Fréttablaðið - 11.08.2015, Qupperneq 28
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
10 11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR
3,0 L DÍSILVÉL, 272 HESTÖFL
Fjórhjóladrif
Eyðsla 5,7 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 149 g/km CO2
Hröðun 6,3 sek.
Hámarkshraði 234 km/klst.
Verð 11.890.000 kr.
Umboð Hekla
● Rými
● Góðir aksturseiginleikar
● Hljóðlátur
● Frábærar vélar
● Lítil útlitsbreyting frá
fyrri kynslóð
AUDI
Q7
AUDI Q7
Finnur Thorlacius reynsluekur
V
art var hægt að
gleðja bílaáhuga-
mann mikið meira en
með því að afhenda
honum eina eintak-
ið af nýjustu kyn-
slóð Audi Q7 til af-
nota um verslunarmannahelg-
ina. Það var þó einmitt það sem
Hekla gerði á dögunum og var
þess notið til hins ýtrasta. Hér
er kominn bíll sem margir Audi-
aðdáendur hafa beðið eftir og
sú bið er að taka enda og var
þess virði ef mið er tekið af
gæðum hans og þeim yfirmáta
lúxusakstri sem hann býður
upp á. Þetta er önnur kynslóð
þessa myndarlega jeppa og seld-
ist sú fyrri mjög vel hér á landi
og hefur reynst vel. Því má
ímynda sér að margur eigand-
inn að fyrstu kynslóðinni geti
hugsað sér að endurnýja og fá
fyrir vikið gerbreyttan og enn
betri bíl. Fyrir það fyrsta hefur
Audi tekist að létta bílinn um
heil 325 kíló. Audi er þekkt fyrir
mikla álnotkun í bíla sína og hér
hefur fyrirtækið gengið enn þá
lengra. Allt var gert til að létta
bílinn sem mest og átti það ekki
einungis við yfirbyggingu hans
heldur einnig undirvagn sem og
hvaðeina sem létta mátti. Fyrir
vikið er bíllinn frábær aksturs-
bíll og afar snöggur með öllum
þeim vélum sem í boði eru.
Styttri og mjórri en aukið rými
Ólíkt mörgum öðrum nýjum
bílum hefur Audi minnkað Q7
og er hann nú 3,7 sentimetr-
um styttri og 1,5 cm mjórri. Það
þýðir ekki að innanrými hans
hafi minnkað, heldur þvert á
móti. Bilið milli fram- og aftur-
sæta hefur aukist um 2,1 cm og
höfuðrými hefur einnig auk-
ist í bæði fram- og aftursætum.
En það er ekki nóg að tala um
fram- og aftursæti í þessum bíl,
hann er með þriðju sætaröðina
og þar fer líka einkar vel um
farþega. Hægt er að fá þau með
rafrænni uppsetningu og magn-
að er að sjá þau fara upp úr
flötu gólfinu með því að styðja
á takka. Þannig var reynslu-
akstursbíllinn útbúinn. Innan-
rými bílsins er hreint út sagt
stórkostlega fallegt og mjög
yfrið. Til dæmis var leikur einn
að setja tvö fjallahjól inn í bíl-
inn og ekkert fór fyrir þeim og
nóg pláss fyrir annan farangur,
sem ekki var þó með í för. Audi
Q7 væri hinn fullkomni bíll til
ferðalaga með sitt gríðarlega
pláss og aksturs- og torfæru-
getu. Það er ekki heldur leiðin-
legt að aka honum í bænum og
vakti hann alls staðar mikla at-
hygli og störðu margir úr sér
augun þegar þeir litu þenn-
an fagra bíl. Að ytra útliti má
glöggt sjá að hér fer Audi Q7,
hann er ekki svo mikið frá-
brugðinn fyrri kynslóð bíls-
ins, en bara enn fegurri. Sumir
hafa velt fyrir sér af hverju
Audi breytti útliti hans ekki
meira, en sumu fögru þarf bara
ekki að breyta svo mikið. Þarna
hefur Audi fengið á sig gagn-
rýni og margir vildu sjá drast-
íska breytingu á útliti bílsins,
en sitt sýnist hverjum.
