Fréttablaðið - 04.05.2015, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 4. maí 2015 | SKOÐUN | 15
Landsvirkjun var stofnuð 1. júlí 1965. Nýr iðnaður
varð til í landinu með aukinni verk þekkingu og
fjölbreyttara atvinnulífi. Við byggjum á traustum
grunni og höfum einstök tækifæri til að skapa
þjóðinni verðmæti til framtíðar.
Dagskrá:
- Hörður Arnarson forstjóri og Ragna Árna-
dóttir aðstoðarforstjóri bjóða gesti velkomna
- Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
flytur ávarp
- Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, flytur ávarp
- Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður
Árangur og áskoranir í 50 ár
- Hörður Arnarson forstjóri
Verðmæti til framtíðar - í orku
og náttúru Íslands
- Frumsýning á nýrri mynd um
upphaf Landsvirkjunar og byggingu
Búrfellsvirkjunar
Skráning og bein útsending á landsvirkjun.is.
Verðmæti til framtíðar
Þessar mánudagsgreinar hafa
verið hér í Fréttablaðinu síðan
í mars árið 2003, með hléum að
vísu. Ég varð svolítið hvumsa
síðastliðinn mánudag þegar
greinin mín var ekki á sínum
stað í Fréttablaðinu en í staðinn
komin grein eftir Jón Ásgeir
Jóhannesson, eiginmann eig-
anda blaðsins og fyrrverandi
eiganda. Mér hefur verið sagt
að þar hafi verið um mistök að
ræða og ég tek til greina skýr-
ingar ritstjórnar. Óþarfi að gera
meira veður út af því.
Einhvern daginn kemur að
því að manni þyki nóg komið af
þessum skrifum – eða blaðinu –
en það er óneitanlega skemmti-
legra að enda svo langa og
ánægjulega samfylgd með
öðrum hætti en þessum. Ég held
að það sé líka óhætt að fullvissa
lesendur Fréttablaðsins um að
þeir munu tæpast eiga von á því
að Jón Ásgeir spreyti sig á teikn-
ingu í stað Halldórs eða bjóði
upp á sögulegan fróðleik í plássi
Illuga.
Og það er kannski rétt að nota
tækifærið og taka fram svona í
eitt skipti fyrir öll, að ég þekki
ekki Jón Ásgeir eða Ingibjörgu
Pálmadóttur, hef aldrei hitt þau,
aldrei talað við þau, skrifast á
við þau eða fólk á þeirra vegum
eða haft nokkuð af þeim að segja
– eða þau af mér. Samskipti mín
við ritstjóra blaðsins hafa frá
fyrstu tíð verið ágæt, ég hef
ævinlega haft algjörlega frjáls-
ar hendur með þennan dálk og
það hefur aldrei verið reynt að
hafa áhrif á skrif mín af hálfu
eigenda eða ritstjórnar með
nokkrum hætti.
Allsherjarsaga
Maður sem vill verja hendur
sínar og sæmd skrifar grein
þar sem hann gerir grein fyrir
sínum málstað. Það er eðlilegt
og sjálfsagt. Hins vegar má lesa
grein Jóns Ásgeirs í samhengi
við ýmsar aðrar greinar, fréttir
og frásagnir sem saman mynda
nokkurs konar „Allsherjar-
sögu“ sem haldið er að okkur
um þessar mundir á ýmsum
vettvangi. Sagan er eitthvað á
þá leið að sérstakur saksóknari
standi fyrir ofsóknum á hend-
ur fyrrverandi bankamönnum
og athafnamönnum og Hæsti-
réttur Íslands taki þátt í þeim,
til að friða blóðþyrstan almenn-
ing – og náttúrlega Evu Joly, það
voðalega kvendi sem stundum
er nefnd til sögunnar sem helsti
skúrkur Hrunmálanna. Geir-
finnsmálið hefur þráfaldlega
verið nefnt til samanburðar af
talsmönnum sakborninga, nú
síðast Eggerti Skúlasyni. Út-
rásar víkingarnir eru samkvæmt
þessari sögu látnir taka á sig
allar syndir íslensks samfélags á
árunum fyrir Hrun svo að þjóð-
in þurfi ekki að horfast í augu
við eigin afglöp.
Þetta er sagan. Og um þessar
mundir er úr nægum fjölmiðl-
um að velja fyrir þá sem vilja
halda henni á lofti, með ein-
stökum dæmum með tilheyrandi
aðkeyptri vandlætingu valinna
lögmanna.
