Fréttablaðið - 03.06.2015, Síða 41
MIÐVIKUDAGUR 3. júní 2015 | MENNING | 25
„Ég hef alltaf haft mjög gaman
af bakstri og einn daginn hugsaði
ég: Hvað á ég að taka mér fyrir
hendur, sem gerir mig virkilega
ánægða? og svarið var augljóst,
kökublogg,“ segir fjölmiðlakonan
og bakarinn Lilja Katrín Gunn-
arsdóttir. Hún hefur nú sett í loft-
ið kökubloggsíðuna blaka.is. Hún
ætlar að baka alls konar kökur, lit-
ríkar, flippaðar, jafnt óvenjulegar
og venjulegar, og blogga um það á
síðunni sinni.
„Þetta er vissulega ekki frum-
legasta hugmynd í heimi en gerir
mig ánægða,“ segir Lilja Katrín,
sem ætlar að vera með sérstakt
kökuþema í hverjum mánuði.
„Þemað fer bara algjörlega eftir
skapi mínu. Þennan mánuðinn
er þemað liturinn gulur, það er
vegna þess að ég sakna sólarinn-
ar mikið,“ segir Lilja Katrín létt í
lundu og hlær.
Spurð út í sínar helstu fyrir-
myndir í eldhúsinu er svarið ein-
falt. „Rikka er mín helsta fyrir-
mynd, ekki bara í bakstri heldur
líka útlitslega og að öllu leyti.“
Lilja Katrín fékk sama hönnuð
og þann sem hannaði vef Daily
Mail, sem er einn vinsælasti
fréttavefur í heimi. „Minn heitt-
elskaði kærasti, Guðmundur R.
Einarsson, sá um að setja upp síð-
una.“ - glp
Rikka fyrirmynd í eldhúsi og útliti
Fjölmiðlakonan Lilja Katrín Gunnarsdóttir fræðir fólk um bakstur og kökugerð.
BROSANDI
BAKARI Lilja
Katrín Gunn-
arsdóttir hefur
gaman af því
að baka litríkar
og flippaðar
kökur.
MYND/MARÍN
MANDA
Þemað fer bara
algjörlega eftir skapi
mínu. Þennan mánuðinn
er þemað liturinn gulur,
það er vegna þess að ég
sakna sólarinnar mikið.
Opið fyrir umsóknir – Opni háskólinn í HR
Á vefnum opnihaskolinn.is eru
upplýsingar um öll námskeið,
leiðbeinendur, verð og skráningu.
„PMD-námið er mjög góð leið til að rifja upp og
fríska upp á kunnáttuna í stjórnendafræðunum.
Þar sem ég er töluvert á ferðinni vegna vinnu þá
hentar námsfyrirkomulagið mjög vel. Loturnar
í náminu eru mjög fjölbreyttar en allar eiga
þær það sameiginlegt að gefa góða innsýn í
viðfangsefnið.“
Haraldur Gunnlaugsson
Verkefnastjóri á markaðssviði Marel
Námslínur sem hefjast í haust:
• Almennir bókarar
• APME verkefnastjórnun
• Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
• Markþjálfun
• PMD stjórnendanám HR
• Rekstrar- og fjármálanám
• Rekstrarnám fyrir hönnuði
• Stafræn markaðssetning og viðskipti
á netinu
• Straumlínustjórnun
• Straumlínustjórnun fyrir stjórnendur
• Hótelstjórnun og veitingahúsarekstur
• Verðbréfamiðlun
• Viðurkenndir bókarar
• Vörustjórnun í samstarfi við AGR
• Vinnsla og greining gagna
N Ý T T
N Ý T T
N Ý T T
Námskeið Opna háskólans í HR eru sniðin
að þörfum sérfræðinga og stjórnenda í
íslensku atvinnulífi. Lengri námslínur eru
allt frá einni önn að einu ári og henta vel
samhliða starfi. Meginmarkmið lengri
námskeiða er að veita þátttakendum
viðurkenningu í sínu fagi og auka þekkingu
þeirra og færni innan ákveðinna fagsviða.
LANGAR ÞIG Í NÁM
MEÐ VINNU?
„Ef kona sést með hár annars stað-
ar en á höfðinu fer allt á hliðina,“
segir Inga Mekkin Guðmundsdóttir,
konan á bak við síðuna Loðin í kjól.
Síðan er stuðningsyfirlýsing við
konur og náttúrulegan hárvöxt
þeirra sem einhverra hluta vegna
er litinn hornauga og má helst ekki
sjást. Hefur síðan fengið gríðarlega
góð viðbrögð frá íslenskum konum
og segist Inga fá býsna mikið af
skilaboðum frá konum úr ýmsum
áttum sem þakki henni fyrir að
storka þessum stöðluðu ímyndum
samfélagsins varðandi fegurð. Hún
vonast til að boðskapurinn dreifist
sem víðast.
„Eftir að ég hætti að raka af mér
öll þessi hár, viðurkenni ég alveg að
það var sannkölluð kvöl og pína að
fara í sund og annað slíkt, fólk spáir
ofboðslega mikið í þetta,“ segir
Inga, og bendir á að fordómar gagn-
vart „óæskilegum“ hárum kvenna
séu gríðarlegir. „Ég þekki fullt af
fólki sem finnst beinlínis ógeðslegt
að vera ekki rakað eða vaxað, og
skefur ekki af því við fólkið í kring-
um sig,“ útskýrir Inga. Hún lætur
slíkt þó ekki á sig fá, og svarar fólki
alla jafna fullum hálsi þegar það
sér sig knúið til að tjá sig um hár-
vöxt hennar.
„Ég fór af stað með þessa síðu
vegna þess að mig langaði að sjá
hvert viðhorf fólks væri í þessum
efnum, hvort fleiri væru á sömu
bylgjulengd og ég, og hefur ekki
staðið á viðbrögðunum,“ bendir
Inga á og bætir við að sér hafi til að
mynda borist myndir af konum sem
vilja leggja sitt af mörkum.
„Ég velti fyrir mér hvar þetta
hárleysi byrjaði og velti enn frekar
fyrir mér hvar þetta muni enda.“ - ga
Kafl oðin í kjól
svarar kallinu
LOÐIN Inga segir fólk sífellt opnara um
þessi mál og segir greinilegt að fleiri hugsi
á sömu nótum og hún. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
F
-F
B
3
C
1
6
2
F
-F
A
0
0
1
6
2
F
-F
8
C
4
1
6
2
F
-F
7
8
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K