Fréttablaðið - 01.05.2015, Síða 21
FÖSTUDAGUR 1. maí 2015 | SKOÐUN | 21
landsins útvöldum er erfitt að
segja. Líklega engum. Svo kann
hins vegar að vera að til sé sá
heimur þar sem íslensk stjórn-
völd selja, einmitt á þessari
stundu, makrílkvóta hæstbjóð-
anda og landsmenn njóti góðs af.
Eðlisfræðin og strákabandið
Eðlisfræðingurinn Stephen
Hawking sat fyrir svörum á ráð-
stefnu í Ástralíu á dögunum.
Hawking er þekktastur fyrir að
tjá sig um fræðilegar kenningar
um upphaf alheimsins. En í Ástr-
alíu brá hann út af vananum.
Í mars síðastliðnum bárust
heimsbyggðinni átakanlegar
fréttir. Zayn Malik, söngvari í
strákabandinu One Direction,
var hættur í hljómsveitinni.
Unglingsstúlkur veraldar voru
harmi slegnar.
Stephen Hawking réð stúlk-
unum heilt eins og eðlisfræð-
ingi einum er lagið. „Ráð mín til
þessara ungu kvenna í ástar-
sorg er að fylgjast vel með nýj-
ustu rannsóknum á sviði kenni-
legrar eðlisfræði.“ Og hvernig
getur eðlisfræði verið bót slíkra
meina? „Einn góðan veðurdag
gætum við fundið sannanir þess
að til eru margir samhliða heim-
ar. Líkindi eru til þess að í ein-
hverjum þeirra sé Zayn enn þá í
hljómsveitinni.“
Fólkið í landinu í forgang
Könnun MMR á áliti fólks á
persónueiginleikum stjórnmála-
leiðtoga sem kynnt var í vikunni
sýndi að aðeins 11 prósent fólks
töldu Sigmund Davíð Gunnlaugs-
son standa vörð um hagsmuni
almennings. Átta prósent töldu
Bjarna Benediktsson standa
vörð um hagsmuni almennings.
Ekki ríkir því mikil bjartsýni
um að senn snúi stjórnmála-
menn við blaðinu og setji fólkið
í landinu í forgang. Fáum virðist
það koma á óvart að áfram eigi
að gefa sameiginlegar auðlindir
okkar útvöldum.
Makrílfrumvarpið er skand-
all. Í aðsendri grein í Frétta-
blaðinu sagði hagfræðingurinn
Jón Steinsson að með frumvarp-
inu væri stigið „risastórt skref í
þá átt að festa varanlega í sessi
það fyrirkomulag að útgerðar-
menn þurfi ekki að greiða eðli-
legt leigugjald til þjóðarinnar
fyrir afnot af sameign þjóðar-
innar“. Hann spurði jafnframt:
„Er ekki tími til kominn að
landsmenn segi hingað og ekki
lengra?“
Hægt er að bregðast við því
hneyksli sem makrílfrumvarpið
er á tvo vegu: Við getum tekið
ráð eðlisfræðingsins Stephen
Hawking til unglingsstúlkna
heimsins til okkar; við getum
fylgst með nýjustu rannsóknum
á sviði kennilegrar eðlisfræði og
yljað okkur við þá tilhugsun að
einhvers staðar, í öðrum heimi,
er eyja í Atlantshafi sem kallast
Ísland þar sem veðrið er gott,
lóan er friðsamleg, makríllinn
arðvænlegur og stjórnmála-
mennirnir heiðarlegir. Eða: Við
getum farið að ráðum hagfræð-
ingsins Jóns Steinssonar, stapp-
að niður fæti og hrópað: „Hingað
og ekki lengra.“
Hómer (ekki Simpson heldur
hinn) kallaði það heilagt efni.
Plató sagði það guðunum sér-
staklega hjartfólgið. Við getum
ekki lifað án þess. En það getur
líka verið banvænt.
Sex þúsund manns létust á
síðustu fjórum árum í Bret-
landi vegna ákvörðunar þar-
lendra stjórnvalda um að hætta
að krefjast þess að matvæla-
fyrirtæki minnkuðu magn
salts í vörum sínum. „Þetta er
harmleikur,“ sagði Graham
MacGregor, hjartalæknir hjá
Queen Mary-háskólanum í Lond-
on, í grein sem birtist í British
Medical Journal í vikunni. „Allt
þetta fólk væri á lífi í dag ef við
hefðum staðið við áætlanir um
að minnka salt í mat.“
Árið 2006 var bresku mat-
vælastofnuninni falið að skera
upp herör gegn salti í matvæl-
um. Árangurinn þótti aðdáunar-
verður. Neysla salts minnkaði
um 15% á árunum 2003 til 2011.
Hjartaáföllum og heilablóðföll-
um fækkaði í kjölfarið en talið
er að allt að 9.000 mannslíf hafi
bjargast vegna aðgerðarinnar.
En svo tók ný ríkisstjórn við.
Átakinu var hætt og var fyrir-
tækjum í sjálfsvald sett hve
mikið salt þau settu í matvælin
sem þau seldu. „Það er eins og
þeim hjá heilbrigðisráðuneyt-
inu sé meira umhugað um hags-
muni matvælaiðnaðarins en
hins almenna neytanda,“ sagði
MacGregor.
„Nei, ekkert taka upp veskið“
Íslensk stjórnvöld eru engir
eftirbátar þeirra bresku þegar
kemur að því að vinna gegn
almannahag. Frumvarp sjávar-
útvegsráðherra um makrílveið-
ar ber þess skýrt vitni. Virðist
frumvarpið vera einhvers konar
sumargjöf til útgerðarinnar.
„Gjörðu svo vel. Já, nei, vertu
ekkert að taka upp veskið, þú
þarft ekki að borga. Bara ekki
gleyma að bjóða mér í næstu
galaveislu. Og þegar ég er ekki
lengur stjórnmálamaður fæ ég
kannski að gerast ritstjóri á dag-
blaðinu þínu.“
Í hvaða heimi það telst íslensk-
um almenningi til hagsbóta
að svo gott sem gefa auðlindir
En svo tók ný ríkis-
stjórn við. Átakinu
var hætt og var fyrirtækjum
í sjálfsvald sett hve mikið
salt þau settu í matvælin
sem þau seldu.
Eðlisfræði læknar ástarsorg
Í DAG
Sif
Sigmarsdóttir
rithöfundur
Þú getur hjálpað!
Sendu sms-ið UNICEF í númerið 1900
og gefðu 1.500 krónur til neyðaraðgerða UNICEF
í kjölfar jarðskjálftans í Nepal.
NEYÐARKALL
FRÁ NEPAL
Börn í Nepal þurfa þína hjálp.
Mikilvægt er að bregðast fljótt
við til að bjarga mannslífum.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
A
-2
F
2
C
1
6
3
A
-2
D
F
0
1
6
3
A
-2
C
B
4
1
6
3
A
-2
B
7
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K