Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 21

Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Mokstur Alexander var önnum kafinn við að moka snjó í Kópavogi. Hann lagði sitt á vogaskálarnar að halda götunum greiðfærum fyrir gangandi vegfarendur líkt og grafan sem er í baksýn. Golli Reglur Reykjavík- urborgar frá 2011 sem banna samstarf kirkju og skóla hafa mjög komið til álita að und- anförnu vegna heim- sókna skólabarna í kirkjur borgarinnar á aðventunni. Formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur sá ástæðu til að gagnrýna slíkar heimsóknir og telur að þar fari fram trúarinnræting sem sé börnum stór- hættuleg. Gagnrýnin er að vísu byggð á fáfræði eða trúarofstæki formannsins sjálfs, hvaða nafni sem það nefnist, því í þessum jólaföstu- heimsóknum er börnum boðaður kærleikur og sungin nokkur jólalög. Það er nú öll hættan. Heimsóknir skóla- barna í kirkjur, kring- um jól og páska eru hluti af almennri fræðslu enda hefur kristin trú verið veiga- mikill þáttur í sögu og menningu þjóðarinnar í meira en þúsund ár. Stefnubreyting í að- sigi Hingað til hafa borgaryfirvöld umbor- ið heimsóknir af þessum toga og tal- ið að þær rúmist innan þeirra reglna og skorða sem yfirvöldin sjálf settu. En nú virðist stefnubreyting í aðsigi, enda stígur formaður skóla- og frí- stundaráðs líka fram á sviðið og tel- ur að heimsóknirnar séu á gráu svæði. Hvaða gráa svæði er það? Er hann að væna fagfólk í skólum borg- arinnar um að fara ekki að settum reglum, er leynitrúboð í gangi eða er þessum óljósu athugasemdum og dylgjum ætlað að þreyta skóla- stjórnendur svo þeir hætti með öllu slíkum vettvangsferðum þar sem þær eru reglulega véfengdar af borgarfulltrúum vinstrimeirihlut- ans? Eru þessar síendurteknu at- hugasemdir kannski liður í því markmiði að banna alfarið slíkar heimsóknir? Misvísandi skilaboð Reyndar eru skilaboð borgarstjórnarmeirihlutans í þess- um efnum mjög misvísandi. Það kom greinilega í ljós á borgarstjórn- arfundinum sl. þriðjudag þegar meirihlutinn var inntur eftir afstöðu sinni um samskipti kirkju og skóla. Uppi varð fótur og fit og fátt um skýr svör. Flestir borgarfulltrúar meirihlutans fóru undan í flæmingi, vitnuðu í kvartanir foreldra en höfðu engar tölur á takteinum þar að lút- andi. Ef borgaryfirvöldum er svona umhugað um vilja foreldra í þessu máli þá má velta því fyrir sér af hverju þessum reglum um bann við samskiptum skóla og kirkju var yf- irhöfuð komið á í mikilli andstöðu við borgarbúa og án nokkurs samráðs við foreldra, skólastjórnendur eða trúfélög. Afléttum banninu Við sjálfstæðismenn tókum ein- dregna afstöðu gegn þessum reglum sem fólu ekki bara í sér að takmarka samskipti kirkju og skóla heldur líka að takmarka samskipti skóla við gamalgróin íþróttafélög, skátahreyf- inguna og aðra aðila sem hafa kyn- slóð fram af kynslóð, staðið fyrir uppbyggilegu forvarnarstarfi með þúsundum barna og unglinga í Reykjavík. Við eigum að aflétta þessu banni sem fyrst. Foreldrar eiga að taka ákvarðanir fyrir börnin sín og virða ber sjálfstæði og valdsvið skóla- stjórnenda til vettvangsferða. Eftir Mörtu Guð- jónsdóttur » Við eigum að afléttaþessu banni. For- eldrar eiga að taka ákvarðanir fyrir börnin sín og virða ber sjálf- stæði skólastjórnenda til vettvangsferða. Marta Guðjónsdóttir Höfundur er varaborgarfulltrúi