Morgunblaðið - 02.12.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.12.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Vegna skorts á dýpri skilningi á með- alstórum jarðskjálftum í Bárðar- bungu tel ég varhugavert að lýsa því yfir, líkt og gert hefur verið, að það séu einna minnstar líkur á þeim möguleika að það verði eldgos í Bárð- arbungu,“ segir Ingi Þorleifur Bjarnason jarðeðlisfræðingur. Hinir möguleikarnir eru að eldgos í Holuhrauni haldi áfram eða að það byrji að gjósa í sprungu undir jökli. „Ég hef komið þeirri skoðun á framfæri við almannavarnir að það eigi að leggja mikla áherslu á við- brögð vegna mögulegs eldgoss í Bárð- arbungu, vegna þess að sá mögu- leiki gæti valdið mestum skaða.“ Varðandi þá óvissu sem Ingi Þorleifur telur um framhald atburða vísar hann til fyrri rannsókna sinna máli sínu til stuðn- ings, nánar tiltek- ið á meðalstórum skjálftum af stærð- inni 5-5,9. Yfir 60 slíkir skjálftar hafa orðið síðan gos í Holuhrauni hófst. „Árin 1993 til 1996 var ég með stórt net skjálftamæla sem gátu skráð allt tíðnisvið skjálftabylgna við Bárðar- bungu. Markmið þess var að rann- saka möttulstrókinn undir Íslandi. Ég setti þá fram eftirfarandi hug- mynd sem gekk þvert á aðrar hug- myndir:“ Skjálftarnir táknuðu ris „Hún var sú að röð meðalstórra Bárðarbunguskjálfta á árunum 1973- 1996 hefði verið merki um að kvika hefði verið að safnast fyrir í Bárðar- bungu í um það bil aldarfjórðung og að fjallið hefði verið að rísa. Að þessir skjálftar táknuðu ris í öskju Bárðar- bungu en ekki sig eins og aðrir vís- indamenn höfðu haldið fram,“ segir Ingi Þorleifur og víkur að atburða- rásinni við eldfjallið síðan eldgos hófst í Holuhrauni 29. ágúst. Nú mæli GPS-staðsetningartæki sig í öskjunni. „Bárðarbunguskjálftarnir núna sýna einmitt öfuga hreyfistefnu miðað við það sem þeir gerðu áður. Nú vitum við að askjan er að síga og að meðalstóra skjálfta er vel hægt að túlka sem sig í öskjunni, líkt og þeir voru tengdir við ris í henni áður. Kjarni málsins er sá að þetta eru óvenjulegir skjálftar á heimsvísu, þótt ekki séu þeir alveg einstakir, og fræðin eru því ekki komin mjög langt í dýpri skilningi á þessari tegund skjálfta. Því verðum við að vera sér- staklega opin fyrir mikilli óvissu í framgangi jarðhræringa í Vatnajökli í dag,“ segir Ingi Þorleifur. Ekki hægt að útiloka gos  Jarðeðlisfræðingur kallar eftir viðbúnaði ef til eldgoss í Bárðarbungu kemur  Segir fyrri rannsóknir á skjálftum í Bárðarbungu undirstrika óvissu í greiningu Ingi Þorleifur Bjarnason Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragna Erlendsdóttir, tveggja barna einstæð móðir í Reykjavík, fékk boð frá tveimur ókunnugum íbúðareig- endum í Reykjavík um tímabundin afnot af íbúðunum án endurgjalds. Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær er Ragna komin á götuna eftir að hafa misst tíma- bundið húsnæði. Fjárhagur Rögnu er erfiður eftir mikil útgjöld vegna veikinda dóttur hennar, Ellu Dísar, sem lést eftir langvinn veikindi sl. sumar. Íbúðir í Breiðholti og Vesturbæ Saga Rögnu hreyfði við lesendum Morgunblaðsins sem buðu henni húsnæði í Breiðholti og Vesturbæ. „Ég ætla að taka boðinu og vera í íbúðinni í Vesturbænum í þrjár vik- ur. Þá kemur annar í íbúðina og ég færi mig yfir í aðra íbúð í eigu fjöl- skyldu í Breiðholti sem er að fara til útlanda. Þau leyfa mér að vera í íbúðinni frá og með 19. desember til 2. janúar. Hvað gerist í framhaldinu er óvíst,“ segir Ragna. Hún var á leið í hótelíbúð í mið- borg Reykjavíkur þegar boðin um íbúðirnar tvær bárust. Hún hafði bókað gistingu fram á föstudag og fékk hún fyrirframgreiðslu þriggja af þeim nóttum fellda niður þegar henni stóð annað húsnæði til boða. Hyggst hún flytja sig um set í dag. Eigandi íbúðarinnar í Vestur- bænum er búsettur í Danmörku. Um miðjan dag í gær hafði Sól- veig Kaldalóns Jónsdóttir samband við Morgunblaðið en hún býr í Stege í Danmörku. Sagðist hún eiga íbúð með húsgögnum og öðrum húsbúnaði í Vesturbæ Reykjavíkur sem yrði ónotuð til 20. desember. Vildi hún gjarnan lána Rögnu og dætrum hennar íbúðina án endur- gjalds, þó ekki yfir