Fréttablaðið - 01.05.2015, Page 25
Kvennalið Snæfells í körfu-bolta tryggði sér Íslands-meistaratitilinn fyrr í vik-
unni, annað árið í röð. Leikurinn
var einnig sögulegur fyrir fyrir-
liða liðsins, Hildi Sigurðardóttur,
sem um leið spilaði sinn síðasta
leik eftir nær aldarfjórðungs
farsælan feril. Hún segir margt
standa upp úr í minningunni.
„Allir Íslandsmeistaratitlarnir
fimm standa upp úr, sérstaklega
tveir síðustu með uppeldisfélagi
mínu Snæfelli. Þegar ég flutti
héðan 17 ára gömul gat ég ekki
séð fyrir mér þetta ævintýri sem
ég hef upplifað í Hólminum. Ég á
ótal minningar tengdar körfubolt-
anum, margir þjálfarar, stjórnar-
menn og fólk í kringum starfið
sem mér þykir virkilega vænt um.“
Hún var lengi búin að velta
fyrir sér þeirri ákvörðun að hætta
í körfubolta og segist ekki sjá
eftir neinu. „Ég vil gera vel það
sem ég tek mér fyrir hendur og
hef metnað í að ná árangri. Það
er svolítið síðan ég fór að finna
fyrir að ég hafði ekki lengur
sömu orku og vilja til að gera
þetta 100% og þá finnst mér rétt
að hætta og njóta mín á öðrum
sviðum.“
Eftir nokkurra ára búsetu í
Stykkishólmi ætlar Hildur að
flytja til höfuðborgarinnar í
sumar. „Ég er að skipuleggja sum-
arið þessa dagana. Þar sem ég
er einnig að leita að góðu starfi
er sumarið aðeins í lausu lofti
en ég ætla þó pottþétt að njóta
lífsins. Ætli ég byrji ekki á að
taka áskorun frá aðstoðarþjálfar-
anum Baldri Þorleifssyni. Hann
er búinn að skora á mig í jökul-
míluna, sem er hjólreiðakeppni
um Snæfellsnesið.“
Hildur segist hafa mikinn
áhuga á eldamennsku en vilji þó
einblína á hollan mat og hún seg-
ist vera lítið fyrir brasaðan mat.
„Þar sem æfingar og leikir eru
yfirleitt á matmálstíma eða þegar
leikir fara fram situr eldamennsk-
an oft á hakanum, sérstaklega
þegar álagið er mikið. Áhuginn
er þó vissulega til staðar og nú
sé ég að minnsta kosti fram á að
sinna betur þessu áhugamáli.“
KJÚKLINGARÉTTUR MEÐ
PESTÓI, FETAOSTI OG DÖÐLUM.
„Í úrslitakeppninni hittumst við
stelpurnar og þjálfarar í liðinu
kvöldið fyrir leiki og borðuðum
saman. Þar sem æfingar eru yfir-
leitt á matartíma þá tók móðir
mín það að sér að elda fyrir okk-
ur. Þessi réttur var matreiddur
kvöldið fyrir úrslitaleikinn og sló
í gegn enda bæði afar einfaldur
og mjög bragðgóður.“
4 stk. kjúklingabringur, skornar
í bita
1 krukka rautt pestó
1 krukka fetaostur
20 stk. döðlur
Öllu hráefni blandað saman í
eldfast form og látið malla í ofn-
inum á 180°C í 30-40 mín (eða þar
til kjúklingurinn er eldaður). Gott
er að bera fram með kjúklingnum
ferskt salat, hrísgrjón og naan-
brauð.
Húðflúr
til frægðar
Rokkabillígoðsögnin
Smutty Smiff fékk
fyrsta tattúið fjórtán
ára. SÍÐA 2
Breytt
tattúmenning
Konur fá sér nú æ
stærri húðflúr segja
Svanur og Sessa á
Tattoo og skarti.
SÍÐA 3
SÍÐASTI BIKARINN Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði Snæfells, fagnar fimmta og síðasta íslandsmeistaratitlinum fyrr í vikunni. Fram
undan er nýr kafli í lífi hennar. MYND/ÓSKARÓ
LJÚFFENGUR Einfaldur og góður kjúk-
lingaréttur sem eldaður var fyrir lokaleik
körfuboltaferils Hildar Sigurðardóttur.
MYND/ÚR EINKASAFNI
GÓÐAR MINNINGAR
TÍMAMÓT Eftir langan og farsælan feril leggur Hildur Sigurðardóttir, leik-
maður Snæfells, skóna á hilluna. Hún ætlar að njóta lífsins í sumar og slaka á.
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
Facebook
Yfirhafnir
laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Sumar-
frakkar
í úrvali
Verð
23.900 .-
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
A
-8
3
1
C
1
6
3
A
-8
1
E
0
1
6
3
A
-8
0
A
4
1
6
3
A
-7
F
6
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K