og er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar. Félagsleg sótthreinsunarárátta forræðishyggjunnar Til hamingju neyt- endur. Með sam- þykkt Alþings á lög- um sem afnema almenn vörugjöld í heild sinni, hefur unnist einn stærsti sigur íslenskrar verslunar um ára- tugaskeið. Eins og margoft hefur komið fram hjá Samtökum verslunar og þjónustu hefur þessi skattur alla tíð verið mikill þyrnir í augum verslunarinnar. Hann hefur skekkt samkeppnisstöðu greinarinnar verulega. Vörugjöldin hafa bæði reynst ógagnsæ og óskilvirk skatt- heimta sem hefur verið einstaklega dýr í framkvæmd. Það er enginn vafi á því að þessi mikla breyting mun hafa jákvæð áhrif fyrir verslunina í heild sinni. Verðlag á þeim vörum sem hafa borið gjöldin, hvort sem það eru bílavarahlutir, byggingarefni eða raftæki, mun lækka. Þá mun af- nám vörugjalda á matvæli margs- konar koma til framkvæmda á sama tíma og virðisaukaskattur á matvæli hækkar úr 7% í 11%. Auk Eftir Andrés Magnússon og Margréti Sanders »Neytendur munu því fyrst og fremst njóta góðs af þessari breyt- ingu. Andrés Magnússon Andrés er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, og Margrét er fm SVÞ. Skattkerfisbreytingar verða að veruleika – vörugjöldin eru á útleið Margrét Sanders þess lækkar efra þrep virð- isaukaskatts úr 25,5% í 24%. Neyt- endur munu því fyrst og fremst njóta góðs af þessari breytingu, enda hefur verslunin hingað til skilað því til neytenda þegar skatt- ar á vörum hafa lækkað, það sýna dæmin frá liðnum árum. Það sama mun gerast nú, á því er ekki minnsti vafi. Það er því fyllsta ástæða til að fagna þessum tíma- mótum sérstaklega, bæði innan verslunarinnar sem atvinnugreinar og hjá öllum almenningi í landinu. Mörg verkefni framundan Samtök verslunar og þjónustu eru ákveðin í því að láta ekki deig- an síga við að bæta þá aðstöðu sem verslunin býr við. Þess munu neytendur njóta, enda fátt mik- ilvægara fyrir neytendur en að hér á landi verði áfram öflug verslun sem geti veitt fólki gott úrval af vöru á samkeppnishæfu verði. Verkefnin eru óþrjótandi enda af mörgu að taka þegar kemur að því að laga stöðu verslunarinnar í þeirri alþjóðlegu samkeppni sem greinin býr við. Samtökin munu á því ári sem í hönd fer einbeita sér að þeim greinum innan verslunar- innar sem einkum hafa átt undir högg að sækja eftir hrun. Má þar nefna verslun með föt og skó. Það mun bæta stöðu þeirrar verslunar umtalsvert ef viðskipti með þessar vörur yrðu færð niður í neðra þrep virðisaukaskatts, þ.e. 11% eftir þá breytingu sem gerð verður á kerfi virðisaukaskatts um næstu áramót. Gerð fríverslunarsamninga er annað baráttumál verslunarinnar en á þessu ári tók gildi fríverslunarsamningur við Kína. SVÞ mun leggja á það áherslu við stjórnvöld að áfram verði unnið að gerð fríverslunarsamninga. Eins er mikilvægt að fara vel yfir þá samninga sem þegar eru í gildi þannig að tryggt verði að þeir nýt- ist bæði verslun og neytendum til fulls. Við sem gætum hagsmuna fyrir verslunina í landinu horfum því björtum augum fram á veginn við þessi tímamót. Það er engin ástæða til að ætla annað en að ís- lensk verslun muni áfram standa öflug, þó að í breyttu umhverfi verði og haldi áfram að gegna því viðamikla hlutverki sem hún hefur alla tíð gegnt fyrir íslenskt þjóð- félag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.