Morgunblaðið - 22.12.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.12.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Sjálfsævisögur þykja mörgumáhugaverðar bækur, hvort sem höfundurinn er ljúflyndur kaup- maður úr Sunnubúðinni eða harðsnúinn hæstaréttarlögmaður og síðar dómari, raunar sjálfur að nokkru „ættaður“ úr búð í nágrenni Óskars kaupmanns.    Bækurnar erubáðar eiguleg- ar, en eins ólíkar og tvær bækur geta verið.    Jónsbók síðarihefur söguhetj- una í miðju síns sól- kerfis, eins og vera ber í ævisögu.    En bók hans erjafnframt uppgjör, ekki að- eins um liðinn tíma, heldur einnig samtímann og snýr um leið að hluta til að framtíðarskipan dómstóla þjóðarinnar.    Bók Jóns fær prýðilega dómagagnrýnenda en fræðimenn úr starfsgrein hans hafa haft hljótt um sig, og kannski finnst þeim sumum fátt um.    Í nýjasta hefti Þjóðmála birtistritdómur Björns Bjarnasonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra og er umsögn hans eftirtektarverð. Björn gefur bókinni lofsamlega um- sögn, en veltir að auki upp sjón- armiðum sem verðskulda nánari skoðun, eins og varðandi það, hvernig stóð á því, að nýta mátti að- lögun að ESB, í tilefni misheppn- aðrar aðildarumsóknar til að gera breytingar á lagaumgjörð skipunar dómara á Íslandi.    Þarna er ekki allt sem sýnist. Björn Bjarnason Margt enn órætt STAKSTEINAR Jón Steinar Gunnlaugsson Skíða- og snób rettapakkar 20%afsláttur • Svigskíði • Fjallaskíði • Gönguskíði • Snjóbretti Tökum notaðan skíða- og brettabúnað upp í nýjan lÍs en ku ALPARNIR s Faxafeni 8 // 108 Reykjavík Sími 534 2727 // www.alparnir.is www.alparnir.is Góða gæði Betra verð ✓ ✓ Gleðileg jól Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011 AIRI „Adored” My spirit is cherished and loved. Maxi doll 3,990.- Bolli 2,590.- Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00 Reykjavík -4 skýjað Bolungarvík 2 skýjað Akureyri 0 snjókoma Nuuk -12 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló -2 snjókoma Kaupmannahöfn 6 skýjað Stokkhólmur -1 heiðskírt Helsinki 0 skýjað Lúxemborg 5 súld Brussel 7 súld Dublin 12 skýjað Glasgow 11 skúrir London 11 alskýjað París 7 alskýjað Amsterdam 8 skýjað Hamborg 6 skýjað Berlín 6 skýjað Vín 6 léttskýjað Moskva 1 skýjað Algarve 17 heiðskírt Madríd 15 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 16 heiðskírt Róm 13 léttskýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -1 alskýjað Montreal -7 snjókoma New York 0 alskýjað Chicago 1 alskýjað Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:31 ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:53 SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34 DJÚPIVOGUR 11:02 14:51 „Verkefnið Jól á götunni er fjáröfl- unarverkefni til að opna þjónustu- miðstöð og neyðarathvarf fyrir ungmenni á aldrinum fimmtán til tuttugu ára,“ segir Guðmundur Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni. Hann vinnur nú að því að fá leyfi til þess að starfrækja athvarf fyrir ung- menni yngri en átján ára. „Við höfum kynnt okkar starf- semi fyrir sveitarfélögunum hérna á Faxaflóasvæðinu,“ segir hann og bætir við að formleg beiðni um að fá að sinna ungmennunum fari á borð velferðarráðuneytisins í dag. „Það hefur aldrei verið hægt að setja puttann á fjölda barna á göt- unni. Það er ákveðið hlutfall af þessum hópi sem kemur frá heim- ilum þar sem ekkert er verið að tilkynna það að þau séu týnd,“ segir hann og bætir við að mesta þörfin sé á neyðarskýli fyrir þann hóp. „Við hugsum þetta þannig að krakkar geti hringt í gjaldfrjálst neyðarnúmer og séu tekin inn á hvaða tíma sólarhringsins sem er,“ en hann segir að neyðarskýlið muni rísa á Stórhöfðanum. Hægt er að leggja málstaðnum lið með val- greiðslum auk þess sem svokallaðir verndarenglar fást á ýmsum stöð- um. Allur ágóði af þeim rennur til Götusmiðjunnar. davidmar@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Teymi Mummi, Elísabet Gísladóttir lýðheilsufræðingur og Sigrún Eva Rún- arsdóttir félags- og afbrotafræðingur standa að Götusmiðjunni. Opna neyðarskýli fyrir ungmenni  Mummi safnar fé fyrir ungmenni Tæplega tvö þúsund manns renndu sér á skíðum í Bláfjöllum í gær, en gott veður og skíðafæri lék við skíðafólk. Einar Bjarnason, rekstr- arstjóri Bláfjalla, sagði í samtali við mbl.is að aðsóknin hefði verið fín „miðað við að það sé korter í jól.“ Hann sagði þó ljóst að margir noti síðustu dagana fyrir jól frekar í jólagjafakaup heldur en að sækja í fjöllin. „Við skjótum á að í kringum 1.500 til 2.000 manns hafi rennt í gegn í dag,“ sagði Einar, en diska- lyftur á Suðursvæðinu, Kóngurinn, barnalyftur og töfrateppin voru op- in í gær. Í dag er gert ráð fyrir að opið verði frá tvö til níu um kvöldið. Næst verður svo opið annan í jólum. Skíðasvæðið opnaði í fyrsta skiptið á árinu á föstudaginn, en það er rúmlega mánuði seinna en í fyrra. Einar sagði að kortasala hefði farið vel af stað og greinilegt að margir væru spenntir fyrir skíðatímabilinu. Í gær var einnig lögð þriggja kílómetra braut fyrir skíða- göngufólk og stefnt er að því í dag að leggja lengra spor upp á heiði. Margir nutu skíðafæris í Bláfjöllum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.