Fréttablaðið - 11.08.2015, Side 19
Reynsluakstur
Audi Q7 og Suzuki Vitara
Benz og BMW
Hætta þau ímynd sinni?
Porsche Met í vinsældum
GM Veðjar á Indland BÍLAR
S
ala nýrra bíla frá janú-
ar til júlíloka í ár
hefur verið góð miðað
við sama tíma í fyrra.
Alls hafa selst 10.823
bílar sem er 41% fleiri
bílar en í fyrra þegar
þeir voru 7.674. Allir markaðs-
hlutar eru að vaxa ágætlega en
þó er áberandi meiri vöxtur í sölu
til einstaklinga, eða 49,1%, og
enn meiri vöxtur til fyrirtækja
annarra en bílaleiga, eða 56,5%.
Bílaleigur hafa síðan keypt
32,7% fleiri bíla en í fyrra og er
því hlutdeild bílaleiga heldur að
minnka og er það sem af er ári
52,7% af heildarsölunni, miðað
við 56% í fyrra. Seinnipart ársins
er lítið um sölu til bílaleiga og lík-
legt er að hlutdeild þeirra endi í
um 37% af heildarsölunni.
Toyota langsöluhæsta bílamerkið
Toyota hefur selst best af ein-
staka bílamerkjum, eða alls 1.781
bíll, en á sama tíma í fyrra voru
þeir 1.178, vöxtur upp á 51,2%.
Næstsöluhæsta bílamerkið er
Volkswagen með 1.006 selda
bíla en þeir voru 836 í fyrra,
20,3% vöxtur þar. Kia kemur svo
í þriðja sæti með 939 bíla, en í
fyrra voru þeir 625, 50,2% vöxt-
ur. Þar á eftir koma bílamerk-
in Suzuki, Skoda, Hyundai, Ford,
Renault, Nissan og Mazda er í tí-
unda sæti. Hástökkvari ársins
er samt Opel með 382 bíla selda,
en aðeins 17 í fyrra, eða 2.141%
vöxt. Bílabúð Benna tók yfir
Opel-merkið frá BL í fyrra. Enn
fremur var gríðarlegur vöxtur í
sölu Mitsubishi-bíla, en selst hafa
206 slíkir á árinu en aðeins 26 í
fyrra, sem svarar til 692% vaxt-
ar. Citroën-bílar hafa einnig selst
103% betur, með 203 bíla í ár en
100 í fyrra.
Mercedes Benz selst best af lúxus-
bílamerkjunum
Vel hefur gengið að selja bíla þá
sem teljast til lúxusbílamerkja.
Þar trónir Mercedes Benz
hæst með 295 bíla selda. Þar á
eftir kemur Land Rover/Range
Rover með 151 bíl, Volvo 127,
Audi 98 og BMW 68. Mest aukn-
ing hefur orðið hjá Audi, en
þeir hafa selst 55,6% betur en í
fyrra, en vöxturinn hjá Volvo er
51,2%. Sala Porsche-bíla hefur
einnig gengið mjög vel á þessu
ári og selst hafa einir 50 bílar,
umtalsvert meira en á sama
tíma í fyrra og er aukning-
in ef til vill mess hjá Porsche
af lúxus bílamerkjunum. Sala
BMW hefur svo til staðið í stað,
en selst hafa 68 bílar í ár en 66
á sama tíma í fyrra.
BL söluhæsta umboðið
Af einstaka bílaumboðum er BL
söluhæst með 2.447 selda bíla.
Þar á eftir kemur Hekla með
1.970 bíla, Toyota með 1.809
bíla, Brimborg með 1.314 bíla
og Askja með 1.234 bíla selda.
Þau umboð sem eru enn undir
1.000 seldum bílum eru Bíla-
búð Benna með 808 bíla, Su-
zuki með 700 bíla og Bernhard,
395 bílar. Aðrir söluaðilar hafa
svo selt 146 bíla. Mest aukn-
ing á milli ára hefur orðið hjá
Brimborg, eða 53,0%, 51,3% hjá
Toyota/Lexus, 47,7% hjá BL,
44,2% hjá Bernhard og 42,2%
hjá Öskju.
SALA BÍLA 41% MEIRI EN Í FYRRA
Einstaklingar hafa keypt 49% fleiri bíla en í fyrra, fyrirtæki 57% fleiri bíla og bílaleigur 33% fleiri. BL söluhæst.
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
2
-1
E
5
8
1
5
B
2
-1
D
1
C
1
5
B
2
-1
B
E
0
1
5
B
2
-1
A
A
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K