Morgunblaðið - 22.12.2014, Side 17

Morgunblaðið - 22.12.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 NORDAHL Lokkar 3.490 Hringur 3.990 Hálsmen 7.500 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is er með jólagjöfina FOSSIL Armband m/leðri 7.200 Hálsmen 10.150 Pelasett 9.900NORDAHL Hálsmen 17.500 Lokkar 8.500 LOVÍSA Hálsmen 7.500 Lokkar 12.700 Armband 13.400 NORDAHL Armband 6.700 Hálsmen 5.800 FOSSIL Armband 8.200 FOSSIL 32.700 FOSSIL 37.500 FOSSIL 23.600 FOSSIL 25.900 Daniel Wellington 29.800 Daniel Wellington 29.800 Samkvæmt nýrri könnun Gallup tapa Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin fylgi í Reykjavík- urborg. Samfylkingin er áfram stærsti flokkurinn en hún mældist með tæp 29% og hefur fylgið minnkað um þrjú prósentustig frá síðustu kosningum. Framsókn og flugvallarvinir hafa misst tæp 5% og mælist flokkurinn nú með 6%. Yrðu þetta úrslit kosninga myndi Framsókn missa annan af tveimur borgarfulltrúum sínum til Bjartrar framtíðar. RÚV sagði frá könnuninni í frétt- um sínum í gær, en þar var fylgi flokkanna í borgarstjórn kannað dagana 17. nóvember til 17. desem- ber. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rúmlega 25% og stendur því nokkurn veginn í stað en aðrir flokkar bæta við sig fylgi. Björt framtíð mælist með 18%, Píratar 11% og VG 10%. Úrtakið í könn- uninni var rúmlega 4.100 og svar- hlutfall rúm 60%. ash@mbl.is Framsókn tapar borg- arfulltrúa  Samfylking tapar fylgi en er enn stærst Morgunblaðið/Styrmir Kári Fylgi Samfylking og Framsókn og flugvallarvinir tapa fylgi. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Umferð ferðamanna hefur aukist gríðarlega á þessu svæði og þörf er á umbótum,“ segir Dagbjört Jóns- dóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveit- ar, en þar eru ýmsar framkvæmdir fyrirhugaðar við Goðafoss. „Við munun breikka göngustíga, þökuleggja með lyngþökum á svæði sem eru illa farin, búa til annað bílastæði og stýra umferð gangandi fólks,“ segir hún. „Sveitarfélagið á ekki landið við fossinn heldur eru það þrjár jarð- ir. Sveitarfélagið ákvað hinsvegar að funda með landeigendunum og athuga hvort þeir hefðu ekki áhuga á að bæta aðgengi við foss- inn og við yrðum þá í forsvari fyrir þá og sæktum um styrki,“ segir hún. Deiliskipulag liggur fyrir „Við höfum tvisvar sótt um í Framkvæmdasjóð ferðamanna- staða og fengið fjárveitingu í bæði skiptin, fimm milljóna króna styrk og fimmtán milljóna króna styrk,“ segir Dagbjört. „Við fórum af stað með langtímasjónarmið og fyrsta skrefið var að deiluskipuleggja svæðið. Það hefur verið í vinnslu undanfarið ár og nú liggur deili- skipulagið fyrir. Nú fer það í aug- lýsingaferli. Þessi framganga sveitarfélagsins hefur fengið já- kvæð viðbrögð, það er að segja það að fara þá leið að vinna þetta allt í sátt og samlyndi við landeig- endur.“ 20 milljónir í styrki Morgunblaðið/Birkir Fanndal Umbætur Göngustígar verða breikkaðir og nýtt bílastæði verður lagt.  Umbætur fyrirhugaðar á svæðinu í kringum Goðafoss Yfirleitt liggja allar flug- samgöngur til og frá landinu niðri á jóladag, en í ár verður Flugstöð Leifs Eiríkssonar opin á jóladag. Þar mun ein vél koma við, hún er á vegum breska flugfélagsins easyJet og kemur frá Genf í Sviss. Vélin mun lenda í Keflavík um kl. 16 og fara aftur um kl. 17. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Þar segir að vegna þessa þurfi að ræsa út starfsfólk flugvall- arins og að sögn Isavia sé ætlast til þess að verslanir séu opnar við allar brottfarir. Þá er þar tekið fram að Isavia hafi ekki sóst eftir því að auka umferð um flugstöðina á hátíðisdögum yfir jól. Opin á jóladag vegna einnar flugferðar Leifsstöð Ein vél kemur þar 25.12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.