Sex strokka dísil- og bensínvélar
og tvíorkuaflrás
Þessi fyrsti Q7 sem kominn er til
landsins er með hinni kunnu 3,0
lítra dísilvél, sem nú er orðin 272
hestöfl. Þannig voru flestir þeir
bílar af fyrri kynslóð sem seld-
ust hér á landi, þó svo margir
þeirra hafi verið með 8 strokka
og 4,2 lítra bensínvélinni. Þessi
dísilvél er ferlega öflug og
skemmtileg og þeytir þessum
myndarlega bíl í 100 km hraða á
6,3 sekúndum og gera fáir stór-
ir jeppar betur. Enn betur má þó
gera með 333 hestafla bensínvél-
inni, sem nú er orðin 6 strokka,
en með henni er spretturinn tek-
inn á 6,1 sekúndu. Þriðja aflrás-
in sem í boði verður er tvíorku-
aflrás með bensínsvél og rafmót-
orum sem skilar 368 hestöflum.
Sá bíll kemur örlítið seinna á
markað en hinir, en er ekki síður
freistandi kostur með sinni litlu
eyðslu. Uppgefin eyðsla hans er
aðeins 1,7 lítrar og hann kemst
fyrstu 56 kílómetrana á raf-
magninu einu og mengar aðeins
46 CO2 g/km. Hann ætti því að
vera í lægsta tollflokki og fást
fyrir vikið á lágu verði. Við akst-
ur dísilbílsins vakti það strax
furðu að svo til ekkert heyrðist
í vélinni og bíllinn er svo hljóð-
látur í alla staði að minnið rekur
ekki til annars eins. Ökumað-
ur hefur ekki hugmynd um það
að hann sé að aka dísilbíl og þó
að gefið sé inn þarf að leggja
við hlustir til að greina annars
mjög fallegt hljóðið í dísilvélinni
og þætti sumum það hreinlega
of lágvært, því stundum fylgir
mikil nautn inngjöfum hvað
hljóð varðar.
Eins og á persnesku töfrateppi
Akstri þessa bíls fylgir ein
sú mesta lúxustilfinning sem
greinarskrifari hefur reynt.
Allt er svo áreynslulaust og
fallegt. Bæði er svo gaman að
taka á bílnum, hvort sem er í
beygjum eða mikilli hröðun á
beinum köflum og hann hegð-
ar sér eins og sönnum hefðar-
manni sæmir. Fjöðrun bílsins
er algert yndi og hann hlær að
hraðahindrununum og snýt-
ir þeim eins og þær aldrei hafi
verið til. Sama á við í akstri
á malarvegum og reynsla er-
lendra ökumanna við hrað-
an akstur á vondum vegum
í Namibíu var slík að aldrei
höfðu þeir reynt eins litla fyr-
irhöfn við stýringu bíls á öðru
hundraðinu á slíku undirlagi.
Hann svífur bara yfir eins
og farið væri um á persnesku
töfrateppi. Auk þess var hægt
að halda uppi lágværum sam-
ræðum í bílnum á meðan. Audi
hefur tekist að lækka þyngdar-
punkt bílsins um fimm senti-
metra og hefur það orðið til að
auka aksturseiginleika hans til
muna. Hérna fer því bíll fyrir
vandláta. Verð Audi Q7 með
dísilvélinni er 11.890.000 krón-
ur, með 333 hestafla bensín-
vélin kostar hann 13.590.000
krónur en verð hans með tví-
orkuaflrásinni er ekki ljóst
enn. Verð Land Rover Discov-
ery með sambærilegri dísilvél
í afli er 13.990.000. Verð nýja
Volvo XC90 jeppans með mun
aflminni 225 hestafla dísil-
vél er 10.590.000 í ódýrustu út-
færslu og 11.890.000 í dýrustu
útfærslu.
VANDFUNDINN MEIRI LÚXUS
Ný kynslóð Audi Q7 er komin til landsins og þar fer 325 kílóum léttari bíll en forverinn og lúxus
er eina orðið sem kemur upp í hugann hvað varðar akstur hans, innréttingu og allan frágang.
FRÉTTABLAÐID/VILHELM
INNRÉTTINGAR AUDI
eru þekktar fyrir
fegurð og hér slá þeir
sjálfum sér við.
MÆLARNIR
eru stafrænir og
hrikalega flottir.
MEÐ AÐRA OG ÞRIÐJU
SÆTARÖÐ NIÐRI:
er gólfið marflatt og
flutningsrýmið nærri
2.000 lítrum.
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
2
-0
A
9
8
1
5
B
2
-0
9
5
C
1
5
B
2
-0
8
2
0
1
5
B
2
-0
6
E
4
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K