En á málum tengdum Hruninu
og Geirfinnsmálinu er veiga-
mikill munur. Eitt er að sak-
borningar eru afar ólíkt fólk í
ólíkri stöðu; í Geirfinnsmálinu
voru dæmdir smælingjar sem
fáa áttu að, og þó að útrásar-
víkingar og bankamenn hafi
vissulega mátt þola óvinsældir
á undan förnum árum hafa þeir
engu að síður haft bolmagn til
að ráða til sín slyngustu – og
dýrustu – lögmenn landsins sem
hafa verið óþreytandi við að
draga fram alla hugsanlega – og
óhugsanlega – meinbugi á mála-
tilbúnaði ákæruvaldsins, eins
og lög gera ráð fyrir, tafið mál
og þæft eftir föngum; heilu lög-
mannsstofurnar hafa verið að
störfum fyrir þessa sakborninga
og ýmsir fjölmiðlar verið opnir
fyrir því að vera vettvangur ein-
stakra kafla í „Allsherjarsög-
unni“ – og heilu bækurnar hafa
verið skrifaðar með tilheyrandi
uppslætti á völdum síðum.
„Hér varð Hrun“
Í Geirfinnsmálinu fannst ekki
glæpurinn – en hér er um að
ræða aðdraganda þess að bank-
arnir féllu og Ísland varð í
raun gjaldþrota ríki. „Hér varð
Hrun“. Í Geirfinnsmálinu voru
þvingaðar fram játningar með
miklu harðræði í máli þar sem
ekki var lík, ekki morðvopn,
ekki tengsl meintra banamanna
og meints fórnarlambs og ekki
sjáanlegur hagur nokkurs
manns af meintu manndrápi.
Þau mál sem sérstakur sak-
sóknari hefur haft til umfjöll-
unar hafa á hinn bóginn snúist
um meinta stórfellda markaðs-
misnotkun og sýndarviðskipti og
ógurlegar lánveitingar banka í
eigu sakborninga til félaga sem
ekki stóðu í sjáanlegum rekstri.
Um er að ræða meint auðgunar-
brot upp á stjarnfræðilegar upp-
hæðir.
Aurum-málið sem Jón Ásgeir
skrifaði um á dögunum snýst
ekki um það hvað sérstakur
saksóknari vissi og vissi ekki
um tengsl Sverris Ólafssonar
og Ólafs Ólafssonar; það snýst
ekki um hug Sverris Ólafssonar
til eins eða neins; það snýst um
að komist sé til botns í því hvort
lánveitingar til tiltekins félags
standist lög. Þetta er hin laga-
lega hlið málsins. Nátengd henni
er svo siðferðisleg hlið sem við
þurfum að fást við sem sam félag
á öðrum vettvangi en hinum
lagalega; Hrunmálin eru ekki
einskær lagaleg álitamál heldur
snúast þau líka um dyggðir og
lesti og lærdóma sem einstak-
lingar og samfélag þurfa að
draga af því sem hér gekk á upp
úr aldamótum þegar innleiddur
var hömlulaus óða-kapítalismi.
Og þegar við búum til óða-kapít-
alisma fáum við óða kapítalista.
Maður skilur það að menn
verji hendur sínar, heiður sinn
og sæmd. En óneitanlega hvarfl-
ar stundum að manni að útrásar-
víkingarnir hefðu frekar átt
að hringja í heimspekinga en
lögmenn þegar málin tóku að
hrannast upp. Það hefði verið
ódýrara og það hefði hjálpað
þeim að efna til samræðu við
þjóðina, í einlægni og trúnaði,
um afglöp bóluáranna í stað þess
að berjast um á hæl og hnakka
með ærnum tilkostnaði og leið-
indum, neita öllu, þræta fyrir
allt og verjast með lagaþvargi
eins og höfðingjar á Íslandi
hafa gert um aldir. Þeir hefðu
kannski komist að raun um að
Íslendingar eru alveg til í að
hlusta og fyrirgefa, skynji þeir
að verið sé að segja þeim satt.
„Hér varð Hrun“
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Sagan er eitthvað
á þá leið að sér-
stakur saksóknari standi
fyrir ofsóknum á hendur
fyrrverandi bankamönnum
og athafnamönnum og
Hæstiréttur Íslands taki
þátt í þeim, til að friða
blóðþyrstan almenning
– og náttúrlega Evu Joly,
það voðalega kvendi sem
stundum er nefnd til
sögunnar sem helsti skúrkur
Hrunmálanna.
Liggurðu á skoðunum
þínum? Það er algjör
óþarfi . Sendu greinina
þína á greinar@visir.is
og við komum henni á
framfæri hið snarasta.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
8
-3
2
9
C
1
6
3
8
-3
1
6
0
1
6
3
8
-3
0
2
4
1
6
3
8
-2
E
E
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K