hátíðarnar því þá myndi systursonur hennar dvelja þar með konu sinni. Eftir áramótin kæmu frekari afnot af íbúðinni til greina. „Það er hjónarúm í svefnherberg- inu og svefnsófi í stofunni og rúmföt og sængur og koddar fyrir fimm. Það er allt í íbúðinni og vantar ekk- ert,“ sagði Sólveig sem hafði aldrei heyrt Rögnu getið fyrr en í gær. Sólveig og eiginmaður hennar, sem er læknir, eiga bújörð og rækta hveiti, bygg, hafra og sykurrófur. Hefur búið í Danmörku í 40 ár „Ég á sjö rollur sem bera á vorin. Ég er 65 ára hjúkrunarfræðingur og hef búið í Danmörku í yfir 40 ár. Ég á þrjú börn á aldur við Rögnu og svo á ég barnabörn. Þegar ég heyrði af Rögnu og að hún hefði átt veika dóttur fannst mér sem hjúkrunarfræðingi leitt að það skyldi ekki vera til hjálp fyrir hana,“ segir Sólveig sem fluttist til Danmerkur árið 1972 til að læra svæfingarhjúkrun. Sólveig fylgist með fréttum frá Íslandi og hefur áhyggjur af húsnæðismálum. „Kerfið er orðið fátækt á Íslandi ef það getur ekki hugsað um þá sem eiga erfitt í þjóð- félaginu. Ég held að Danir hugsi betur um fólk í slíkum vanda,“ segir Sólveig. Ókunnugt fólk bauð Rögnu íbúðir til afnota Morgunblaðið/Kristinn Sofið rótt Ragna og dætur hennar geta hallað höfðinu á koddann í vinalegu húsnæði sem þeim hefur verið boðið. Þær mæðgur eru öruggar með húsaskjól til áramóta hið minnsta – eftir það tekur óvissan við á ný.  Mæðgurnar fá að búa þar um tíma án endurgjalds Í tillögum meiri- hluta fjárlaga- nefndar er eftir- farandi tillaga um aukafjárveit- ingu til ríkislög- reglustjóra: Lögð er til 41 m.kr. hækkun á framlagi til að kosta mannaða öryggisgæslu lög- reglu á Bessastöðum. Um er að ræða mat ríkislög- reglustjóra á því hvað slík gæsla kostar á ári. Þar er engin öryggis- gæsla og brýnt að bæta úr því, enda sker embættið sig úr að þessu leyti þegar kemur að öryggi æðstu stjórnar ríkisins. Talið er heppileg- ast að lögreglan annist gæsluna þar sem um er að ræða aðsetur og heimili forseta auk þess sem menn- ingarverðmæti eru á staðnum og töluverður átroðningur ferða- manna. 41 milljón í öryggis- gæslu á Bessastöðum Bessastaðir. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Almenn heimild ráðherra til að ákveða aðsetur stofnana sem undir hann heyra verður endurvakin sam- kvæmt frumvarpi til laga um breyt- ingar á lögum um Stjórnarráð Ís- lands. Flutningur Fiskistofu til Akureyrar heyrir meðal annars undir þetta ákvæði en ekki hefur gengið þrautalaut að flytja starfsemina norð- ur yfir heiðar. Tillaga fjárlaganefndar um flutn- inginn gerir ráð fyrir að flutningurinn kosti 200 milljónir króna. „Stærsti kostnaðarliðurinn er vegna þeirra starfsmanna sem ekki flytjast með stofnuninni norður,“ segir í tillög- unni. Samkvæmt tillögunum verða 70 milljónir teknar af byggðaáætlun rík- isstjórnarinnar, 60 milljónir koma úr ríkissjóði og loks verða 45 milljónir teknar af núverandi fjárheimildum stofnunarinnar. Alls verða því 175 milljónir greiddar á árinu 2015 en af- gangurinn, 34 milljónir, verður greiddur árið 2016. Opinberum störf- um á Akureyri mun fjölga um rúm- lega tuttugu með flutningnum. Ákvæðið um staðsetningu stofnana var í eldri lögum. „Í eldri lögum um Stjórnarráð Íslands var kveðið á um heimild ráðherra til að ákveða aðset- ur stofnana sem undir hann heyra. Heimild féll niður Sú heimild féll hins vegar niður án skýringa við endurskoðun laganna árið 2011 og án þess að umræða hefði farið fram um þá breytingu á Alþingi. Er talið rétt og eðlilegt að umrædd lagaheimild verði endurvakin enda hefur verið litið svo á að ákvörð- unarvald um þetta sé eðlilegur hluti stjórnunarheimilda ráðherra gagn- vart stofnunum sem undir hann heyra. Að óbreyttu má ætla að sérstaka lagaheimild þyrfti í hverju tilviki ef staðsetja ætti stofnun í hús utan sveitarfélagamarka Reykjavíkur. Verður slíkt vart talið eðlilegt,“ segir í frétt á vef forsætisráðuneytisins. Ráðherra ráði staðsetningu  Eðlilegur hluti heimilda ráðherra að ráða hvar stofnanir séu staðsettar Morgunblaðið/Þórður Í ráðuneytinuStarfsmenn Fiski- stofu mótmæltu flutningum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.