 2 9 C 1 6 3 8 -3 1 6 0 1 6 3 8 -3 0 2 4 1 6 3 8 -2 E E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.