Morgunblaðið - 22.12.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 22.12.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Við óskum landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Árni Ágúst Brynjólfsson Indriði Jónsson SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS Jólagjöfin í ár! Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Erill er í flestum verslunum núna síðustu dagana fyrir jól en nú streymir fólk í búðir til að kaupa gjafir og aðrar vörur sem bæði nauð- synlegt og gott er að eiga yfir jólahá- tíðina. Aukinni verslun fylgir oft aukinn þjófnaður og þótt sælla sé að gefa en að þiggja vilja verslunareig- endur og kaupmenn síður að fólk grípi vörur og taki úr versluninni án þess að greitt sé fyrir. Lítill þjófnaður í Kringlunni Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segir þjófnaði á þessum árstíma ekki vera meiri en aðra mánuði ársins. „Það hefur dregið úr þjófnaði á undan- förnum árum og við sjáum ekki leng- ur skipulagðan þjófnað, sem var nokkuð um á góðærisárunum fyrir hrun.“ Í Kringluna koma að sögn Sigurjóns 700 þúsund gestir frá 1. til 24. desember og hann segir eðlilegt að einhver atvik verði. „Jólaversl- unin hefur gengið ótrúlega vel í ár og það er helst veðrið sem hefur áhrif á verslun en engu að síður er töluverð aukning frá í fyrra. Auðvit- að koma alltaf upp einhver vandamál og það kemur fyrir að vísa þarf fólki út vegna ölvunar en ekki í meira mæli en almennt yfir árið.“ Friðsælt og rólegt á Akureyri Á Akureyri hefur það helst verið veðrið sem hrellir kaupmenn en mikill snjór er í bænum og erfitt get- ur reynst að komast á milli. Það stöðvar þó ekki jólaverslun Akur- eyringa og segir Árni Steinsson, framkvæmdastjóri Securitas á Akureyri að það heyri til undantekn- inga að starfsmenn hans þurfi að hlaupa á eftir búðarhnuplurum. „Við erum fyrst og fremst að þjónusta stór fyrirtæki eins og Hagkaup, Bónus og Rúmfatalagerinn og þar er okkar fólk bæði til að fylgjast með og aðstoða. Í nærri því öllum til- vikum þegar öryggishlið fara að væla hefur gleymst að taka þjófa- merkingu af við afgreiðsluborðið.“ Verslunarmenn vinna saman Alltaf er eitthvað um þjófnað í verslunum og segir verslunarmaður við Skólavörðustíg að þar hjálpist verslunarmenn að og láti hvern ann- an vita verði þeir varir við fingra- langa einstaklinga. Sömu sögu segir verslunareigandi við Laugaveginn en á stórum verslunargötum getur verið erfiðara að halda uppi eftirliti en í stórri verslunarmiðstöð. „Ein- staka vörur kunna að hverfa þegar mikið er að gera,“ segir versl- unarmaður við Laugaveg. Hjálpast að gegn þjófnaði  Skipulagður þjófnaður á undanhaldi í Kringlunni  Snjórinn helsta hindrun verslunar á Akureyri Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslun Jólastemming er í versl- unarmiðstöðum fyrir jól. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Við teljum fulla þörf á þessu skipi þar sem Herjólfur hefur verið of lítill í mörg ár,“ segir Sigurmundur G. Einarsson, meðlimur hópsins Horft til framtíðar sem er áhugamanna- hópur í Vest- mannaeyjum um bættar sam- göngur. Hann berst nú fyrir því að M/S Achaeos, sem er 77 metra ekjufarþegaskip og siglir undir grískum fána, komi í stað Herj- ólfs í förum á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. „Þetta skip tekur hátt í fjórum sinnum meira af bílum og helmingi fleiri farþega,“ segir hann. Hafnað af Vegagerð Samgöngustofa og Vegagerðin gerðu bæði úttektir á hugmyndinni en Sigurmundur segir þær ansi ólík- ar. „Það er mikill munur á úttekt Samgöngustofu og Vegagerðarinn- ar. Vegagerðin sló þetta bara út af borðinu, sagði skipið ekki henta, sem er bara tóm vitleysa,“ segir hann og hafnar jafnframt þeirri niðurstöðu Vegagerðar að skipið uppfylli ekki kröfur. „Það á að fara að byggja skip sem er minna en Herjólfur fyrir allavega fimm þúsund milljónir. Þetta gríska skip sem við erum að tala um kostar innan við tvo milljarða og við getum fengið það leigt til tveggja ára til að prufa það. Þar að auki tekur það miklu meira af bílum og vörum en skipið sem á að smíða. Við viljum fá að prófa þetta skip. Það væri eðlileg framþróun á samgöngum við Vest- mannaeyjar,“ segir hann. Búin að óska eftir fundi „Við erum búin að óska eftir fundi með vegamálastjóra þar sem við munum óska eftir skýringum frá honum og þeirri stofnun. Við hyggj- umst hrekja þau rök sem þar verða sett fram. Í framhaldi af því munum við væntanlega óska eftir því að mál- ið verði tekið upp aftur og klárað,“ segir Sigurmundur. Þess má geta að smíði gríska skipsins hófst árið 2004 og er vél- arafl þess 4850 kW, ganghraði 16 hnútar og brúttóstærð 2257 BT sam- kvæmt grískri mælingu. Skipið er búið tveimur þilförum til að flytja bifreiðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu Samgöngu- stofu. Þar kemur einnig fram að Samgöngustofa telur sig geta dregið þær ályktanir af þessu að skipið hafi burði og getu til þess að það fullnægi þeim kröfum sem gilda um farþega- skip í flokki B og að þessu gefnu, að skipið geti þar með fullnægt þeim kröfum sem gerðar eru til farþega- skips í förum á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Vegagerðin áætlar hinsvegar að gríska ferjan geti ekki notað Land- eyjahöfn fjórða hvern dag að með- altali vegna djúpristu og lengdar og aðstæðna í og utan við höfnina. Til samanburðar er þess getið að miðað er við að frátafir nýs Herjólfs verði 10%. Vegagerðin taldi því ekki ástæðu til að skoða frekar þennan kost sem áhugamenn kynntu. Ljósmynd/Sigurmundur G. Einarsson Skip Hópurinn Horft til framtíðar vill frá gríska skipið hingað til lands. Að sögn Sigurmundar er það ódýrari kostur en að smíða nýtt skip. Segja úttekt Vega- gerðar vitleysu  Vilja 77 metra skip í Landeyjarhöfn Sigurmundur G. Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.