Fréttablaðið - 11.08.2015, Page 46
11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Það eru aðeins nokkrir dagar síðan
nýjasta plata hljómsveitarinnar
Agent Fresco, Destrier, kom út en
hún hefur nú þegar fengið frábær
viðbrögð. Margir erlendir miðlar
hafa dæmt plötuna og hafa flestall-
ir dómarnir verið frábærir. Hljóm-
sveitin stefnir á að fara á tónleika-
ferðalag um Evrópu í lok árs og er
í viðræðum um að vera upphitunar-
band fyrir erlenda hljómsveit.
„Þetta er búið að vera klikkaðs-
lega næs og viðbrögðin hafa verið
fáránlega góð. Þetta er önnur plat-
an okkar en sú fyrsta kom út 2010
svo það er orðið langt síðan síðast.
Við vorum með útgáfupartí í sein-
ustu viku sem heppnaðist mjög vel,“
segir Þórarinn Guðnason, gítarleik-
ari sveitarinnar.
Útgáfupartí vegna plötunnar var
haldið í Bíói Paradís fyrir helgi og
var það vel heppnað. Það fór þannig
fram að vinir og velunnarar sátu í
sal eitt og hlustuðu á plötuna í gegn.
„Við sýndum tónlistarmyndböndin
þegar það átti við en annars vorum
við með smá myndrænar skreyt-
ingar með lögunum. Þetta var svo-
lítið öðruvísi og gaman að upplifa
plötuna með öllum þar sem allir
hlustuðu á hana en hún var ekki í
bakgrunninum á einhverjum bar.“
Hljómsveitarmeðlimir hafa verið
á fullu fyrir útgáfu plötunnar og
því ákveðinn léttir að viðbrögðin
hafi verið góð. „Það er allur fókus-
inn okkar búinn að vera á þessu.
Við erum að ná okkur niður eftir
síðustu daga, þetta er búið að vera
alveg magnað. Ég er taka til í fyrsta
skiptið í viku.“
Platan er komin í búðir og einnig
er hægt að hlusta hana á tónlistar-
veitunni Spotify. - gj
Nýja platan fær frábærar viðtökur erlendis
Agent Fresco hélt öðruvísi útgáfupartí í Bíói Paradís. Stefnan er sett á Evróputúr í lok ársins.
NÓG AÐ GERA Hljómsveitin kom fram
í gleðigöngunni um helgina og spilaði
lög af nýju plötunni.
MYND/AGENT FRESCO
Verð að segja nautasteik með
bernaise. Klassískt og fínt.
Sigríður María Egilsdóttir lögfræðinemi
UPPÁHALDSMATURINN
HÁSKÓLABÍÓ 15. ÁGÚST 2015
ROKKABILLÝBANDIÐ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIÐI.IS
HEIÐURSTÓNLEIKAR
Segja má að Maggarnir tveir,
þeir Magnús Valur Böðvarsson og
Magnús Guðmundsson, hafi skot-
ist upp á stjörnuhimininn í gegn-
um snjallsímaforritið Snapchat í
sumar. Sá fyrrnefndi er yfirleitt
kallaður Maggi Bö eða Bö-maskín-
an, en sá síðarnefndi gengur undir
nafninu Maggi Peran. Félagarnir
slógu báðir eftirminnilega í gegn
þegar þeir tóku yfir Snapchat-
reikning vefsíðunnar Fótbolti.net
og segir ritstjóri hennar að þeir
hafi fengið fólk sem hafði ekki
endilega áhuga á knattspyrnu til
að fylgjast með Snapchat-reikn-
ingi síðunnar.
Peran með ádeilu
Maggi Peran er Breiðhyltingur í
húð og hár, grjótharður stuðnings-
maður Leiknis og annálaður stuð-
bolti. „Þetta er búið að vera mjög
fyndið að fylgjast með þessari
öldu viðbragða. Maður gerði sér
ekki grein fyrir því að þetta myndi
hafa þessi áhrif,“ segir hann íhug-
ull og bætir því við að viðbrögðin
hafi komið sér á óvart. Peran seg-
ist hreinlega hafa suðað í aðstand-
endum Fótbolti.net og beðið þá
um að leyfa sér að stýra Snapchat-
reikningi síðunnar. „Vinur minn,
Friðgeir Bergsteinsson, sem er
grjótharður KR-ingur, fékk þann
heiður að stýra reikningum. Ég
hafði samband við þá á Fótbolti.
net og vældi mig inn.“
Peran hreinlega sló í gegn eftir
að hafa stýrt reikningi síðunnar í
einn sólarhring. Fjölmiðlar fjölluðu
um hann og var mikil umræða um
Breiðhyltinginn glaðbeitta á sam-
félagsmiðlum. „Upphaflega ætl-
aði ég bara að svara Friðgeiri vini
mínum. En þegar ég tók eftir við-
brögðunum hélt ég áfram. Ég hef
svolítið verið að vinna með það að
vera á grensunni, þetta „siðlausa“
ef svo má segja.“ Snöppin hans
Magga eru ádeila að hans sögn.
„Þetta er klár ádeila á þessa stað-
alímynd sem fólk hefur um Breið-
hyltinga, en við sem erum í Breið-
holtinu vitum að er ekki sönn.“
Hundruð vinabeiðna
Maggi Bö ólst upp á Álftanesi en
hefur lengi verið tengdur knatt-
spyrnuliði HK. Hann er vallar-
stjóri á Kópavogsvelli og þekktur
fyrir að vera ávallt léttur í lundu.
