Fréttablaðið - 03.06.2015, Qupperneq 10
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
ÖRYGGISHNAPPUR
Það er mikilvægt að við gætum vel hvert að öðru. Öryggishnappurinn er einfaldur í notkun og veitir
mikið öryggi. Hjúkrunarfræðingur er á vakt allan sólarhringinn og reykskynjari, beintengdur
stjórnstöð, fylgir með án endurgjalds.
Verið velkomin á sérstaka kynningu á öryggishnappi í verslun
Öryggismiðstöðvarinnar að Askalind 1 í Kópavogi, fimmtudaginn
4. júní kl. 15–17.
Komdu og kynntu þér öryggishnappinn,
hvernig hann virkar og þá þjónustu sem við
veitum þegar boð berast.
Öryggismiðstöðin | Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400 Nánar á oryggi.is
FLUTTIR
Velkomin í einn stærsta sýningarsal
notaðra bíla á landinu að Kletthálsi 13.
Enn betri þjónusta í enn betra umhverfi.
Audi A6
2.0 TFSI Avant
2.950.0002007
73
VW Touareg
2.5 TDI
Toyota
Corolla
2.750.000
1.320.000
2005
2007
180
140
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
30
VW Passat
Comfortline 4x4 2,0
1.590.0002005
109
Lexus
RX400 Hybrid EXE
Mazda 3
H/B T PLUS
3.990.000
1.150.000
2008
2006
120
148
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
FISKELDI Tilraunir í Færeyjum með að nýta íslensk
hrognkelsaseiði til aflúsunar á laxi í sjókvíum ganga
vonum framar. Vonir standa til að öflugt vopn hafi
fundist í baráttu gegn þessari plágu í laxeldi í Færeyj-
um og ekki útilokað að hrognkelsin nýtist hjá íslensk-
um laxeldisfyrirtækjum í framtíðinni í sama tilgangi.
Seiðaeldið er samstarfsverkefni Tilraunaeldisstöðv-
ar Hafrannsóknastofnunar í Grindavík og Stofnfisks
ehf., sem hafði milligöngu um að koma verkefninu á
fót í samstarfi með fyrirtæki í Færeyjum.
Verkefnið hófst í fyrra og hefur
samstarfssamningur um seiða-
eldið verið endurnýjaður. Í byrjun
apríl 2014 fór báturinn Tryllir GK
600 og veiddi 64 grásleppur og 24
rauðmaga fyrir utan Grindavík.
Hrognataka og frjóvgun tókst vel
og sjúkdómarannsóknir stóðust
allar kröfur Færeyinga til að inn-
flutningur væri mögulegur. Yfir
500.000 seiði komust „á legg“, og
voru fyrstu seiðin flutt til Færeyja í nóvember.
Agnar Steinarsson, sérfræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun, segir seiðamagnið í eldi svipað og í
fyrra, kannski heldur meira, en þetta árið var byrjað
mun fyrr á klaki úr villtum fiski. Seiðin vaxa mjög
hratt og eru tilbúin til flutnings eftir fimm til sex
mánuði. Það gefur möguleika á afhendingu seiðanna á
hagstæðari tíma, en flutningar á seiðum yfir vetrar-
mánuðina í fyrra reyndust erfiðir.
„Reynslan sýnir að seiðin éta gríðarlegt magn af
lús, en laxalús er viðvarandi vandamál í Færeyjum.
Þeir eru mjög áhugasamir um þetta verkefni enda 80
prósent af hrognkelsunum sem voru sett í kvíarnar
lögst í lúsaát, sem er hátt hlutfall. Þeir hafa sparað
sér með öllu að meðhöndla fiskinn með lyfjum. Því
fylgir bæði kostnaður og svo er þetta mun umhverfis-
vænna í öllum skilningi,“ segir Agnar.
Í Fiskeldisfréttum Sjávarútvegsþjónustunnar var
fjallað um tilraunina í febrúar. Þar segir að samfara
auknu sjókvíaeldi á Íslandi megi gera ráð fyrir að
hrognkelsaseiði verði sett í eldiskvíar hér á landi til
að halda niðri laxalús.
Hugmyndin um aflúsun með lifandi fiski er frá
Noregi komin. Þar í landi eru áætlanir uppi um eldi
á milljónum hrognkelsaseiða, sem er til marks um
hversu vel fiskurinn hentar til verksins á norðlægum
slóðum. svavar@frettabladid.is
Ala hrognkelsi til áts
á laxalús í Færeyjum
Stofnfiskur ehf. og Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar ala og selja hrogn-
kelsaseiði til Færeyja til aflúsunar í laxeldi. Tilraunir ganga vonum framar –
áframhald fyrirséð næstu árin. Aðferðin kemur til greina við laxeldi hér á landi.
Á HANDARBAKI Þessi seiði eru aðeins gramm að þyngd og
eiga eftir að tuttugufaldast í þyngd áður en þau verða send til
Færeyja. MYND/AGNAR
AGNAR
STEINARSSON
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
F
-3
5
B
C
1
6
2
F
-3
4
8
0
1
6
2
F
-3
3
4
4
1
6
2
F
-3
2
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K