Fréttablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 42
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
JÓNÍNU ÁRNADÓTTUR
Markarvegi 16 í Reykjavík.
Arna Kristjánsdóttir Ívar Trausti Jósafatsson
Þórður Ingimar Kristjánsson Ann Kristín Hrólfsdóttir
og barnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SVÖLU EIRÍKSDÓTTUR
PÉTURSDÓTTUR
Hjarðarhaga 48, 107 Reykjavík,
áður Grund við Grímsstaðaholt.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild A6 á Landspítala
Fossvogi fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Karl Sigurjón Hallgrímsson Elínborg Einarsdóttir
Sigþór Sævar Hallgrímsson Erla Sighvatsdóttir
Matthildur Sjöfn Hallgrímsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN KRISTINSDÓTTIR
kjólameistari,
Hólmgarði 42, Reykjavík,
andaðist á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut miðvikudaginn 22. apríl. Útförin
fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 5. maí kl. 13.00.
Ægir Ingvarsson Ásta Dóra Valgeirsdóttir
Örn Ingvarsson Hildur Halldórsdóttir
Björk Ingvarsdóttir Trausti Hallsteinsson
Sigurbjörg Ingvarsdóttir Sigurður Rúnar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
SOFFÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
áður til heimilis að Hafnarbraut 8,
Dalvík,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 28. apríl.
Guðmundur Heiðar Óskarsson Arna Gerður Hafsteinsdóttir
Rakel María Óskarsdóttir Gunnar Guðmundsson
Þóra Kristín Óskarsdóttir Haukur Jónsson
Óskar Aðalsteinn Óskarsson Anna Hafdís Jóhannesdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR
Vesturgötu 164,
Akranesi,
lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi
þann 27. apríl. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 5. maí kl. 14.00.
Stefán Guðmundsson Lilja Stefánsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir Þórður Jósepsson
Lísbet Guðmundsdóttir
Guðjón Guðmundsson Brynhildur Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÞORSTEINU SIGURÐARDÓTTUR
Hrafnistu, Reykjavík,
áður Njörvasundi 6.
Við færum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Hrafnistu sérstakar
þakkir fyrir góða umönnun mömmu.
Hafliði Benediktsson Ingibjörg Skarphéðinsdóttir
Helga Benediktsdóttir Jónas R. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir Haukur Hauksson
Erna Benediktsdóttir Steindór Gunnarsson
Birna Benediktsdóttir Daníel Guðbrandsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þann 1. maí 1970 tók Rauðsokku-
hreyfingin þátt í kröfugöngu verka-
lýðsins í Reykjavík. Upphaf hreyfing-
arinnar er miðað við þennan atburð
en Rauðsokkuhreyfingin var baráttu-
hreyfing um kvenfrelsi.
„Það var gríðarlega mikill fjöldi
kvenna í rauðum sokkum sem mætti
í gönguna,“ segir Gerður G. Óskars-
dóttir, menntunarfræðingur og rauð-
sokka, sem mætti í gönguna. „Verka-
lýðshreyfingunni brá við þegar við
mættum allar og vildi ekki í fyrstu
leyfa okkur að vera með. En það gekk
á endanum og allt fór vel,“ segir Gerð-
ur um gönguna sem átti sér stað fyrir
45 árum.
Gerður var meðal annars í því
að hringja í konur og hvetja þær til
að taka þátt í göngunni. „Síðan var
þetta auglýst í útvarpinu þar sem
konur voru hvattar til að mæta í rauð-
um sokkum í gönguna og úr varð að
margar mættu,“ segir Gerður.
Rauðsokkurnar báru gríðarlega
stóra styttu af konu í göngunni. Stytt-
an var með stóran borða strengdan
yfir magann þar sem á stóð, „Mann-
eskja – ekki markaðsvara.“
„Gangan varð til þess að rauð-
sokkuhreyfingin varð til sem byrj-
un á hinu mikilvæga starfi hennar,“
segir Gerður. Rauðsokkuhreyfingin
var mjög tengd verkalýðsbaráttu og
barðist fyrir kjörum verkakvenna
þar til talið var að hreyfingin hefði
náð athygli samfélagsins og gerði fólk
meðvitað um stöðu kvenna. Hreyf-
ingin hvarf árið 1982 þegar margar
innan hennar stofnuðu Kvennafram-
boð. - ag
Báru styttu í göngunni
Fyrir 45 árum tók Rauðsokkuhreyfi ngin þátt í kröfugöngu verkalýðsins og vakti mikla
athygli. Gangan markar upphaf hreyfi ngarinnar sem barðist lengi fyrir réttindum kvenna.
GANGAN BYRJUN Á MIKILVÆGU STARFI Gerður tók þátt í að hringja í konur og hvetja þær til að mæta í gönguna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BARÁTTUGLEÐI Hér sést hluti göngunnar árið 1970. MYND/GVA
Síðan var þetta aug-
lýst í útvarpinu þar sem
konur voru hvattar til að
mæta í rauðum sokkum í
gönguna og úr varð að
margar mættu.
„Aðalstarf mitt er við rannsóknir og við
höfum birt fjölda vísindagreina í virt-
um ritrýndum tímaritum. Þetta hefur
vakið athygli og ég hef ferðast víða til
að segja frá rannsóknunum. Ég hef líka
verið heppinn með samstarfsfólkið, það
er eintómir snillingar,“ segir Sigurður
Yngvi Kristinsson spurður um tilefni
verðlauna sem honum hlotnuðust nýlega.
Hann er yngsti prófessor við Lækna-
deild Háskóla Íslands og í hlutastarfi á
Landspítalanum.
Sigurður Yngvi kveðst hafa lagt
áherslu á að rannsaka sjúklinga með
beinmergskrabbamein sem kallast
merg æxli, horfur þeirra, fylgikvilla og
ættlægni sjúkdómsins, auk áhættuþátta.
Sigurður Yngvi flutti frá Svíþjóð
2012, eftir sérnám og störf við Karól-
ínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Skyldi
hann hafa sleppt góðri stöðu þar til að
koma heim? „Ég hefði getað verið áfram
í ágætri stöðu á Karólínska en okkur í
fjölskyldunni langaði að flytja heim.
Auðvitað var líka lúxus fyrir mig að fá
þessa stöðu sem ég er í og að geta ein-
beitt mér að rannsóknum, það er ekki
sjálfgefið á þessu landi. Konan mín er
nýrnalæknir og við eigum þrjú börn, sjö,
fjórtán og sextán ára. Það voru ekki síst
börnin sem komu mér heim.“
Eflaust muna margir eftir Sigurði
Yngva úr danskeppnum fyrri ára og
jafnvel úr sjónvarpinu þegar hann dans-
aði í íslensku Eurovision-keppninni með
Önnu Mjöll. „Ég er ekki það ungur enn
að ég sé að dansa eða keppa,“ segir hann
þegar þetta er rifjað upp. „En auðvitað
dansa ég þegar ég er að skemmta mér.“
gun@frettabladid.is
Heppinn með samstarfsfólk
Sigurður Yngvi Kristinsson, sérfræðilæknir og prófessor, hlaut 3,5 milljóna króna
verðlaun fyrir vísindastörf á árlegri uppskeruhátíð vísindastarfs Landspítalans.
VERÐLAUNAHAFI Sigurður Yngvi ákvað að
synda á móti straumnum og flytja heim til
Íslands til að sinna rannsóknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
A
-7
9
3
C
1
6
3
A
-7
8
0
0
1
6
3
A
-7
6
C
4
1
6
3
A
-7
5
8
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K