Morgunblaðið - 02.12.2014, Side 30

Morgunblaðið - 02.12.2014, Side 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Slökkvilið höfuborgasvæðisins Munið að slökkva á kertunum Látið kerti aldrei loga innanhúss án eftirlits Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaun- anna voru kynntar við hátíðlega athöfn á Kjar- valsstöðum í gær í 26. sinn. Tilnefnt er í flokki barna- og unglingabóka, fagurbókmennta og fræðibóka og rita almenns efnis, en fimm bæk- ur eru tilnefndar í hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin fyrir þær þrjár bækur sem hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin er ein milljón króna hver. Íslensku bókmennta- verðlaunin 2014 verða afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Ís- lands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöð- um. Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka:  Síðasti galdrameistarinn eftir Ármann Jak- obsson.  Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur.  Nála – riddarasaga eftir Evu Þengilsdóttur.  Fuglaþrugl og naflakrafl eftir Þórarin Eld- járn og Sigrúnu Eldjárn.  Maðurinn sem hataði börn eftir Þórarin Leifsson. Dómnefnd skipuðu þau Helga Ferdinands- dóttir, sem var formaður, Árni Árnason og Þorbjörg Karlsdóttir. Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta:  Þrír sneru aftur eftir Guðberg Bergsson.  Koparakur eftir Gyrði Elíasson.  Kok eftir Kristínu Eiríksdóttur.  Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson.  Velúr eftir Þórdísi Gísladóttur. Dómnefnd skipuðu þau Tyrfingur Tyrfings- son, sem var formaður, Erna Guðrún Árna- dóttir og Knútur Hafsteinsson. Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:  Hljóðin í nóttinni eftir Björgu Guðrúnu Gísladóttur.  Sveitin í sálinni – Búskapur og ræktun í Reykjavík 1930-1970 eftir Eggert Þór Bern- harðsson.  Gunnlaugur Halldórsson – Arkitekt í rit- stjórn Péturs H. Ármannssonar.  Lífríki Íslands – Vistkerfi lands og sjávar eftir Snorra Baldursson.  Náttúra ljóðsins – Umhverfi íslenskra skálda eftir Svein Yngva Egilsson. Dómnefnd skipuðu þau Hildigunnur Sverr- isdóttir, sem var formaður, Aðalsteinn Ingólfs- son og Pétur Þorsteinn Óskarsson. Formenn dómnefndanna þriggja munu velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki ásamt forsetaskipuðum formanni lokadómnefndar. Samhliða tilnefningum til Íslensku bók- menntaverðlaunanna mun dómnefnd á vegum Bandalags þýðenda og túlka kynna þær fimm þýðingar sem tilnefndar eru til Íslensku þýð- ingaverðlaunanna. Bandalag þýðenda og túlka hefur staðið fyrir Íslensku þýðingaverðlaun- unum frá árinu 2005 og veitir forseti Íslands þau á degi bókarinnar, 23. apríl ár hvert á Gljúfrasteini. Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2014:  Listin að vera einn eftir Shuntaro Tanikawa í þýðingu Gyrðis Elíassonar.  Út í vitann eftir Virginiu Woolf í þýðingu Herdísar Hreiðarsdóttur.  Uppfinning Morles eftir Adolfo Bioy Cas- ares í þýðingu Hermanns Stefánssonar.  Náðarstund eftir Hannah Kent í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar.  Lífið að leysa eftir Alice Munro í þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur. Dómnefnd skipuðu þau Árni Matthíasson, sem var formaður, María Rán Guðjónsdóttir og Tinna Ásgeirsdóttir. Íslensku bókmenntaverðlaununum var kom- ið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Fé- lags íslenskra bókaútgefenda. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verð- launanna og greiða fyrir það ákveðið gjald. silja@mbl.is Fimmtán ólíkar bækur tilnefndar Morgunblaðið/Kristinn Ánægð Höfundar tilnefndu bókanna, frumsaminna og þýddra, tóku stoltir við viðurkenningarskjali og blómum við athöfn á Kjarvalsstöðum í gær.  Verðlaunaféð nemur einni milljón í hverjum flokki Maríustund er yfirskrift tónleika í Hafnarborg í dag kl. 12 þar sem fram koma Hanna Þóra Guðbrands- dóttir sópran og Antonía Hevesi pí- anóleikari sem jafnframt er list- rænn stjórnandi tónleikaraðar- innar. Á efnisskránni eru ljóð, bænir og aríur sem tengjast heil- agri Maríu og jólunum. Hanna Þóra lauk söngprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2005. Meðal hlutverka sem Hanna Þóra hefur sungið eru Genovefa í Systur Angelicu eftir Puccini, Greifynjan í Brúðkaupi Fígarós eft- ir Mozart, og Ines í Il Trovatore eft- ir Verdi. Hún söng einsöng í Ragn- heiði eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson og fór með hlut- verk í Skáldinu og biskupsdóttur- inni eftir Alexöndru Chernyshova og Guðrúnu Ásmundsdóttur. Árið 2011 var Hanna Þóra útnefnd bæj- arlistamaður Akraness. Húsið verður opnað kl. 11.30 og tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Að- gangur er ókeypis. Maríustund í Hafnar- borg í hádeginu í dag Söngkonan Hanna Þóra Guð- brandsdóttir syngur í Hafnarborg. Jón Ólafsson prófessor og Lára Magnúsardóttir lektor flytja hádegis- fyrirlestra undir yfirskriftinni: „Söguskoðun, heimspeki og sam- félag“ á vegum Sagnfræðingafélags Íslands í fyrirlestrasal Þjóðminja- safnsins í dag og hefjast þeir kl. 12:05. Í fyrirlestri sínum notast Jón við tvö nýleg dæmi úr kaldastríðs- umræðu, eitt danskt og annað ís- lenskt, til að velta vöngum yfir því hvers vegna einstök atvik og persón- ur kaldastríðsáranna halda áfram að kynda undir pólitískum deilum sam- tímans. „Kirkjan í sögu vestrænna ríkja er sambærileg við kommúnistaríki 20. aldar að því leyti að þar er um að ræða stofnun sem tilheyrir fortíðinni og nokkuð almenn og nokkuð við- tekin sýn ríkir um hlutverkið sem hún lék. Á síðustu áratugum hefur áhugi á stöðu trúarstofnana innan ríkis aukist og mikilvægi þess að geta tekið gagnlega afstöðu til hennar,“ segir m.a. um erindi Láru. Fjalla um söguskoðun, heimspeki og samfélag Jón Ólafsson Lára Magnúsardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.