Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 56
aður einstaklingur sem getur tekist á við þá
ábyrgð sem samfélagið leggur honum á
herðar. Og nái Ásmundur ekki þessu prófi
er hætta á ferðum.
I byrjun réttarhaldanna gengur allt vel.
Hann fer eftir leiðbeiningum föður síns:
meymar ekki í geði við neinn harmagrát og
er brynjaður gegn öllum brögðum sem vitn-
in kynnu að beita. Með þessu móti tekst
honum að fá Sæmund til þess að játa í fyrstu
yfirheyrslu. Þar með hefur hann staðist
dómaraprófíð. En allt fer úr skorðum þegar
hann mætir Sólveigu. Hlutverkaskipanin
snýst við: í raun er hún fanginn og hann
gæslumaðurinn, en þegar þau hittast er það
hún sem bindur hann með augunum og
stendur eftir frí og frjáls:
Hann veit af engu öðru, bara þessari konu,
og skelfist við þá hugsun að hann girnist
hana, þá reynir hann að brjótast undan því;
en augu hennar binda hann, læsa hann læð-
ingi.
Það er hún sem hefur sigrað, sú sem hefur
tapað öllu.
Hún er frjáls, það getur ekkert bundið
hana. Ekkert fangelsi námar hana. Sýslu-
maðurinn rykkir sér úr þessum fangbrögð-
um, úr þessum nístandi faðmi; hann
hrekkur undan, reynir að ná landi á bakk-
anum að baki; (198-199)
Hún læsir hann læðingi, og svo fyrirfer hún
sér. Allt er breytt. Ásmundur tapar valdi
sínu og festan er horfin úr yfirheyrslunum:
Þó hugsaði [læknirinn] jafnframt að óþarft
væri að láta sér koma á óvart hve sýslu-
manninum var sýnilega brugðið. Einurð
hans sem og einbeitni var nú ekki nærri.
Sjaldan hafði hann séð svo mikla breytingu
á manni og skyndilega.
Því fremur skar þetta í augu sem maður-
inn var öðrum mönnum reistari í fasi
endranær og brattari að bera sig. Nú sat
annar maður í forsæti dómsins, öryggislítill
og hikandi. (216)
Manndómsvígsla Ásmundar misheppnað-
ist: hann situr enn í sæti dómarans en per-
sónuleiki hans einkennist núna af öryggis-
leysi og hiki en ekki af festu og reisn einsog
vænta má af persónu sem staðist hefur
mikla þolraun. Ásmundur er algerlega nið-
urbrotinn andlega og endar á sama stað og
lesandinn fyrst kynntist honum: á fylleríi á
hinum ýmsu vertshúsum stórborgarinnar.
Sólveig Súsanna
En hver er Sólveig Súsanna? Hvernig tókst
henni að brjóta Ásmund niður? Tilvitnunin
hér að framan um fund þeirra Ásmundar og
Sólveigar gefur til kynna að hún sé eitthvað
meira en bara venjulegur sakborningur.
Hver er hún? Kvenmannsnafnið Sólveig
þýðir kraftur eða styrkur sólarinnar og Sús-
anna þýðir lilja.4 Og Súsönnu-nafnið er sett
saman úr sú-sanna, hin rétta.
Persónan Sólveig Súsanna hefur styrk.
Hún er stolt í ást sinni og þorir að storka
bæði Guðs- og mannalögum:
Ef guð er eitthvað óánægður, þá getur hann
bara snúið sér undan. (55)
Hvern andskotann hafa mennimir yfír þeim
að segja? Mannasetningar? Hver eru þau
lög sem banna þeim, sem gætu bannað
þeim að njótast? (65)
Og hún lætur ekki einusinni kúga sig að
lokum þegar Sæmundur hefur játað allt.
Einsog Ásmundur segir: „Hún er frjáls, það
getur ekkert bundið hana.“ (199)
54
TMM 1993:2