Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
Kiddi Fyrir utan Grund með peysur sem hann prjónaði, hreindýrapeysuna sem hann klæðist prjónaði hann líka.
„Mér finnst gott að vinna á Grund og
hér hef ég kynnst mörgu góðu fólki.
Mér finnst mjög gaman að spjalla
við gamla fólkið þegar ég er keyra
það til læknis eða eitthvað annað,
það segir mér frá fyrri tímum, hvar
það bjó og hvernig lífi það lifði, alls-
konar sögur. Mér finnst þetta mjög
gefandi og skemmtilegt starf,“ segir
Kiddi sem er afar vinsæll og vel lið-
inn á vinnustaðnum sínum.
„Það elska hann allir hérna.
Hann er alltaf brosandi og bóngóð-
ur, það er alveg sama hvað maður
biður hann um, hann reddar öllu.
Hann sér um að allir fái jólaljós í
gluggann sinn hér á Grund, hann sér
um það komi gleðileg jól á Grund
með því að setja upp stóra skiltið
með þeirri áletrum sem hér hefur
verið sett upp á aðventunni í tugi
ára, hann keyrir heilmilismenn til
læknis, hann er í stjórn starfs-
mannafélagsins, hann vinnur á lag-
ernum, hann mokar snjóinn af stétt-
unum. Hann er bara allt í öllu hérna
og öllum þykir vænt um hann,“ segir
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir sam-
skipta- og kynningarstjóri á Grund,
og bætir við að Kiddi hafi meira að
segja kynnst eiginkonu sinni á
Grund. Kiddi gengst stoltur við því.
„Hún starfar hér í eldhúsinu og
hafði unnið hér í tvö ár þegar við
byrjuðum saman árið 2006 á afmæl-
isdeginum mínum 20. september.
Síðan giftum við okkur árið 2011,“
segir hann og ljómar, greinilega ást-
fanginn af konunni sinni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
Á köldum vetrarkvöldum þegar jólin
nálgast getur verið huggulegt að
rölta niður á Reykjavíkurhöfn. Þar ið-
ar allt af lífi og sífellt fleiri opna þar
áhugaverða staði.
Einn af þeim stöðum sem notalegt
er að kíkja við á og hefur skapað sér
gott orð er kaffihúsið Kaffi Haítí, sem
er í Verbúð 2 við Geirsgötu. Þar fæst
undragott kaffi hjá henni Eldu sem á
og rekur staðinn, en hún er fædd og
uppalin á Haítí og lærði frá barnsaldri
allt um kaffi, en faðir hennar ræktaði
kaffi í garðinum heima. Elda flytur
sjálf inn sínar Arabica-kaffibaunir frá
æskuslóðunum og brennir þær og
malar sjálf. Hjá Eldu er m.a hægt að
fá rótsterka tyrkneska og arabíska
kaffidrykki. Alltaf gaman fyrir Mör-
landann að prófa nýja kaffidrykki og
gæða sér á því matarkyns sem í boði
er.
Elda hefur verið dugleg við að fá
tónlistarfólk til að halda tónleika á
kaffihúsinu sínu, enda skapa nándin
á staðnum og huggulegheitin ein-
staka stemningu.
Í kvöld kl. 21 verða sannkallaðir
jólatónleikar á kaffihúsinu en þá ætl-
ar Kristín Stefánsdóttir söngkona að
stíga á pall og syngja en Helgi Már
Hannesson píanóleikari verður með
henni. Þau ætla að flytja sitt einstaka
jólaprógramm og með þeim leikur
Steinar Kristinsson á trompet.
Vefsíðan www.cafehaiti.is
Söngkona Kristín ætlar að skella sér í jólasönginn í kvöld ásamt félögum.
Haítíkaffi og tónar við höfnina
Ljósmynd/Magnús Andersen
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Jólatúlípanar
komnir í blómaverslanir