Fréttablaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 19
Reynsluakstur Audi Q7 og Suzuki Vitara Benz og BMW Hætta þau ímynd sinni? Porsche Met í vinsældum GM Veðjar á Indland BÍLAR S ala nýrra bíla frá janú- ar til júlíloka í ár hefur verið góð miðað við sama tíma í fyrra. Alls hafa selst 10.823 bílar sem er 41% fleiri bílar en í fyrra þegar þeir voru 7.674. Allir markaðs- hlutar eru að vaxa ágætlega en þó er áberandi meiri vöxtur í sölu til einstaklinga, eða 49,1%, og enn meiri vöxtur til fyrirtækja annarra en bílaleiga, eða 56,5%. Bílaleigur hafa síðan keypt 32,7% fleiri bíla en í fyrra og er því hlutdeild bílaleiga heldur að minnka og er það sem af er ári 52,7% af heildarsölunni, miðað við 56% í fyrra. Seinnipart ársins er lítið um sölu til bílaleiga og lík- legt er að hlutdeild þeirra endi í um 37% af heildarsölunni. Toyota langsöluhæsta bílamerkið Toyota hefur selst best af ein- staka bílamerkjum, eða alls 1.781 bíll, en á sama tíma í fyrra voru þeir 1.178, vöxtur upp á 51,2%. Næstsöluhæsta bílamerkið er Volkswagen með 1.006 selda bíla en þeir voru 836 í fyrra, 20,3% vöxtur þar. Kia kemur svo í þriðja sæti með 939 bíla, en í fyrra voru þeir 625, 50,2% vöxt- ur. Þar á eftir koma bílamerk- in Suzuki, Skoda, Hyundai, Ford, Renault, Nissan og Mazda er í tí- unda sæti. Hástökkvari ársins er samt Opel með 382 bíla selda, en aðeins 17 í fyrra, eða 2.141% vöxt. Bílabúð Benna tók yfir Opel-merkið frá BL í fyrra. Enn fremur var gríðarlegur vöxtur í sölu Mitsubishi-bíla, en selst hafa 206 slíkir á árinu en aðeins 26 í fyrra, sem svarar til 692% vaxt- ar. Citroën-bílar hafa einnig selst 103% betur, með 203 bíla í ár en 100 í fyrra. Mercedes Benz selst best af lúxus- bílamerkjunum Vel hefur gengið að selja bíla þá sem teljast til lúxusbílamerkja. Þar trónir Mercedes Benz hæst með 295 bíla selda. Þar á eftir kemur Land Rover/Range Rover með 151 bíl, Volvo 127, Audi 98 og BMW 68. Mest aukn- ing hefur orðið hjá Audi, en þeir hafa selst 55,6% betur en í fyrra, en vöxturinn hjá Volvo er 51,2%. Sala Porsche-bíla hefur einnig gengið mjög vel á þessu ári og selst hafa einir 50 bílar, umtalsvert meira en á sama tíma í fyrra og er aukning- in ef til vill mess hjá Porsche af lúxus bílamerkjunum. Sala BMW hefur svo til staðið í stað, en selst hafa 68 bílar í ár en 66 á sama tíma í fyrra. BL söluhæsta umboðið Af einstaka bílaumboðum er BL söluhæst með 2.447 selda bíla. Þar á eftir kemur Hekla með 1.970 bíla, Toyota með 1.809 bíla, Brimborg með 1.314 bíla og Askja með 1.234 bíla selda. Þau umboð sem eru enn undir 1.000 seldum bílum eru Bíla- búð Benna með 808 bíla, Su- zuki með 700 bíla og Bernhard, 395 bílar. Aðrir söluaðilar hafa svo selt 146 bíla. Mest aukn- ing á milli ára hefur orðið hjá Brimborg, eða 53,0%, 51,3% hjá Toyota/Lexus, 47,7% hjá BL, 44,2% hjá Bernhard og 42,2% hjá Öskju. SALA BÍLA 41% MEIRI EN Í FYRRA Einstaklingar hafa keypt 49% fleiri bíla en í fyrra, fyrirtæki 57% fleiri bíla og bílaleigur 33% fleiri. BL söluhæst. BETRA START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 1 0 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 2 -1 E 5 8 1 5 B 2 -1 D 1 C 1 5 B 2 -1 B E 0 1 5 B 2 -1 A A 4 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.