Hann stýrði Snapchat-reikningi
Fótbolti.net í einn sólarhring yfir
Þjóðhátíð. Þar kruði Bö-mask-
ínan málin á sinn hátt og lýsti
stemningunni á hátíðinni vel og
vandlega. Í kjölfarið rigndi inn
vinabeiðnum á hans eigin Snap-
chat-reikning. „Vinafjöldinn í for-
ritinu hefur tvö- eða þrefaldast.
Vinabeiðnirnar eru taldar í hund-
ruðum,“ útskýrir Magnús Valur og
heldur áfram: „Aðstandendur Fót-
bolti.net höfðu samband við mig á
föstudagskvöldinu. Ég þekki þessa
stráka og þeir höfðu verið að fylgj-
ast með mér á mínum eigin Snap-
chat-reikningi. Þeir vildu endilega
að ég tæki yfir reikning síðunnar,
sem ég og gerði.“
Og viðbrögðin létu ekki á sér
standa. „Nei, þetta var svolít-
ið fyndið. Það var fullt af fólki á
Þjóðhátíð sem var greinilega að
fylgjast með og kom upp að mér á
meðan hátíðinni stóð. Ýmist til að
hrósa mér eða til að vera með í ein-
hverjum snöppum.“
Vinnufélagar Magga Bö hafa
einnig nýtt skopskyn hans á
sínum Snapchat-reikningum.
„Einn vinnufélagi minn er með
sérstakan lið sem heitir „Bö dags-
ins“. Þá birtir hann snapp af mér,
sem er nú yfirleitt leikið. En vinir
hans eru mjög hrifnir af þessu og
kvarta í honum ef við hittumst
ekki í vinnunni til að taka upp eitt-
hvað skemmtilegt.“
Hafa húmor fyrir sjálfum sér
Nafnarnir hafa báðir mikinn
húmor fyrir sjálfum sér; í raun
segja þeir það lykilinn að því að
vera skemmtilegur á Snapchat.
„Maður verður að vera léttur og
má ekki taka sig of alvarlega,“
útskýrir Peran. Bö-maskínan
segir þó mikilvægt að ganga ekki
of langt í gríninu. „Maður þarf
að hafa allt innan skynsamlegra
marka, en auðvitað þarf að hafa
gaman.“
Peran er nú á leið til Hollands
og mun fylgja knattspyrnulands-
liði Íslands eftir í einum mikil-
vægasta leik í manna minnum. Til-
gangur ferðarinnar er einfaldur:
Hann mun birta myndir og mynd-
bönd af henni í gegnum Snapchat.
„Ég kallaði eftir því að fá að fara
í þessa ferð til þess að snappa úr
henni og nokkur fyrirtæki höfðu
samband við mig. Ég ákvað að
taka boði Nova, enda er það líklega
stærsti Snapchat-reikningur lands-
ins.“ Hann er nú þegar farinn að
undirbúa sig og reyna að sjá fyrir
sér skemmtileg snöpp. „Já, það er
nefnilega komin svolítil pressa á
mann, því ég er ekki fyndinn að
eðlisfari,“ segir Peran og hlær.
Hægt er að finna þá félaga á Snap-
chat, Maggi Bö er með reikninginn
Magnusvalue og Maggi Peran kall-
ar sig einfaldlega Maggiperan í for-
ritinu. Þeir setja þó þann fyrirvara
að þeir samþykkja ekki allar vina-
beiðnir. kjartanatli@365.is
Upp á stjörnuhimin
í gegnum Snapchat
Þeir Magnús Valur Böðvarsson og Magnús Guðmundsson eru vinsælir á Snap-
chat. Þeir segja leyndarmálið felast í léttleika og að hafa húmor fyrir sjálfum sér.
Hafa aukið vinsældir snappsins
og fært það víðar
HÚMORISTAR Magnús Valur Böðvarsson og Magnús Guðmundsson taka sjálfa sig
ekkert of alvarlega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elvar Geir Magnússon er ritstjóri vefsíðunnar Fótbolti.net. Eins og á við
um mörg önnur fyrirtæki, var ákveðið að stofna Snapchat-reikning í
nafni síðunnar. „Maggi Peran og Maggi Bö hafa klárlega aukið vinsældir
snappsins okkar. Við finnum fyrir meiri áhuga þeirra sem eru kannski
ekki endilega annálaðir knattspyrnuáhugamenn. Við finnum fyrir mikilli
umræðu um þessa tvo snillinga og fólk þrýstir á okkur að fá meira af
þeim,“ útskýrir Elvar Geir og bætir við:
„Þeir hafa komið með alveg nýja hlið á snappið hjá okkur. Áður var
mikið bara verið að birta myndir og myndbönd af undirbúningi fyrir
knattspyrnuleiki og þess háttar. En þeir hafa sýnt frá öðrum kimum lífsins.
Maður tekur líka eftir því að fólk er að taka myndir af þeim félögum þegar
það hittir þá á förnum vegi, enda eftirminnilegir og skemmtilegir menn.“
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
1
-F
B
C
8
1
5
B
1
-F
A
8
C
1
5
B
1
-F
9
5
0
1
5
B
1
-F
8
1
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K