Fréttablaðið - 06.05.2015, Side 46
6. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Ég er alveg rosalega spenntur
fyrir þessu og það er mjög þýð-
ingarmikið fyrir myndina að fá
framleiðanda Boyhood með okkur
í lið,“ segir Erlingur Jack Guð-
mundsson, einn framleiðenda
bandarískrar endurgerðar á mynd-
inni Benjamín dúfa. „Hún las hand-
ritið að myndinni og heillaðist gjör-
samlega af sögunni, fannst hún
raunveruleg og einstaklega hjart-
næm.“
Með honum vinna einnig fram-
leiðendurnir Cathleen Sutherland
Óskarsverðlaunahafi og Susan
Kirr, sem framleiddi kvikmynd-
ina The Tree of Life. „Ég er búinn
að vinna þetta með Kirr og leik-
stjóranum og handritshöfundinum
Brandon Dickerson. Þeim fannst
vanta einn framleiðanda í viðbót og
þannig kom Sutherland inn í þetta
verkefni,“ segir Erlingur.
Það eru komin þrjú ár síðan
hann bar það undir höfund bókar-
innar, Friðrik Erlingsson, að gera
bandaríska útgáfu af myndinni. „Í
gegnum sambönd sem ég hef þá
kynntist ég Kirr, og plataði hana til
þess að lesa bókina. Hún gerði það
og fannst hún auðvitað svo frábær
að hún gat ekki með nokkru móti
lagt hana frá sér.“ Til stendur að
hefja tökur á myndinni í ágúst, en
prufur fyrir helstu hlutverkin eru
á lokastigi. Hann segir mjög líklegt
að einhver þekkt nöfn verði í auka-
hlutverkum í myndinni, en getur
ekki gefið það upp að svo stöddu.
„Sá sem er að aðstoða okkur við að
finna stráka í aðalhlutverkin var
„casting director“ í myndinni No
Country for Old Men. Eins og er
þá erum við að skoða um fimmtán
stráka sem koma til greina í aðal-
hlutverkin,“ segir hann.
Myndin verður tekin upp í
Texas, og mun henni svipa mjög
til íslensku útgáfunnar, sem fagn-
ar tuttugu ára afmæli sínu í ár.
adda@frettabladid.is
Óskarsverðlaunahafi
gerir Benjamín dúfu
Framleiðandi Óskarsverðlaunamyndarinnar Boyhood, Cathleen Sutherland,
framleiðir bandarísku útgáfuna af íslensku myndinni Benjamín dúfu.
SPENNANDI TÍMAR Erlingur Jack Guðmundsson, einn framleiðendanna, segir mikinn feng að fá framleiðanda Boyhood.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Við erum bara á fullu að æfa atriðið núna. Það
er tilbúið og nú erum við bara að renna því í
gegn,“ segir María Ólafsdóttir Eurovision-fari,
en hún heldur út til Austurríkis þann 13. maí.
„Hera Björk kom heim í vikunni og ég tók
fyrstu æfinguna með henni á mánudaginn. Það
var gott að fá hana og taka alvöru æfingu, ekki
bara í gegnum Skype,“ segir María. Hera er í
bakraddahóp hennar með þeim Friðriki Dór,
Ásgeiri Orra, Ölmu Rut og Írisi Hólm. „Það
verður snilld að hafa hana með því ég veit
að Eurovison-aðdáendur elska Heru, þannig
að þeir bilast sennilega þegar þeir sjá hana,“
segir hún og hlær.
Ferðalagið leggst vel í Maríu, en hún segir
ferðina til Rússlands í lok apríl hafa verið góða
æfingu. „Ég fékk smá sjokk á blaðamanna-
fundinum, en það var bara fín æfing fyrir
keppnina.“
Kjóllinn sem María klæðist í keppninni verð-
ur frumsýndur í Kringlunni á laugardag. „Ég
er búin að prófa æfingakjólinn og aðalkjóllinn
er alveg að verða tilbúinn.“ En hvaða land held-
ur María að sigri í Eurovision? „Ég hélt að Sví-
þjóð myndi vinna, en eftir að ég sá ástralska
strákinn þá held ég að hann taki þetta. Hann er
rosalega góður.“ - asi
Eurovision-kjóllinn frumsýndur um helgina
María Ólafsdóttir er á fullu við æfi ngar og undirbúning þessa dagana fyrir stóru keppnina.
STUTT Í STÓRA DAGINN María heldur út til Austur-
ríkis eftir viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jör-
undsson, sem er flestum kunnur
sem stofnandi og yfirhönnuður
tískuhússins JÖR by GUÐMUND-
UR JÖRUNDSSON, stendur fyrir
tveggja vikna fatahönnunarnám-
skeiði.
„Ég man þegar ég var að byrja í
náminu að það vantaði svona svo-
litla kynningu á þessu. Þegar ég
byrjaði í LHÍ vissi ég ekkert hvað
ég var að gera,“ segir hann og
bætir við: „Innsýn inn í hvernig
þessi bransi er frá einhverjum sem
er búinn að vera að vinna í þessu,
það er svona svolítið öðruvísi en
námið.“
Námskeiðið, sem taka mun á
helstu undirstöðuatriðum hvað
varðar hönnun og gerð fatalínu,
stendur yfir í tvær vikur og mun
nemendum verða úthlutað heima-
verkefnum og munu þeir hanna
eigin fatalínu. „Rannsóknarvinnan
verður líka kennd, en hún er mikil-
vægur þáttur í þessu, kynna það að
halda utan um skissubók, velja efni
og liti sem fitta og svona,“ segir
Guðmundur og að hans sögn eiga
bæði byrjendur og lengra komnir
heima á námskeiðinu sem hugsað
er fyrir fimmtán ára og upp úr.
„Það er áhugavert að sjá um hvað
þetta snýst og ef maður er að pæla í
að fara að læra þetta þá fær maður
svona „touch base“,“ segir Guð-
mundur að lokum.
Námskeiðið hefst þann 17. maí
næstkomandi og stendur yfir í tvær
vikur en fyrir frekari upplýsingar
er hægt að hafa samband við info@
jorstore.com - asi
Innsýn í hvernig bransinn virkar
Guðmundur Jörundsson stendur fyrir tveggja vikna fatahönnunarnámskeiði.
HELDUR NÁMSKEIÐ Guðmundur
Jörundsson stendur fyrir tveggja vikna
fatahönnunarnámskeiði fyrir fimmtán
ára og eldri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Haninn í Skeifunni. Yfirburða staður,
aldrei farið óánægður þaðan.“
Jóhann Laxdal, knattspyrnumaður.
BESTI BITINN
RISA
LAGER
SALA
BÍLDSHÖFÐA 9
BÍLANAUSTSHÚSIÐ
OPNUNARTÍMI: LAU. 1100–1700, SUN. 1300–1700, MÁN.–FÖS. 1200–1800
EIN STÆRSTA LAGERSALA
FYRR OG SÍÐAR Á ÍSLANDI
EKKI
MISSA AF
ÞESSU!
AÐEINS
Í NOKKRA
DAGA!
25TIL
70% AFSLÁTTUR
Leggur grunn að góðum degi – fyrir lifandi heimili –
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
B
-8
3
D
C
1
6
3
B
-8
2
A
0
1
6
3
B
-8
1
6
4
1
6
3
B
-8
0
2
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K