Fréttablaðið - 11.08.2015, Síða 28

Fréttablaðið - 11.08.2015, Síða 28
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 10 11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR 3,0 L DÍSILVÉL, 272 HESTÖFL Fjórhjóladrif Eyðsla 5,7 l/100 km í bl. akstri Mengun 149 g/km CO2 Hröðun 6,3 sek. Hámarkshraði 234 km/klst. Verð 11.890.000 kr. Umboð Hekla ● Rými ● Góðir aksturseiginleikar ● Hljóðlátur ● Frábærar vélar ● Lítil útlitsbreyting frá fyrri kynslóð AUDI Q7 AUDI Q7 Finnur Thorlacius reynsluekur V art var hægt að gleðja bílaáhuga- mann mikið meira en með því að afhenda honum eina eintak- ið af nýjustu kyn- slóð Audi Q7 til af- nota um verslunarmannahelg- ina. Það var þó einmitt það sem Hekla gerði á dögunum og var þess notið til hins ýtrasta. Hér er kominn bíll sem margir Audi- aðdáendur hafa beðið eftir og sú bið er að taka enda og var þess virði ef mið er tekið af gæðum hans og þeim yfirmáta lúxusakstri sem hann býður upp á. Þetta er önnur kynslóð þessa myndarlega jeppa og seld- ist sú fyrri mjög vel hér á landi og hefur reynst vel. Því má ímynda sér að margur eigand- inn að fyrstu kynslóðinni geti hugsað sér að endurnýja og fá fyrir vikið gerbreyttan og enn betri bíl. Fyrir það fyrsta hefur Audi tekist að létta bílinn um heil 325 kíló. Audi er þekkt fyrir mikla álnotkun í bíla sína og hér hefur fyrirtækið gengið enn þá lengra. Allt var gert til að létta bílinn sem mest og átti það ekki einungis við yfirbyggingu hans heldur einnig undirvagn sem og hvaðeina sem létta mátti. Fyrir vikið er bíllinn frábær aksturs- bíll og afar snöggur með öllum þeim vélum sem í boði eru. Styttri og mjórri en aukið rými Ólíkt mörgum öðrum nýjum bílum hefur Audi minnkað Q7 og er hann nú 3,7 sentimetr- um styttri og 1,5 cm mjórri. Það þýðir ekki að innanrými hans hafi minnkað, heldur þvert á móti. Bilið milli fram- og aftur- sæta hefur aukist um 2,1 cm og höfuðrými hefur einnig auk- ist í bæði fram- og aftursætum. En það er ekki nóg að tala um fram- og aftursæti í þessum bíl, hann er með þriðju sætaröðina og þar fer líka einkar vel um farþega. Hægt er að fá þau með rafrænni uppsetningu og magn- að er að sjá þau fara upp úr flötu gólfinu með því að styðja á takka. Þannig var reynslu- akstursbíllinn útbúinn. Innan- rými bílsins er hreint út sagt stórkostlega fallegt og mjög yfrið. Til dæmis var leikur einn að setja tvö fjallahjól inn í bíl- inn og ekkert fór fyrir þeim og nóg pláss fyrir annan farangur, sem ekki var þó með í för. Audi Q7 væri hinn fullkomni bíll til ferðalaga með sitt gríðarlega pláss og aksturs- og torfæru- getu. Það er ekki heldur leiðin- legt að aka honum í bænum og vakti hann alls staðar mikla at- hygli og störðu margir úr sér augun þegar þeir litu þenn- an fagra bíl. Að ytra útliti má glöggt sjá að hér fer Audi Q7, hann er ekki svo mikið frá- brugðinn fyrri kynslóð bíls- ins, en bara enn fegurri. Sumir hafa velt fyrir sér af hverju Audi breytti útliti hans ekki meira, en sumu fögru þarf bara ekki að breyta svo mikið. Þarna hefur Audi fengið á sig gagn- rýni og margir vildu sjá drast- íska breytingu á útliti bílsins, en sitt sýnist hverjum. Sex strokka dísil- og bensínvélar og tvíorkuaflrás Þessi fyrsti Q7 sem kominn er til landsins er með hinni kunnu 3,0 lítra dísilvél, sem nú er orðin 272 