Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 40
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
Á meðan heimsbyggðin hneyksl-
ast á ástarlífi Miley Cyrus eða
tungutilburðum hennar á sviðinu,
er hún upptekin við að koma á fót
sérstökum sjóð, Happy Hippie
Foundation. Hefur sjóðurinn
þann tilgang að styðja við bakið
á heimilislausum unglingum og
styrkja ungt fólk sem tilheyrir
minnihlutahópum, svo sem trans-
hópum og samkynhneigðum.
Cyrus segist meðvituð um þá
forréttindastöðu sem hún sé í, og
hún hafi heilmikil völd sem kjörið
sé að nýta til góðs.
Sagði söngkonan í viðtali við
The Associated Press sem fjallaði
um sjóðinn, að fjölmiðlar hefðu
svo mikinn áhuga á brjóstunum
á henni svo dæmi væri tekið,
að hún sæi ekki ástæðu til að
hylja þau, þannig fengi hún ein-
mitt athyglina sem hana vantaði
þegar hún ræddi um sjóðinn og
þannig kæmust upplýsingarnar
út í kosm ósið.
Cyrus sagði jafnframt að
Catlyn Jenner, væri hennar fyrir-
mynd og ekki annað en hetja í
hennar augum, og vildi hún stuðla
að aukinni vitund um stöðu fólks
í slíkum aðstæðum.
Hjartað á réttum stað
Miley notar frægðina til að hjálpa minnihlutahópum.
GEGGJUÐ
Miley
ruglar fólk
ítrekað í
ríminu og
er yfirleitt
mikið
á milli
tannanna
á öllum.
Áfram
Miley!
F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/N
O
RD
IC
PH
O
TO
S
Tökur á Spectre,
t ut t ug ust u og
fjórðu myndinni
um kvennabósann
sínjósnandi James
Bond, standa nú yfir og mun
myndin koma í kvikmyndahús
vestanhafs í nóvember á þessu
ári.
Daniel Craig er í hlutverki
Bonds, líkt og í undanförnum
fimm Bond-myndum. Er talið að
hann eigi eina eftir, sé Spectre
talin með.
Því er ekki seinna vænna að
fara að velta fyrir sér hver næsti
Bond verði, og hafa veðbankar
þegar tekið við sér. Leikararn-
ir hafa heldur ekki setið auðum
höndum og keppast við að láta
umheiminn vita af áhuga sínum á
þessu bitastæða hlutverki.
Ofurtöffarinn Jason Statham er
einn þeirra sem vel gætu hugsað
sér að bregða sér í
hlutverk Bonds og
sagði hann frá því
á dögunum í viðtali
við The Guardian.
Tók hann jafnframt skýrt fram að
hann hefði ekki áhuga á að leika
illmennið, líkt og sums staðar
hefur verið látið skína í.
Þá hefur sjálfur Pierce Brosn-
an, sem lék Bond alls fjórum sinn-
um, og á undan Craig, bent á þá
sem honum þykir bestir. Annar
þeirra er Colin Salmon, sem
hefur leikið í þremur James Bond-
myndum til þessa, þá sem Charles
Robinson, og hinn er Idris Elba,
sem þekktur er fyrir að leika hinn
harðsnúna Luther í samnefndum
spennuþáttum. Eru þeir afar vin-
sælir kostir meðal veðbankanna.
Þá hafa kappar á borð við
Tom Hardy, Michael Fassben-
der, Henry Cavil, Luke Evans og
Downton Abbey-leikarann Dan
Stevens skotið upp kollinum í
þessu samhengi.
Þrátt fyrir hve borubratt-
ur Jason hefur verið varðandi
málið, eru líkurnar ekki að vinna
með honum, en þær eru sextíu og
sex gegn einum. Hins vegar má
Elba byrja að hlakka til, því menn
eru á því að hann komi til með
að hreppa hnossið, og verður þá
fyrsti svarti maðurinn til að túlka
James Bond á hvíta tjaldinu.
Hver verður valinn
næsti James Bond?
Daniel Craig á tvær myndir eft ir, en þó eru veðbankar farnir að velta fyrir sér
hver muni leysa hann af hólmi. Sjálfur Pierce Brosnan hefur blandað sér í málið.
COLIN SALMON Ekki ókunnugur Bond-
umhverfinu, en þennan langar Brosnan
að sjá sem hinn eina sanna Bond.
ELBA Kappinn þykir afar heillandi,
en það er einmitt meginhlutverk
njósnarans. Þessi þykir líklegastur sam-
kvæmt veðbönkum vestanhafs.
HARÐUR Statham er þekktur fyrir að
vera mikið hörkutól, en hann er óður í
að verða næsti Bond.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDICPHOTOS
Grínleikarinn Vince Vaughn sló
heldur betur ekki á létta strengi
þegar hann viðraði skoðanir sínar
á byssueign Bandaríkjamanna í
viðtali við tímaritið GQ nýlega.
Þar fór hann mikinn og sagði
fullkomlega eðlilegt að sam-
landar hans hefðu rétt til að bera
skotvopn, ekki bara heima hjá
sér, heldur alltaf, alls staðar. Brá
mörgum í brún, en undanfarið
hefur umræðan um hvort banna
ætti almenningi að bera skotvopn
verið hávær þar vestra, og marg-
ir á þeirri skoðun að vopnin megi
missa sín, í ljósi tíðra skotárása í
skólum landsins.
Bar hann tjáningarfrelsið fyrir
sig og benti á að álíka gáfulegt
væri að banna skotvopn í barátt-
unni gegn voðaverkum eins og að
banna gaffla gegn offitu.
Svipað að banna byssur og gaffl a
Vince Vaughn telur vel við hæfi að Bandaríkjamenn beri skotvopn öllum tímum.
BRATTUR Vince mun birtast í sjón-
varpinu fyrr en síðar í þáttunum True
Detective, sennilega byssuglaður.
➜ 1962-1967 Sean Connery
1969 George Lazenby
1971 Sean Connery
1973-1985 Roger More
1987-1989 Timothy Dalton
1995-2002 Pierce Brosnan
2006-2015 Daniel Craig
RISAÚTSALA!
VERÐ ÁÐUR
4.990,-
2.990,-
TIMMY STUTTERMABOLIR
STÆRÐIR: 104-140
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
o. sbi iSAM
Frá leikstjóra
Mission Impossible: Ghost Protocol
og The Incredibles
THE HOLLYWOOD REPORTER
VILLAGE VOICE
EMPIRE
TOTAL FILM
VINSÆLASTA MYNDIN Í HEIMINUM Í DAG!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG BRETLANDI.
DWAYNE JOHNSON
SUMARSTÓRMYNDIR VERÐA EKKI STÆRRI EN ÞESSI!
SAN ANDREAS 3D 5:30, 8, 10:30
SPY 5:30, 8, 10:30
HRÚTAR 6, 8
PITCH PERFECT 2 10:15
FRÁ LEIKSTJÓRA
BRIDESMAIDS OG THE HEAT
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
F
-6
7
1
C
1
6
2
F
-6
5
E
0
1
6
2
F
-6
4
A
4
1
6
2
F
-6
3
6
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K