Morgunblaðið - 22.12.2014, Side 1
M Á N U D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 299. tölublað 102. árgangur
FINNST SÉRLEGA
RÓANDI AÐ
PRJÓNA PEYSUR
GENGIÐ GEGN
RÓMANTÍSKRI
TÚLKUN
FINNST GAMAN AÐ
TEIKNA KONUR,
HÁR OG NEF
SJÁLFSTÆTT FÓLK 34 LÓABORATORÍUM 36KRISTINN ÓMARSSON 10
dagar til jóla
2
Ketkrókur kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
www.kaupumgull.is
frá kl. 11.00
til 17.00.
Nánar á bls.
Græddu
águlli
Kringlunni
3. hæð í dag
Upplýsingar og tímapantanir:
Sverrir s. 661-7000
Breyttar áherslur og ný forgangs-
röðun hefur stytt biðtíma sjúklinga
sem leita á bráðadeild Landspítalans
í Fossvogi. Fyrirmynd breytinganna
kemur frá hinum enskumælandi
heimi, Bandaríkjunum, Kanada og
Eyjaálfu. Hilmar Kjartansson, yfir-
læknir bráðadeildar, segir nýtt fyr-
irkomulag fara vel af stað og þjón-
ustan hafi batnað enda starfsfólk
spítalans samtaka. Dæmi eru um að
biðtími hafi verið styttur úr 80 í 27
mínútur.
Húsnæðisvandi spítalans er þó
enn óleystur og breytingar á bráða-
deild leysa ekki þann vanda. Hilmar
segir fráflæðivandann enn vera til
staðar en sökum þess að dagleg
rúmanýting á spítalanum er vel yfir
100% eru sjúklingar látnir liggja í
bráðastæðum sem ætluð eru alvar-
lega slösuðum og veikum einstak-
lingum sem t.d. hafa fengið hjarta-
stopp eða koma lífshættulega
slasaðir. Einungis þrjú bráðastæði
eru á bráðamóttökunni.
Á hverju ári leita um 70 þúsund
manns á bráðadeildina í Fossvogi og
í gegnum tíðina hefur verið nokkuð
um að fólk komi þangað í annarlegu
ástandi og komið hefur til ryskinga.
Úr því hefur dregið eftir breytingu á
opnunartíma veitingastaða að sögn
Hilmars. »12
Sjúklingurinn
sér lækninn fyrr
Biðtími á bráðamóttöku er nú styttri
„Ég bjóst ekki við því fyrirfram
að við stæðum uppi sem sigurveg-
arar í mótslok,“ sagði Þórir Her-
geirsson, landsliðsþjálfari Noregs í
handknattleik kvenna, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi eftir að
norska landsliðið varð Evrópu-
meistari undir hans stjórn í annað
sinn. Norska landsliðið vann það
spænska, 28:25, í úrslitaleik í Búda-
pest. „Ég vissi að við gætum unnið
öll lið í mótinu á góðum degi en að
okkur tækist að halda stöðugleika
og vinna alla leikina sem skiptu
máli kom mér á óvart þar sem
landsliðið hefur gengið í gegnum
kynslóðaskipti á síðustu tveimur ár-
um,“ sagði Þórir. » Íþróttir
AFP
Sigurvegari Þórir Hergeirsson stýrði
norska landsliðinu til sigurs á EM.
