Fréttablaðið - 01.05.2015, Síða 50
1. maí 2015 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
FÖSTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
01. MAÍ 2015
Leiklist
20.00 Sýningin Endatafl frumsýnd í
Tjarnarbíó. Verkið er eftir írska Nóbel-
skáldið Samuel Beckett og var frum-
sýnt árið 1957. Leikarar í verkinu eru
þau Þorsteinn Bachmann, Þór Tulinius,
Harpa Arnardóttir og Stefán Jónsson
en um leikstjórn sér Kristín Jóhannes-
dóttir. Miðaverð er 3.900 krónur.
20.00 Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir
leikritið Ubba kóng – skrípaleik í
mörgum atriðum í Gaflaraleikhúsinu.
Miðaverð er 2.500 krónur.
Opnanir
15.00 Katrín Erna Gunnarsdóttir
opnar sína fyrstu einkasýningu BROT/
FRACTURES í Mjólkurbúðinni í
Listagilinu á Akureyri. Sýnd verða verk
unnin með vatnslitum á brotinn pappír.
Sýningin stendur þessa einu helgi. Allir
velkomnir.
20.00 Listakonan Auður Ómarsdóttir
opnar einkasýningu í galleríi Ekkisens í
dag. Sýningin ber nafnið FJALL og rann-
sakar Auður leitina að heilaga fjallinu,
formi þess og hið innra og ytra ferða-
lag. Sýningin verður opin í vikutíma.
Farandsýning um kvenréttindabaráttu
í 100 ár verður opnuð í Hofi, Akureyri.
Sýningin er á vegum Kvenréttindafélags
Íslands í samvinnu við Akureyrarbæ og
Menningarfélag Akureyrar.
Uppistand
20.00 Lengi lifi Mið-Ísland í Bíóhöllinni,
Akranesi. Miðaverð er 3.000 krónur.
21.30 Uppistandarinn Will Mars verður
á Bar 11 í kvöld. Miðaverð 2.000 krónur.
Sýningar
13.30 Opin sýning í MÍR-salnum, Hverf-
isgötu 105, á sovéskum ljósmyndum og
veggspjöldum úr síðari heimsstyrjöld-
inni. Aðgangur ókeypis.
16.30 Vorsýning Listdanskóla Hafnar-
fjarðar í Borgarleikhúsinu. Þemað er
ævintýrið um Hans og Grétu. Tvær sýn-
ingar í dag og hefst sú seinni klukkan
18.30. Miðaverð er 2.500 krónur.
Tónleikar
17.00 Kór Öldutúnsskóla heldur upp
á 50 ára starfsafmæli með tónleikum
í Víðistaðakirkju. Á efnisskránni eru
lög úr ýmsum áttum og einnig verður
verkið Sancta Caecilia
frumflutt en höfundur
verksins er Bára Gísla-
dóttir. Aðgangur á
tónleikana er ókeypis
en tekið á móti
frjálsum framlögum.
20.00 Karlakór Kópa-
vogs ásamt góðum
gestum efnir til vor-
tónleika í Salnum
Kópavogi. Miðaverð
er 4.500 krónur.
20.30 Sæluvikutón-
leikar á Sauðárkróki.
Jógvan Hansen, Birgitta
Haukdal og fleiri tón-
listarmenn flytja
gömul og góð
íslensk dægurlög.
Eftir tónleikana
er ball með
hljómsveitinni
Von. Miðaverð
á tónleika og
ball er 5.900
krónur.
21.00 Andrea Gylfadóttir og Eðvarð
Lárusson verða á RúBen, Grundarfirði í
kvöld. Miðaverð 2.500 krónur.
22.00 Hljómsveitin Vio spilar á Græna
hattinum, Akureyri í kvöld. Miðaverð er
2.000 krónur.
Uppákomur
11.00 Kröfuganga stéttarfélaganna á
Ísafirði. Lagt af stað frá Pólgötu 2 og
niður að Edinborgarhúsi með lúðra-
sveitina í fararbroddi. Tónlistaratriði,
súpa og kvikmyndasýningar fyrir börnin
í Ísafjarðarbíóí.
11.00 Verkalýðsfélag Þórshafnar býður
frítt í Íþróttamiðstöðina á Þórshöfn og
súpu og brauð í hádeginu.
14.00 Foreldrafélagið Velvakandi heldur
bingó í Félagsheimilinu Hnitbjörgum á
Raufarhöfn. Spjaldið kostar 500 krónur.
14.00 Fjölskyldudagur Mótorsmiðjunar
til styrktar Barnaspítala Hringsins í
Skipholti 5 í dag. Heitar vöfflur, kaffi,
góðgæti af grillinu og happdrættismið-
ar gegn vægu gjaldi. Lifandi tónlist
og skemmtiatriði. Allur ágóði rennur
óskiptur til Barnaspítala Hringsins.
