Fréttablaðið - 04.05.2015, Blaðsíða 48
4. maí 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 28
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
Jónína Waagfjörð - deildarstjóri hjá VIRK
–
SPORT
ÚRSLIT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
LEICESTER - NEWCASTLE 3-0
1-0 Leonardo Ulloa (1.), 2-0 Wes Morgan (17.), 3-0
Leonardo Ulloa, víti (48.).
LIVERPOOL - QPR 2-1
1-0 Philippe Coutinho (19.), 1-1 Leroy Fer (73.),
2-1 Steven Gerrard (87.).
ASTON VILLA - EVERTON 3-2
1-0 Christian Benteke (10.), 2-0 Benteke (45.), 2-1
Romelu Lukaku, víti (59.), 3-1 Tom Cleverley (64.),
3-2 Phil Jagielka (92.).
SUNDERLAND - SOUTHAMPTON 2-1
1-0 Jordi Gomez, víti (21.), 2-0 Gomez, víti (55.).
SWANSEA - STOKE 2-0
1-0 J. Montero (76.), 2-0 Ki Sung-Yueng (92.).
WEST HAM - BURNLEY 1-0
1-0 Mark Noble, víti (24.).
MANCHESTER UNITED - WBA 0-1
0-1 Jonas Olsson (63.).
CHELSEA - CRYSTAL PALACE 1-0
1-0 Eden Hazard (45.).
TOTTENHAM - MANCHESTER CITY 0-1
0-1 Sergio Agüero (29.)
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA
Chelsea 35 25 8 2 69-27 83
Man. City 35 21 7 7 71-36 70
Arsenal 33 20 7 6 63-32 67
Man. United 35 19 8 8 59-35 65
Liverpool 35 18 7 10 49-38 61
Tottenham 35 17 7 11 55-50 58
Aston Villa 35 9 8 18 29-50 35
Newcastle 35 9 8 18 36-60 35
Hull City 34 8 10 16 32-45 34
Leicester 35 9 7 19 39-54 34
Sunderland 34 6 15 13 28-50 33
QPR 35 7 6 22 39-61 27
Burnley 35 5 11 19 26-53 26
ÚRSLIT
UNDANKEPPNI EM 2016
SERBÍA - ÍSLAND 25-25 (13-11)
Mörk Serbíu (skot): Davor Cutura 5 (5), Momir
Ilic 5/1 (9/2), Nemanja Ilic 3 (3), Ilija Abutovic 3
(4), Marko Vujin 3 (12), Rastko Stojkovic 2 (2),
Mijajlo Marsenic 2 (3), Darko Djukic 2 (4), Mi los
Or bovic (1),
Varin skot: Miroslav Kocic 14 (39/2, 36%), Dej an
Mi losa vlj ev 1/1 (1/1, 100%).
Hraðaupphlaup: 4 (Ilic 1, Abutovic 1, Stojkovic
1, Djukic 1)
Fiskuð víti: 2 (Stojkovic 1, Cutura 1, )
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Íslands (skot): Vignir Svavarsson 5 (6),
Stefán Rafn Sigurmannsson 4 (9), Aron Pálmars-
son 4 (10), Róbert Gunnarsson 3 (4), Ásgeir Örn
Hallgrímsson 3 (5), Guðmundur Árni Ólafsson 2
(2), Arnór Þór Gunnarsson 2/1 (6/2), Bjarki Már
Gunnarsson 1 (1), Snorri Steinn Guðjónsson 1/1
(2/1), Björgvin Páll Gústavsson (1),
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/1 (42/2,
40%).
Hraðaupphlaup: 11 (Vignir 5, Stefán Rafn 2,
Ásgeir Örn 1, Guðmundur Árni 1, Arnór Þór 1,
Bjarki Már 1)
Fiskuð víti: 3 (Róbert 1, Ásgeir Örn 1, Snorri
Steinn 1)
Utan vallar: 8 mínútur.