Sigurinn á EM kom
Þóri þjálfara á óvart
„Það var lögð
mikil áhersla, í
tengslum við
þessa samninga,
á það að á móti
töluverðri launa-
hækkun kæmu
hagræðing-
armöguleikar
með breyttum
vinnutíma kenn-
ara,“ segir Hall-
dór Halldórsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, um
kjarasamninga grunnskólakenn-
ara. Smærri sveitarfélög eiga erf-
iðara með að ná hagræðingu með
breyttu kennslufyrirkomulagi held-
ur en stærri sveitarfélög. »2
Minni sveitarfélög
finna fyrir kjörum
Halldór
Halldórsson Margt var um manninn á síðasta degi aðventu á
Laugaveginum í gær enda styttist í jól og við-
skiptin blómstra. Mikilvægt getur verið að fylgj-
ast vel með því hvað upplýstir búðargluggarnir
hafa upp á að bjóða svo rétta gjöfin fari ekki
framhjá manni. Veðurspá gerir ráð fyrir hinu
skaplegasta veðri á höfuðborgarsvæðinu fram
að jólum og því gleðjast eflaust margir versl-
unareigendur, sérstaklega þeir sem njóta ekki
hlýju verslunarmiðstöðvanna. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Jólalýsingin fangar athyglina
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Börn í Reykjavík þurfa að bíða mislengi eftir grein-
ingu sálfræðinga eða annarra sérfræðinga þegar
grunur leikur á að um röskun sé að ræða. Slíkar
greiningar eru gerðar á þjónustumiðstöðvum borg-
arinnar, sem eru sex, og hefur biðtíminn um hríð
verið langlengstur í Breiðholti. Í haust var svo
komið að biðtíminn í Breiðholti var allt að 30 mán-
uðir og þá var ákveðið að veita viðbótarfjármagn til
þjónustumiðstöðvarinnar þar. Við það styttist bið-
tíminn nokkuð og er nú allt að 26 mánuðir. Það er
þó talsvert meira en í öðrum hverfum borgarinnar,
þar sem biðin er gjarnan 3-12 mánuðir.
Löng bið eftir greiningu getur haft slæm áhrif á
ungt barn, að sögn Þrastar Emilssonar, fram-
kvæmdastjóra ADHD-samtakanna, sem segir bið-
ina koma niður á börnum með athyglisbrest og
ofvirkni. Spurður hvort ekki sé hægt að gera grein-
ingar annars staðar en á þjónustumiðstöðvunum
segir hann það vera hægt, en því fylgi verulegur
kostnaður, þar sem það sé yfirleitt ekki niðurgreitt
af Sjúkratryggingum.
Mörg hundruð börn bíða
Rúmlega 500 börn eru á biðlista eftir sálfræði-
greiningu á þjónustumiðstöðvum borgarinnar og að
auki bíður talsverður fjöldi barna greiningar hjá
talmeinafræðingum og öðrum sérfræðingum. Verk-
efnum þjónustumiðstöðvanna hefur fjölgað mikið
undanfarin ár og segir Helgi Viborg, sálfræðingur
á þjónustumiðstöðinni Miðgarði í Grafarvogi, þenn-
an mikla fjölda barna á biðlista og skort á fagfólki
valda því að lítið ráðrúm gefist til að sinna öðrum
mikilvægum þáttum, eins og t.d. ráðgjöf og stuðn-
ingi eftir að greining liggur fyrir. „Það er ekki nóg
að greina ef greiningin er ekki nýtt til að bæta
stöðu barnsins,“ segir Helgi.
Allt að 13-
föld bið í
Breiðholti
Börn bíða greiningar
mislengi eftir búsetu
MBörnin bíða í meira en tvö ár »6
Hópurinn Horft til framtíðar berst
nú fyrir því að ferjan M/S Achaeos
komi í stað Herjólfs í förum á milli
Landeyjahafnar og Vestmannaeyja.
Samgöngustofa og Vegagerðin
gerðu báðar úttektir á hugmyndinni
og eru niðurstöðurnar mjög ólíkar,
að sögn Sigurmundar G. Einars-
sonar, eins af meðlimum hópsins.
Vegagerðin sló til að mynda hug-
myndina út af borðinu en Sam-
göngustofa segir að skipið geti full-
nægt þeim kröfum sem gerðar eru
til farþegaskips í förum á milli Vest-
mannaeyja og Landeyjahafnar.
Hópurinn hefur óskað eftir fundi
með vegamálastjóra þar sem farið
verður fram á skýringar. »16
Misvísandi úttektir
á grísku ferjunni
Gripur Skipið siglir undir grískum fána.