20.00 Útgáfu Íllgresis, málgangs Ungra
vinstri grænna fagnað á Gauknum.
Opið hús
14.00 Opinn dagur á Bifröst. Nemend-
ur, kennarar og starfsfólk kynna námið
við skólann og íbúðir nemenda verða
sýndar. Boðið upp á vöfflur og kaffi.
Hoppukastalar fyrir yngri kynslóðina.
Tónlist
21.00 Trúbadorarnir Alexander og Guð-
mann verða á American Bar í kvöld.
22.00 Dj Anna Brá með Rockabilly
Rockout á Lebowski bar í kvöld.
22.00 Dj Casanova þeytir skíf-
um á Kaffibarnum í kvöld.
22.00 Dj KGB þeytir
skífum á Paloma í kvöld.
22.00 Frank Raven, Logi
Marr og Lelló á Dillon í
kvöld. Frítt inn.
22.00 Dj Styrmir Örn
þeytir skífum á Bar-
Ananas í kvöld.
23.30 Júlladiskó á Gull-
öldinni Sportbar í kvöld.
Upplýsingar um við-
burði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig
er hægt að skrá þá inni
á visir.is.
Þriðja einkasýning myndlistakon-
unnar Auðar Ómarsdóttur verður
opnuð í galleríi Ekkisens í kvöld.
Sýningin ber nafnið Fjall og
hefur Auður unnið ósjálfráðar
heilunarteikningar yfir nokkurra
mánaða skeið sem umbreytast
á sýningunni í eina heild en slík
tegund af teikningum er vel þekkt
í myndlistarheiminum og vinnur
listamaðurinn þær á ómeðvitaðan
hátt, oft á tíðum þegar hann er að
gera eitthvað annað, til dæmis tala
í símann.
„Ég sat til dæmis bara á fund-
um og byrjaði að teikna án þess
að ég væri að spá í hvað ég væri
nákvæmlega að gera,“ segir
Auður um verkin.
„Á endanum fór ég að sjá fjöll
og fattaði eftir á að þetta var
svona heilandi, eins og þetta væri
hugleiðslan mín.“
Á sýningunni rannsakar hún
leitina að heilaga fjallinu, form
fjallsins og hið innra og ytra
ferðalag og er sýningin helguð
öllum fjöllunum sem þarf að klífa
og samanstendur af teikningum
sem Auður hefur fært yfir á aðra
miðla. „Ég byrjaði á að gera teikn-
ingar sem ég yfirfærði í skúlp-
túra, málverk og í vídeóverk sem
er innsetning þar sem ég prentaði
sömu teikningarnar á plastfilmur
og er búin að byggja risastórt fjall
úr þeim.“
Sýningin verður opnuð í Ekki-
sens í kvöld klukkan 20.00 og
verður opin í vikutíma. Boðið
verður upp á léttar veitingar á
opnuninni.
Leitin að heilaga fj allinu rannsökuð
Sýningin Fjall með verkum eft ir listakonuna Auði Ómarsdóttur verður opnuð í
galleríi Ekkisens í kvöld.
AUÐUR ÓMARSDÓTTIR Sýningin Fjall
verður opnuð í Ekkisens í kvöld klukkan
átta. MYND/JONATANGRETARSSON
Í dag er opinn dagur hjá
Háskólanum á Bifröst þar sem
áhugasömum gefst kostur á
að kynna sér skólann og starf
hans.
Meðal annars verður boðið
upp á gönguferðir um skóla-
svæðið og hægt að fræðast um
sögu hans, skoða byggingar og
aðstöðu nemenda.
Eins verða sviðstjórar deilda
á staðnum og kynna námið auk
kennara, nemenda og annarra
starfsmanna skólans.
Fyrir yngri kynslóðina verð-
ur hoppukastali, leikhópurinn
Lotta með sýningu og boðið
upp á vöfflukaffi í hátíðarsal
skólans og því kjörið fyrir fjöl-
skyldufólk að kynna sér starf-
semi Bifrastar sem býður upp
á fjölda námsbrauta í grunn-
og meistaranámi, háskólagátt
og fjölbreytt námsúrval á sviði
símenntunnar.
Opni dagurinn hefst klukk-
an 14.00 og stendur til klukkan
17.00 í Háskólanum á Bifröst
og eru allir boðnir velkomnir.
Opið á Háskólanum á Bifröst
Gönguferðir, sögufræðsla og aðstaða nemenda, auk þess sem starfsmenn og
nemendur verða á staðnum.
OPIN DAGUR Áhugasömum gefst kostur á að kynna sér skólann og þær námsleiðir
sem þar eru í boði. MYND/BIFRÖST
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
9
-B
3
B
C
1
6
3
9
-B
2
8
0
1
6
3
9
-B
1
4
4
1
6
3
9
-B
0
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K