hestöfl. Þannig voru flestir þeir bílar af fyrri kynslóð sem seld- ust hér á landi, þó svo margir þeirra hafi verið með 8 strokka og 4,2 lítra bensínvélinni. Þessi dísilvél er ferlega öflug og skemmtileg og þeytir þessum myndarlega bíl í 100 km hraða á 6,3 sekúndum og gera fáir stór- ir jeppar betur. Enn betur má þó gera með 333 hestafla bensínvél- inni, sem nú er orðin 6 strokka, en með henni er spretturinn tek- inn á 6,1 sekúndu. Þriðja aflrás- in sem í boði verður er tvíorku- aflrás með bensínsvél og rafmót- orum sem skilar 368 hestöflum. Sá bíll kemur örlítið seinna á markað en hinir, en er ekki síður freistandi kostur með sinni litlu eyðslu. Uppgefin eyðsla hans er aðeins 1,7 lítrar og hann kemst fyrstu 56 kílómetrana á raf- magninu einu og mengar aðeins 46 CO2 g/km. Hann ætti því að vera í lægsta tollflokki og fást fyrir vikið á lágu verði. Við akst- ur dísilbílsins vakti það strax furðu að svo til ekkert heyrðist í vélinni og bíllinn er svo hljóð- látur í alla staði að minnið rekur ekki til annars eins. Ökumað- ur hefur ekki hugmynd um það að hann sé að aka dísilbíl og þó að gefið sé inn þarf að leggja við hlustir til að greina annars mjög fallegt hljóðið í dísilvélinni og þætti sumum það hreinlega of lágvært, því stundum fylgir mikil nautn inngjöfum hvað hljóð varðar. Eins og á persnesku töfrateppi Akstri þessa bíls fylgir ein sú mesta lúxustilfinning sem greinarskrifari hefur reynt. Allt er svo áreynslulaust og fallegt. Bæði er svo gaman að taka á bílnum, hvort sem er í beygjum eða mikilli hröðun á beinum köflum og hann hegð- ar sér eins og sönnum hefðar- manni sæmir. Fjöðrun bílsins er algert yndi og hann hlær að hraðahindrununum og snýt- ir þeim eins og þær aldrei hafi verið til. Sama á við í akstri á malarvegum og reynsla er- lendra ökumanna við hrað- an akstur á vondum vegum í Namibíu var slík að aldrei höfðu þeir reynt eins litla fyr- irhöfn við stýringu bíls á öðru hundraðinu á slíku undirlagi. Hann svífur bara yfir eins og farið væri um á persnesku töfrateppi. Auk þess var hægt að halda uppi lágværum sam- ræðum í bílnum á meðan. Audi hefur tekist að lækka þyngdar- punkt bílsins um fimm senti- metra og hefur það orðið til að auka aksturseiginleika hans til muna. Hérna fer því bíll fyrir vandláta. Verð Audi Q7 með dísilvélinni er 11.890.000 krón- ur, með 333 hestafla bensín- vélin kostar hann 13.590.000 krónur en verð hans með tví- orkuaflrásinni er ekki ljóst enn. Verð Land Rover Discov- ery með sambærilegri dísilvél í afli er 13.990.000. Verð nýja Volvo XC90 jeppans með mun aflminni 225 hestafla dísil- vél er 10.590.000 í ódýrustu út- færslu og 11.890.000 í dýrustu útfærslu. VANDFUNDINN MEIRI LÚXUS Ný kynslóð Audi Q7 er komin til landsins og þar fer 325 kílóum léttari bíll en forverinn og lúxus er eina orðið sem kemur upp í hugann hvað varðar akstur hans, innréttingu og allan frágang. FRÉTTABLAÐID/VILHELM INNRÉTTINGAR AUDI eru þekktar fyrir fegurð og hér slá þeir sjálfum sér við. MÆLARNIR eru stafrænir og hrikalega flottir. MEÐ AÐRA OG ÞRIÐJU SÆTARÖÐ NIÐRI: er gólfið marflatt og flutningsrýmið nærri 2.000 lítrum. 1 0 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 2 -0 A 9 8 1 5 B 2 -0 9 5 C 1 5 B 2 -0 8 2 0 1 5 B 2 -0 6 E 4 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.