SVARTFJALLALAND - ÍSRAEL 33-27
STAÐAN Í RIÐLINUM
Svartfjallaland 4 3 0 1 101-95 6
Ísland 4 2 1 1 123-91 5
Serbía 4 2 1 1 98-106 5
Ísrael 4 0 0 4 87-117 0
OLÍSDEILD KVENNA
UNDANÚRSLIT, ODDALEIKUR
GRÓTTA - ÍBV 24-22 (19-19, 11-9)
FRAM - STJARNAN 17-21 (6-10)
Grótta og Stjarnan leika til úrslita um Íslands-
meistaratitilinn. Fyrsti leikurinn er í Hertz-höllinni
á Seltjarnarnesi annað kvöld kl. 19.30.
KÖRFUBOLTI Allar líkur eru á því að Helena Sverrisdóttir
verði á mála hjá Haukum á næstu leiktíð. Um gríðarlega
mikinn liðsstyrk yrði að ræða fyrir Hafnarfjarðarliðið enda
hefur Helena verið fremsta körfuboltakona landsins um
árabil.
„Það er ansi líklegt en ekkert er staðfest enn, enda ekki
búið að undirrita neitt,“ sagði Kjartan Freyr Ásmundsson,
formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, í samtali við
Fréttablaðið.
Líklegt er að Helena yrði einnig í þjálfarateymi
liðsins auk þess að sinna þjálfun fyrir yngri flokka.
Ef allt gengur að óskum er líklegt að gengið verði frá
samningi við hana nú í vikunni.
Helena spilaði í Póllandi á síðustu leiktíð en hefur
einnig spilað í Slóvakíu og Ungverjalandi eftir að hún
útskrifaðist úr TCU-háskólanum árið 2011. - esá
Helena á heimleið í Hauka
FÓTBOLTI Chelsea endurheimti
enska meistaratitilinn eftir fimm
ára bið með 1-0 sigri á Crystal
Palace á heimavelli sínum í gær.
Eden Hazard skoraði markið er
hann fylgdi eftir eigin vítaspyrnu
sem var varin. Enn eru þrjár
umferðir eftir af tímabilinu en
Chelsea er með þrettán stiga for-
ystu á toppi deildarinnar.
Þetta er fimmti meistaratitill
Chelsea og sá fyrsti í fimm ár. Þrjá
af titlunum hefur Chelsea unnið
undir stjórn Jose Mourinho, sem
tók aftur við starfi knattspyrnu-
stjóra sumarið 2013 eftir sex ára
fjarveru. Síðan að enska úrvals-
deildin var stofnuð árið 1992 hefur
aðeins Manchester United unnið
fleiri titla (13) en Chelsea (4).
Þetta var enn ein skrautfjöðrin
í hatt Mourinho en hann hefur nú
unnið alls átta meistaratitla með
fjórum liðum (Porto, Chelsea,
Inter og Real Madrid) á einungis
tólf árum. Hann var hinn rólegasti
í viðtölum við fjölmiðla eftir leik-
inn í gær. „Hver einasti sigur er
afleiðing mikillar vinnu og maður
getur verið stoltur og ánægður af
hverjum titli. Ég veit ekki hver
þeirra er mikilvægastur. Þetta er
sá nýjasti og ég ætla að reyna að
ná í annan,“ sagði Mourinho. - esá
Chelsea meistari á ný
Með þrettán stiga forystu á toppi deildarinnar.
STOLTUR John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur átt frábært tímabil. Hér fagnar hann
með Branislav Ivanovic eftir að titillinn var tryggður. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Ísland er í góðri stöðu í
undankeppni EM 2016 eftir að hafa
fengið þrjú stig af fjórum mögu-
legum gegn Serbíu undanfarna
viku. Liðin skildu jöfn í Nis í gær,
25-25, eftir æsilegar lokamínútur.
Strákarnir byrjuðu vel og voru
með undirtökin framan af. Serb-
arnir tóku þá völdin og voru tveim-
ur mörkum yfir í hálfleik, 13-11.
Ísland náði góðum spretti um miðj-
an síðari hálfleikinn og komst yfir,
19-18, eftir fjögur mörk í röð en
aftur náðu Serbarnir undirtök-
unum.
Allt útlit var fyrir sigur heima-
manna þegar Momir Ilic kom
Serbum þremur mörkum yfir,
25-22, þegar rúmar tvær mínútur
voru eftir. En þá gekk allt á aftur-
fótunum hjá heimamönnum og
strákarnir refsuðu grimmt með
hröðum upphlaupum. Ísland fékk
meira að segja lokasókn leiksins
þegar níu sekúndur voru eftir en
náði ekki skoti að marki.
