Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Page 70
ingskúnstir“ enda sé „ég“ (eða „þetta skáld hér“ sem er tilvísun til algengrar umritunar í skrifum Áma) kominn af launaskrá hjá útgerðinni: gegnum talstöð á ég við þig orð enda ekki lengur munstraður um borð. Táknmál sonnettunnar er að mesm ljóst. Skipið er Sovétkerfíð eða meintur tvíburi þess sósíalisminn, og má raunar telja skip eitt af sígildum táknum þeirra fyrirbæra í skáldskap aldarinnar, samanber til dæmis hið ágæta Kremlarljóð Hannesar Péturs- sonar frá 1956 þegar ýmsum þóttu ennþá líbblegir laukar í austurtúnum (í því kvæði er reyndar líka rætt um daun og hnífa). Líkið er hinn forni átrúnaður á kennisetn- ingar, sögulegar persónur og einstök tákn. „Ég“ er Þórarinn Eldjárn sjálfur en ,,þú“ er Ámi Bergmann, og er að vísu ekki ljóst hvort Árni er heldur iðnjöfur, skipstjóri eða háseti á skipinu. Aðalvandinn er „talstöð- in“ sem mætti auðvitað skilja þröngt sem Tímarit Máls og menningar en á sennilega fremur við ljóðlistina eða skáldskapinn. Vegna þess að Þórarinn er hættur að vera „munstraður um borð“ stundar hann ekki lengur þá iðju háseta að „beita kutanum“ sem þá er væntanlega greinarformið eða sjálf rökræðan sem Árni hefur valið sér. Ekki er raunar ljóst hvemig kuta er beitt við balsameringu en þó má ímynda sér að Ámi sé að veita líkinu einhverskonar andlitslyft- ingu auk hinnar eiginlegu líksmurningar. Ljóðmælandinn er með nokkrum hætti að segja að hér þurfí engra vitna við. Rétt einsog maður rökræðir ekki glæp við glæpamann — fyrren hann er kominn undir lás og slá, þá sé skáldskapurinn eina svarið við ræðum Áma Bergmanns um vinstri- stefnu og menningararf. Þá vekur athygli að í myndlíkingu sonn- ettunnar er gert ráð fyrir að eittsinn hafi ljóðskáldið og viðmælandi þess verið á sama báti sem annar þeirra yfirgaf vegna þess að náþefurinn hrakti hann brott — vonbrigðin urðu honum um megn, hann hafði skyndilega verið blekktur og tók þess- vegna á rás eitthvað burt. .. Sjónarhorn Þetta er mjög ólíkt viðhorfum Áma Berg- manns í sömu glímu við tíðindi samtímans. í greininni sem varð tilefni sonnettunnar reynir Árni að sínu leyti að vinna á röklegan hátt úr þeim arfi sem okkur er eftir skilinn frá erfiðum tímum. í smásögu í sama Tíma- ritsárgangi (1/1992) lýsir hann jafnframt sögulegum tíðindum eystra með verkfær- um frásögunnar og skáldskaparins, án prédikunar eða lærdóms annars en þess sem skilinn verður í rafmagni andrúmsloftsins milli verks og lesanda. Kannski má segja að munurinn á aðferð- urn Árna og Þórarins við að vinna úr þess- um samtímaviðburðum sé sá að Ámi Bergmann reynir að nálgast atburðina sjálfa og síðan afleiðingar þeirra á fólk og heims- mál og nútímahugsun, en Þórarinn Eldjárn spyr fyrst og síðast um afstöðu viðburðanna til Þórarins Eldjáms, um áhrif þeirra á sína eigin persónusögu. Maður ætti kannski að halda áfram héma og segja sem svo að þarna komi í ljós ókostur þeirrar nýju ein- staklingshyggju sem með öðm hefur ein- kennt kynslóð okkar Þórarins og skapað henni allskörp skil gagnvart fyrri mönn- 68 TMM 1993:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.