„Ég hélt alltaf í vonina,“ sagði
Gunnar Magnússon, aðstoðarþjálf-
ari Íslands, við Fréttablaðið í gær.
„Auðvitað leit þetta ekki vel út en
strákarnir sýndu úr hverju þeir
eru gerðir og komu til baka. Það
var afar sterkt að ná þessu stigi og
kemur okkur í góð mál í riðlinum.
Það er enn í okkar höndum að kom-
ast á EM í Póllandi og við ætlum
okkur að vinna síðustu tvo leikina
í riðlinum [gegn Svartfjallalandi
heima og Ísrael ytra].“
Gunnar var ánægður með
varnarleikinn í báðum leikjunum
gegn Serbíu. „Markvarsla Björg-
vins Páls [Gústavssonar] fylgdi
með sem var mjög gott að sjá. Við
náðum að dreifa álaginu í sókninni
vel á milli manna sem okkur
fannst gott að geta gert.“
Hvorki Alexander Petersson né
Guðjón Valur Sigurðsson spiluðu
með Íslandi í gær vegna meiðsla.
„Það er mjög sterkt að ná í stig á
þessum sterka útivelli án tveggja
heimsklassamanna. Það sýnir
mikinn styrk í okkar liði og gott
að eiga þessa tvo menn inni fyrir
leikina í sumar.“ eirikur@frettabladid.is
Stigi bjargað í Serbíu
Ísland var þremur mörkum undir þegar tvær mínútur voru til leiksloka í mikil-
vægum leik gegn Serbíu í undankeppni EM 2016. Ísland skoraði þrjú síðustu
mörk leiksins og fékk tækifæri til að skora úr lokasókn leiksins en tókst ekki.
GOTT STIG Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk gegn Serbum í gær. Hér er hann í
baráttu inni á línunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HNEFALEIKAR Floyd Mayweather er
enn ósigraður á nítján ára atvinnu-
mannaferli eftir að hafa haft betur
gegn Manny Pacquaio í Las Vegas um
helgina. Bardagi þeirra stóð yfir í tólf
lotur og þurfti stigagjöf dómara til að
fá niðurstöðu. Úrskurður þeirra var
einróma, Mayweather í vil.
Mayweather hefur nú barist 48
sinnum sem atvinnumaður og ávallt
haft betur. Hann sagði eftir bardag-
ann að hann myndi berjast aftur
í september en að það yrði hans
síðasti bardagi á ferlinum. - esá
Mayweather hafði
betur á stigum
LYFTINGAR Fjölmörg Íslandsmet voru
bætt á Íslandsmótinu í ólympískum
lyftingum sem fór fram í Kaplakrika í
Hafnarfirði um helgina. Þuríður Erla
Helgadóttir, Ármanni, bætti Íslands-
met með því að bæði snara 80 kg og
jafnhenda 103 kg. Með árangrinum
fór hún yfir 250 Sinclair-stig og er
hún fyrst íslenskra kvenna til að ná
þeim árangri.
Andri Gunnarsson, Lyftingarfélagi
Garðabæjar, náði bestum árangri í
karlaflokki. Hann snaraði 150 kg og
jafnhenti 180 kg. - esá
Sögulegur árangur
Þuríðar Erlu
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson og
Ólafur Björn Loftsson voru báðir í
hópi efstu manna á sterku golfmóti í
Danmörku sem lauk á Jótlandi í gær.
Mótið er hluti af Nordic Golf-atvinnu-
mótaröðinni en Ólafur Björn náði
sínum besta árangri á tímabilinu er
hann hafnaði í 11.-13. sæti á fjórum
höggum yfir pari.
Birgir Leifur varð í 5.-9. sæti á
tveimur höggum yfir pari en
hann er að undirbúa sig fyrir
keppni á Áskorendamótaröð
Evrópu. - esá
Birgir og Ólafur á
meðal efstu manna
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
9
-7
8
7
C
1
6
3
9
-7
7
4
0
1
6
3
9
-7
6
0
4
1
6
3
9
-7
4
C
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K